Fréttablaðið - 06.05.2011, Síða 34
6. maí 2011 FÖSTUDAGUR4
Reitir óska Rými til hamingju með nýtt húsnæði
Rými er fl utt í Brautarholt 26
Handunnin kerti og hattar, peys-
ur og perlur, ull og ísaumur eru
meðal þess sem verður á kynningu
í Stúdíói Helgu Unnarsdóttur að
Rangárseli 8. „Ég vil sýna að það
sé líf hér í Seljahverfinu og sitt-
hvað skemmtilegt sem fólk er að
gera,“ segir Helga glaðlega þegar
hún er spurð hvað fyrir henni vaki
með opinni vinnustofu. „Á meðan
gestir fá sér kaffisopa gefst þeim
tækifæri til að sjá leirbolla verða
til í höndum mínum og stúlku sem
heitir Astrid orkera blúndur. Haf-
dís nokkur verður með kynningu á
flottum sokkabuxum frá Leyndar-
málinu og starfsfólk frá Heilsuhvoli
kynnir svæðanudd, fótaaðgerðir og
fleira sem tengist starfsemi þess.
Svo verður hér sölusýning á hand-
unnum munum úr leðri og roði,
silki, ull og silfri og málverk eftir
listamann sem nefnist Steinn.“
Þetta er í fyrsta sinn sem Helga
hefur opna vinnustofu að vori til
en það hefur verið fastur liður á
aðventunni „Margt handverksfólk
hefur engan stað til að kynna verk
sín á og þetta er spurning um að
leggjast á árar með því,“ segir hún.
gun@frettabladid.is
Þetta verður bara gleði
Vorhugur ræður ríkjum í Rangárseli 8 um helgina. Handverksfólk og starfsfólk frá Heilsuhvoli er með
opna vinnustofu í Stúdíói Helgu Unnarsdóttur leirkerasmiðs, sem ekki mun sitja auðum höndum heldur.
Fínlegt orkerað hárskraut.
Lítil skytta er aðaláhaldið þegar orkerað
er.
Astrid Björk Eiríksdóttir hefur tileinkað
sér hið einstaka handverk orkeringu.
Hendur Helgu móta leirinn í rennibekknum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
vertu vinur á facebook
MIKIÐ ÚRVAL
LÉTTAR
YFIRHAFNIR
STÆRÐIR 40-58
Dagur harmonikkunnar er á morgun og
munu harmonikkuleikarar gleðja veg-
farendur á völdum stöðum á Lauga-
veginum frá klukkan 13. Þeir byrja við
Stjörnuport og enda á Lækjar torgi og
loks í Ráðhúsinu þar sem harmonikku-
veisla hefst klukkan 15.
Þá eru borgarbúar hvattir til að
hjóla í bæinn en boðið verður upp
á vottun og skoðun á Lækjartorgi og
Skólavörðu stíg frá klukkan 13. Eins
verður mikil hjólahátíð á Ingólfstorgi
þar sem menn sýna listir sínar á reið-
hjólum, mótorhjólum og hjólabrettum.
Hjól og nikkur í miðborginni á morgun
Fólk er hvatt til að hjóla í bæinn.
Haldið
verður upp á
dag harmonikkunnar í
Ráðhúsi Reykjavíkur á morgun.