Fréttablaðið - 06.05.2011, Page 12
6. maí 2011 FÖSTUDAGUR
DAGSKRÁ:
Tónlistaratriði: Sólveig Steinþórsdóttir, nemandi við Tónlistarskólann í Reykjavík, leikur á fiðlu, meðleikur á píanó: Anna Guðný Guðmundsdóttir
TÓNLISTIN OG LÍFIÐ Dr. Njörður P. Njarðvík,
prófessor emeritus við Háskóla Íslands
Tónlistaratriði: B-sveit Skólahljómsveitar Kópavogs, stjórnandi: Össur Geirsson
HLUTVERK TÓNLISTAR í umbreytingu menntunar á 21. öld?
Listmenntun, nauðsynlegur hluti almennrar menntunar:
Sigurjón Mýrdal, deildarstjóri stefnumótunar- og þróunardeildar mennta- og menningarmálaráðuneytis
Hlutverk listaháskóla: Hjálmar H. Ragnarsson, rektor Listaháskóla Íslands
Áhrif tónlistarrannsókna á menntun: Helga Rut Guðmundsdóttir,
formaður Rannsóknarstofu í tónlistarfræðum við Menntavísindasvið Háskóla Íslands
Í takt við tímann: Guðni Franzson, tónlistarmaður
Tónlist fyrir alla? Þórdís Sævarsdóttir, tónmenntakennari og tónlistarskólakennari
Væntingar tónlistarnemenda á 21. öld? Greta Salóme Stefánsdóttir, tónlistarnemandi við Listaháskóla Íslands
Tónlistaratriði: Marimbasveit frá Tónlistarskóla Hafralækjarskóla, meðleikur á hristur og stjórnandi: Mauricio Weimar
PALLBORÐSUMRÆÐUR
Tónlistaratriði: Unnur Birna Björnsdóttir syngur og leikur á píanó, Valdimar Olgeirsson leikur á kontrabassa
Skráning á ráðstefnuna fer fram á netfanginu: ft@ki.is / Skráningargjald er 1.200 kr. og veitingar eru innifaldar í gjaldinu.
Ráðstefnan er haldin að frumkvæði Félags tónlistarskólakennara og Félags íslenskra hljómlistarmanna í samstarfi við Tónmenntakennarafélag Íslands, Rannsóknarstofu
í tónlistarfræðum við Menntavísindasvið Háskóla Íslands, Listaháskóla Íslands, og Mennta- og menningarmálaráðuneytið sem styrkir ráðstefnuna.
RÁÐSTEFNAN „TÓNLISTIN OG LÍFIГ VERÐUR HALDIN Í
TÓNLISTAR- OG RÁÐSTEFNUHÚSINU HÖRPU, KL. 13:00-17:00
LAUGARDAGINN 7. MAÍ 2011, Í SALNUM KALDALÓNI
RÁÐSTEFNUSTJÓRI: ÆVAR KJARTANSSON, DAGSKRÁRGERÐARMAÐUR
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
– Afslátt eða gott verð?
Gott í vorverkin
Reykjavík - Reykjanesbæ
Akureyri - Húsavík
Vestmannaeyjum
Black&Decker
háþrýstidæla 110 bar
13.900
Hjólbörur 90L
4.490
Garðslanga 15 m
með úðabyssu
890
BANDARÍKIN, AP Þriggja metra
langur krókódíll olli miklum
skemmdum á lögreglubíl í
Flórída ríki um síðustu helgi.
Lögregla var kölluð á vettvang
eftir að krókódíllinn birtist á golf-
velli við Gainesville. Á meðan
lögregluþjónn beið í bíl sínum
eftir aðstoð réðst dýrið á bílinn.
Krókódíla bani kom síðar á
svæðið, handsamaði skepnuna og
lógaði. Krókódílar eru algengir
á fenjasvæðum Flórída og
kveða reglur á um að lóga megi
dýrunum ef þau gerast aðgangs-
hörð við menn eða mannabústaði.
