Fréttablaðið - 06.05.2011, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 06.05.2011, Blaðsíða 8
6. maí 2011 FÖSTUDAGUR Sameinaði lífeyrissjóðurinn býður sjóðfélögum sínum til kynningarfunda í Reykjavík og á Akureyri um upphaf lífeyristöku. Fundunum er ætlað að gefa svör við helstu spurningum sem vakna um lífeyrismál þegar starfslok nálgast. KYNNINGARFUNDIR FYRIR VÆNTANLEGA LÍFEYRISÞEGA Til umfjöllunar verða: • Ákvæði samþykkta sjóðsins um lífeyristöku. • Atriði sem mestu ráða um hvenær sjóðfélagar ákveða að hefja töku lífeyris. • Tengsl lífeyris frá sjóðnum við lífeyri almannatrygginga. • Aðrar hagnýtar upplýsingar sem tengjast þessum tímamótum. Borgartún 30, 105 Reykjavík Sími 510 5000 mottaka@lifeyrir.is lifeyrir.is E N N E M M / S ÍA / N M Fundarstaðir og tími REYKJAVÍK: 11. maí, kl. 17.00 í Borgartúni 30. AKUREYRI: 12. maí, kl. 17.00 að Skipagötu 14, 4. hæð. Vinsamlega tilkynnið þátttöku eigi síðar en mánudaginn 9. maí, í síma 510 5000 eða með því að senda tölvupóst á mottaka@lifeyrir.is, með upplýsingum um nafn, kennitölu og símanúmer. RÚSSLAND Rússar hafa sett lög sem banna þarlendum að múta opinberum starfsmönnum erlendra ríkja. Sektir verða lagð- ar jafnt á fyrir- tæki sem ein- staklinga sem uppvísir verða að því að brjóta lögin. Í tilkynningu Efnahags- og samvinnu- stofnunarinnar (OECD) í gær fagnar Angel Gurría, aðalframkvæmdastjóri stofnunarinnar, því að Dimitri Medvedev, forseti Rússlands, hafi fullgilt lögin. Með löggjöfinni hefur einnig opnast fyrir aðkomu Rússa að vinnuhópi OECD gegn mútum. - óká OECD fagnar nýrri löggjöf: Rússar banna mútur erlendis ANGEL GURRÍA ALÞINGI Forseti Alþingis bað Mörð Árnason, þingmann Samfylkingar- innar, að gæta orða sinna í gær þegar hann kallaði þingmenn Sjálfstæðisflokksins grátkonur í umræðu um frumvarp til breyt- inga á lögum um landsdóm. Frumvarpið, sem varð að lögum í gær, snýst um að dómarar sem eiga sæti í landsdómi skuli ljúka meðferð máls þrátt fyrir að kjör- tímabil þeirra klárist í miðju mál- inu. Sjálfstæðismenn hafa gagnrýnt frumvarpið og sagt það beinast sérstaklega gegn Geir H. Haarde. Mörður ávarpaði Einar K. Guð- finnsson sérstaklega og sagði að hann væri „hin mesta grátkona af öllum grátkonum Sjálfstæðis- flokksins“. Hann bætti við að Sig- urður Kári Kristjánsson og Birgir Ármannsson hefðu þegar grátið vegna máls- ins. Þingmennirnir hefðu komið grátbólgnir í pontu eftir að hafa áður snyrt sig í speglinum til að slá pólitískar keilur í málinu. Þingforsetinn Þuríður Backman sló í bjölluna og bað Mörð að gæta orða sinna. Mörður svaraði því til að hann teldi orðin hafa verið fullkomlega saklaus. - sh Forseti Alþingis bað Mörð Árnason að gæta orða sinna í umræðu um landsdóm: Kallaði sjálfstæðismenn „grátkonur“ MÖRÐUR ÁRNASON Virðist eiga nokkuð auðvelt með að ganga fram af samstarfsmönnum sínum á þingi. HEILBRIGÐISMÁL Eigendur flugskýla við Reykjavíkurflugvöll í Vatns- mýri hafa ekki þurft að greiða gatnagerðargjöld síðan árið 1989. Samkvæmt samþykkt