Fréttablaðið - 06.05.2011, Page 33
FÖSTUDAGUR 6. maí 2011
SIGURBOGINN
19ára
19% AFSLÁTTUR
AF ÖLLUM VÖRUM Í DAG OG Á MORGUN
KYNNING
Á DIOR
OG SHISEIDO
SNYRTIVÖRUNUM
VERTU VELKOMIN Í AFMÆLIÐ
„Þetta er einstakt tækifæri og lyfti-
stöng fyrir fagið hér á Íslandi,“
segir Ingibjörg Guðmundsdóttir,
ein þeirra fimm sem útskrifast úr
tveggja ára diplómanámi í Mótun
við Myndlistaskólann í Reykjavík
í vor, en útskriftarverkefnin voru
unnin í samstarfi við postulínsfram-
leiðandann Kahla.
Dagana 1. til 5. júní sýnir hópur-
inn á alþjóðlegu hönnunarsýning-
unni DMY í Berlín, þar sem yfir-
hönnuður Kahla, Barbara Schmidt
fer yfir útskriftarverkin en hún var
jafnframt einn af kennurum verk-
efnisins.
„Barböru leist svo vel á hlutina
okkar að hún stakk upp á að við
sýndum á DMY. Þar mun hún fara
yfir verkin og hugsanlega bjóða einu
okkar eða fleirum lærlingsvist hjá
Kahla til að þróa vörurnar enn frek-
ar,“ segir Ingibjörg og bætir við að
ómetanlegt sé að komast inn á verk-
stæði hjá fyrirtæki af þessari stærð-
argráðu.
„Kahla er stærsta postulínsverk-
smiðja í Þýskalandi og hefur selt
vörur sínar um allan heim í áratugi.
Kahla er iðulega í samstarfi við
hönnuði, listamenn og skóla til að
halda vörulínu sinni sem ferskastri,
en þetta er í fyrsta sinn sem þeir eru
í samstarfi við íslenska nemendur.“
Aðspurð hvort samkeppnin hafi
haft áhrif á andann í bekknum
segir hún örlítinn titring hafa farið
um hópinn í byrjun, en hann hafi
rjátlast af þeim strax. „Í listnámi
verður bekkurinn bara eins og náin
fjölskylda,“ segir Ingibjörg en hún
er ásamt félögum sínum að leggja
lokahönd á undirbúning útskriftar-
sýningar Myndlistaskólans í Reykja-
vík sem verður opnuð í dag klukkan
17 í Gömlu útgerðinni að Granda-
garði 16.
Þar verður hægt að bera vörurnar
sem unnar voru fyrir Kahla augum
ásamt verkefnum annarra deilda
skólans. Sýningin er opin dagana 7.,
8. og 9. maí milli klukkan 13 og 19.
heida@frettabladid.is
Elín hannaði ílát fyrir afganga
upp úr gömlu Kahla-stelli sem
hún átti í eldhússkápnum.
Diðrik hannaði tvöfaldan kaffibolla með
holrúmi sem einangrar svo að
kaffið helst lengur heitt.
Ingibjörg vann
með gamalt
munstur frá Kahla.
Ingibjörg Guðmundsóttir, Diðrik Steinsson og Elí n Haraldsdóttir, útskriftarnemendur
í Mótun, hafa hannað muni fyrir postulínsverksmiðjuna Kahla. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Sýna lokaverkin í Berlín
Útskriftarnemar í Mótun við Myndlistaskólann í Reykjavík hönnuðu lokaverkefnin sín í samvinnu við
þýsku postulínsverksmiðjuna Kahla. Eftir sýningu í Berlín gæti tekið við starfsnám við verksmiðjuna.