- þj
Krókódíll í Flórída:
Krókódíl lógað
eftir árás á bíl
VIÐSKOTAILLUR VÁGESTUR Krókódíl var
lógað eftir árás á lögreglubifreið í Flórída
um helgina. MYNDIN ER ÚR SAFNI
SAMGÖNGUR Strætó prófaði tvinn-
strætisvagn í fyrsta sinn við
íslenskar aðstæður í gær. Verið er
að meta hvort slík tegund vagna
henti hér á landi. Á kynningar-
fundi sem haldinn var í gær kom
fram að næsta mánuðinn mun
strætó prófa vagninn á götunum í
tilraunaskyni. Vagninn var feng-
inn að láni frá Volvo í Skandinavíu,
en fyrirtækið hefur selt um 100
tvinnvagna á síðustu misserum til
Norðurlandanna. Reynir Jónas-
son, framkvæmdastjóri Strætó,
segir einn slíkan kosta um það bil
47 milljónir króna. Strætó fékk
vagninn afhentan í lok apríl og
mun hann keyra um götur Reykja-
víkurborgar allan maímánuð.
„Volvo er að leyfa okkur að prófa
þessa tækni. Við munum gera
ákveðnar mælingar á vagninum og
sjá hvernig hann gerir sig í týpísk-
um akstri hjá okkur,“ segir Reynir.
Tvinnvagnar eru útbúnir sér-
stökum búnaði í kring um hemla
sem gerir það að verkum að þegar
stigið er á bremsuna snúast rafalar
sem framleiða og nýta hreyfiorku
sem er hlaðið inn á geyma. Raf-
magnið nýtist svo samhliða dísil-
olíunni til að knýja bílinn.
Reynir segir notkun á tvinn-
vögnum fara vaxandi á Norður-
löndunum. Ekkert hefur þó enn
verið ákveðið varðandi framtíð
þeirra hér á landi. - sv
Strætó prófar nýja tegund strætisvagna:
Verið að meta hvort
tvinnvagn henti
STRÆTÓ PRÓFAR TVINNVAGN Egill
Jóhannsson, hjá Brimborg,
Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir,
stjórnarformaður Strætó, og Reynir
Jónsson, framkvæmdastjóri Strætó.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
BANDARÍKIN, AP Indíánar af ætt-
bálki Apasja eru afar ósáttir við
að bandarísk stjórnvöld hafi notað
dulnefnið Geronimo yfir Osama
bin Laden í samskiptum tengdum
árás sérsveitarmanna á hryðju-
verkaforingjann. Þeir hafa krafið
Barack Obama Bandaríkja forseta
um afsökunarbeiðni.
Geronimo er frægasti höfðingi
Apasja, en seint á 19. öld barðist
hann gegn mexíkóskum og
bandarískum herjum sem vildu
senda Apasja á verndarsvæði.
„Geronimo var virtur leiðtogi
Apasja sem barðist til að verja
þjóð sína, land og lífshætti,“ segir
í bréfi leiðtoga Apasja til Obama.
Hann harmar að nafnið skuli hafa
verið notað yfir fjölda morðingja
og hryðjuverkamann. - bj
Mótmæli vegna dráps:
Apasjar ósáttir
við nafngiftina
ÓVIRÐING Frumbyggjum Bandaríkjanna
er sýnd óvirðing með því að tengja
Geronimo við Osama bin Laden, segir
leiðtogi Apasja. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
SAMFÉLAGSMÁL Yfir 80 prósent
almennings vilja binda táknmál
í lög sem fyrsta mál þeirra sem
reiða sig á það til tjáskipta. Þetta
eru niðurstöður könnunar, sem
fyrirtækið Miðlun ehf. gerði dag-
ana 17. til 28. mars fyrir Félag
heyrnarlausra, á viðhorfi almenn-
ings til táknmáls sem fyrsta
máls. Rúmlega sextán prósent
aðspurðra voru hvorki sammála
né ósammála og tæp þrjú prósent
eru frekar eða mjög ósammála.
Frumvarp liggur nú fyrir
Alþingi um stöðu íslenskrar
tungu og íslensks táknmáls. - sv
Könnun meðal almennings:
Yfir 80% vilja
táknmál í lög