Fréttablaðið - 06.05.2011, Side 26
2 föstudagur 6. maí
núna
✽ Jákvæðni léttir lífið
augnablikið
Útgáfufélag 365 miðlar ehf. Umsjón Sara McMahon Forsíðumynd Stefán Karlsson Útlitshönnun
Kristín Agnarsdóttir Auglýsingar Sigríður Hallgrímsdóttir sigridurh@365.is og Sigríður Dagný
Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is Föstudagur Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, sími 512 5000
blogg vikunnar
FÖNGULEG Leikkonan Rene
Russo var stórglæsileg á frum-
sýningu hasar myndarinnar Thor í Los
Angeles. NORDICPHOTOS/GETTY
Hönnuðirnir Jack McCollough og
Lazaro Hernandez hafa svo sann-
arlega slegið í gegn með hönn-
un sinni undanfarin ár. Félag-
arnir hanna saman undir heitinu
Proenza Schouler og virðast þeir
sjaldan stíga feilspor. Nú ætla
þeir að færa út kvíarnar og senda
frá sér skartgripalínu, fréttir sem
kæta án efa marga.
Fylgihlutalína Proenza Schouler
ber heitið PS1 og inniheldur nú
þegar fallegar leðurtöskur, en
skartið mun bætast við innan
skamms. Hönnuðirnir segja
skartið muna vera klassískt og
ekki bundið við tískubylgjur en
að þeir muni þó bæta reglulega
við nýjum litum og efnum. Áætl-
að er að skartið komi út um mitt
sumar og verður spennandi að sjá
herleg heitin. - sm
Skartgripalína frá Proenza Schouler:
Klassískt skart frá
Proenza Schouler
Flott Fallegt hálsmen úr smiðju Proenza
Schouler fyrir vorlínu þeirra í ár.
Valdís Thor ljósmyndari opnaði sýninguna
II í Ljósmyndasafni Reykjavíkur í gær. Sýn-
ingin samanstendur af myndum sem Val-
dís hefur tekið undanfarin áratug og eru
þær settar fram á frumlegan og skemmti-
legan hátt.
Að sögn Valdísar er markmið sýningar-
innar að fá áhorfandann til að taka þátt í
verkinu og er honum gefinn kostur á að
breyta sýningunni, raða upp á nýtt og leika
sér með ljósmyndirnar. „Sýningin saman-
stendur af myndum sem ég hef tekið jafnt
og þétt undanfarin tíu ár. Flestar myndirnar
eru úr Reykjavík en það eru einnig nokkrar
frá Svíþjóð, Danmörku og Bandaríkjunum.
Ég hef alltaf verið mjög hrifin af tvítekning-
um og þó að sýningin innihaldi hundrað
myndir þá eru þetta aðeins fimmtíu verk,
maður fær því að sjá tvær hliðar af sama
augnablikinu,“ út skýrir Valdís. Þannig eru
tvær myndir límdar beggja megin á karton-
spjald og snýr önnur myndin að áhorf-
andanum en hin að veggnum. Áhorfendur
þurfa því að snerta verkið og færa það til
eigi þeir að geta notið þess til fulls. Sýning-
in er því afskaplega lifandi enda útkoman
aldrei eins allt eftir því hver raðar mynd-
unum. Myndirnar eru allar teknar á filmu
og segir Valdís það eiga að minna fólk á
hversu mikilvægt það er að eiga minningar
í haldbæru formi.
Valdís lærði ljósmyndun við Iðnskólann
í Reykjavík og lauk þaðan sveinsprófi árið
2008. Hún hefur einnig starfað sem ljós-
myndari hjá Morgunblaðinu og í desember
í fyrra setti hún uppsýninguna 101 heim-
sókn auk þess að gefa út ljósmyndabók
með sama nafni.
Sýningin stendur yfir til 29. júní. - sm
Valdís Thor heldur lifandi ljósmyndasýningu:
TVÆR HLIÐAR Á SAMA
AUGNABLIKINU
Tvítekning Valdís
Thor opnaði sína
aðra einkasýningu
í Ljósmyndasafni
Reykjavíkur í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Að sunnan
Tískan á suðurhveli jarð-
ar tekur að sjálfsögðu mið
af veðurfarinu sem þar
ríkir. Við á Íslandi klæð-
umst flík ofan á flík
til að halda á okkur
hita á meðan Ástralar
kunna að klæða sig
létt og sumarlega.
Þar sem hið íslenska
sumar er handan við
hornið (vonandi) er
um að gera að leita að
innblæstri fyrir sumar-
klæðnaðinn beint til
Ástralíu. Ástralska
bloggið www.
oraclefox.
blogspot.
com er stórskemmti-
legt og fötin flott og
það er gaman að
renna í gegnum
myndirnar og
láta sig dreyma
um betri veður-
tíð.
Köttur að
næturlagi
Bloggið www.
knighttcat.com
samanstendur af
myndum héðan og
þaðan. Myndirnar eru
flestar af tískufyrir-
myndum, flottum
tískumyndaþáttum og
öðru eins sem allir
tískuspekúlantar
ættu að hafa gaman
af að skoða.
FYRIR KONUR OG KARLA ck one summer er nýtt ilmvatn sem
er ætlað báðum kynjum. Ilmurinn er frískandi og með svolitlum keim af
sítrusávöxtum, melónu og rabarbara. Sem sagt heill aldingarður sem
búið er að fanga í litríkar og sumarlegar umbúðir.
==
SALON REYKJAVÍK
VERTU VELKOMMINN Á SALON REYKJAVÍK
GRANDAGARÐUR 5 101 REYKJAVÍK SÍMI: 56 85 305
SALON REYKJAVÍK BÝÐUR UPP Á NÝJA NATURA KERATIN
SLÉTTUNARMEÐFERÐ SEM GEFUR MJÚKT, SLÉTT,
HEILBRIGÐT, FALLEGT OG GLANSANDI HÁR.
g g