frá Borgar- ráði Reykjavíkur frá 1. ágúst það ár skulu eigendur hins vegar þess í stað greiða kostnað við lagfær- ingar eldri lagna og eftir atvikum lagningu nýrra holræsa og brunna. Skólpblandað vatn tók að flæða upp úr brunni á svæðinu við flug- völlinn í vikunni. Fráveitulögn fyrir framan flugskýli 23 nær ekki að anna fráveituvatni frá aðliggj- andi lögnum sem gerir það að verkum að skólp flæðir úr brunni við flugskýli 21. Eins og kom fram í Frétta- blaðinu í gær eru þeir sem eiga aðild að þeirri lögn sem þarfnast lagfæringar á svæðinu Fluggarðar – Lóðarfélag, Flugfélag Íslands og Skeljungur hf. Rekstraraðilar hafa vísað ábyrgðinni til Reykjavíkur- borgar hingað til. Rósa Magnúsdóttir, deildarstjóri hjá Heilbrigðiseftirliti Reykja- víkur, segir að síðan 2008 hafi engar kvartanir borist og því hafi yfirvöld talið að eigendur hefðu aðhafst í málinu. Hinn 5. apríl síðastliðinn kom þó í ljós að svo var ekki, þar sem kvörtun vegna skólpsins barst eftirlitinu að nýju. Það sé hins vegar ljóst að ábyrgð á viðhaldi og viðgerðum lagna á svæðinu liggi hjá eigendum, í ljósi samþykktar borgarráðs frá árinu 1989. „Við höfum þetta í höndunum og það hefur ekkert komið fram sem fellir þessa samþykkt úr gildi,“ segir Rósa. Ekki náðist í Ágúst Jónsson, framkvæmdastjóra eignasviðs Reykjavíkurborgar, í gær. sunna@frettabladid.is Hafa ekkert greitt í 22 ár Eigendur á svæðinu við flugvöllinn í Vatnsmýri hafa ekki greitt gatnagerðargjöld síðan árið 1989. Fengu undanþágu með því að greiða kostnað af lögnum. SKÓLP VIÐ FLUGVALLARSVÆÐIÐ Eigendur flugskýla við Reykjavíkurflugvöll hafa ekki þurft að greiða gatnagerðargjöld frá 1989. Í staðinn áttu þeir að greiða fyrir kostnað við lagfæringu á gömlum lögnum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA STJÓRNSÝSLA Sjálfstæðismenn í bæj- arstjórn Hafnarfjarðar gagnrýna forgangsröðun meirihlutans í hag- ræðingaraðgerðum og segja ekki líklegt að þær muni auka á sátt meðal starfsmanna og bæjarbúa. Í bókun á síðasta bæjarstjórnar- fundi hörmuðu sjálfstæðismenn uppsagnir og niðurskurð í grunn- skólum á meðan ekki væri gripið til hagræðingar á borð við sam- einingu sviða. Þá gagnrýndu þeir einnig þá ákvörðun að leigja hús- næði undir fræðslusvið og félags- þjónustu, sem yki fjárhagslegar skuldbindingar bæjarins „á sama tíma og mikil óvissa ríkir um nið- urstöðu endurfjármögnunar 4,3 milljarða erlends láns sem var á gjalddaga í upphafi síðasta mán- aðar“. Meirihlutinn svaraði því til að þær stjórnsýslubreytingar sem stæðu til hefðu verið unnar af odd- vitum allra flokka í bæjarstjórn. Þá hefði stærsta hagræðingin í starfsmannamálum verið í mið- lægri stjórnsýslu og umrædd- ar breytingar í húsnæðismálum myndu bæði auka hagræði og þjón- ustu. Meirihlutinn sagði loks að sjálf- stæðismenn hefðu „augljóslega valið sér að gera öll mál tortryggi- leg, hversu jákvæð sem þau eru“. - þj Deilur í bæjarstjórn Hafnarfjarðar: Forgangsröðun gagnrýnd
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.