Fréttablaðið - 06.05.2011, Page 44

Fréttablaðið - 06.05.2011, Page 44
6. maí 2011 FÖSTUDAGUR32 folk@frettabladid.is 1,2 MILLJÓNIR dala er upphæðin sem Leonardo DiCaprio borgaði fyrir verk eftir Salvador Dali. DiCaprio reyndi fyrr í þessari viku að kaupa verk eftir Picasso en þegar það mistókst beindi hann sjónum sínum að verki Dali, Chevaliers en parade. Fyrstu tónleikar Sinfóníu- hljómsveitar Íslands voru í Hörpunni á miðviku- dagskvöld. Tár mátti sjá á hvarmi gesta þegar níunda sinfónían var flutt en sjón- varpsvélar frá RÚV voru víðsfjarri. Húsfyllir var þegar Vladimír Ashkenazy gekk í Eldborgarsal- inn í fyrsta sinn með tónsprotann sinn og stjórnaði Sinfóníuhljóm- sveitinni eins og hershöfðingi. Lofsyrðin hafa flogið um allt netið og menn hafa síst dregið undan í hástemmdum lýsingum. En ekki eru allir sáttir; netverjar hafa kvartað undan því að RÚV skyldi ekki sýna beint frá tónleikunum, valið handboltaleik fram yfir. Sig- rún Stefánsdóttir, dagskrárstjóri RÚV, sá sig knúna til að senda út yfirlýsingu í gær þess efnis að RÚV hefði ekki fengið leyfi til að taka upp tónleikana. „Ég margbað um þetta en við fáum að taka upp tónleikana í kvöld [gærkvöldi] og sýnum þá á hvítasunnu.“ Sigurður Nordal, framkvæmda- stjóri Sinfóníunnar, var að vonum svekktur að engar tökuvélar skyldu vera í salnum til að fanga þetta sögulega augnablik í íslenskri tón- listarsögu. „Sinfóníuhljómsveitin bannaði ekki upp tökur, við hefðum aldrei staðið í vegi fyrir því. Sin- fónían vill sjónvarpa sínum tón- leikum sem allra mest og það er okkar kappsmál að sem flestir hafi aðgengi að tón leikum okkar. Við hefðum svo sannarlega fagnað því ef þetta hefði verið sent beint út.“ Á þessu öllu var mjög einföld skýring; aldrei höfðu verið próf- aðar upptökur í salnum áður en tónleikarnir fóru fram. „Ýmsum spurningum var enn ósvarað bæði hvað varðar ljós og hljóð og því var sú ákvörðun tekin að taka upp aðra tónleikana. Það hefði einfald- lega verið tæknilegt lotterí að sýna beint frá þessum tónleikum, það hefði gjörsamlega allt getað klikk- að,“ segir Anna Margrét Björns- son, kynningarfulltrúi Hörpunnar. Hún bætir því við að kvöldið hafi gengið snurðulaust fyrir sig og að salurinn glæsilegi verði í stakk búinn til að vera í beinni útsend- ingu næsta föstudag á formlegri opnunarhátíð Hörpunnar. freyrgigja@frettabladid.is Tæknilegt lotterí að sýna beint Ólafur Ragnar Grímsson mætti á Sin- fóníutónleikana með forseta Slóveníu Danilo Türk og eiginkonu sína Dorrit Moussaieff upp á arminn. Dagur B. Eggertsson gaf sér smá tíma frá argaþrasi borgarmálanna og mætti á Sinfóníutónleika ásamt eiginkonu sinni, Örnu Dögg. Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands, og Ástríður Magnúsdóttir voru meðal gesta í Hörpunni. Forsætisráðherrann Jóhanna Sigurðar- dóttir og eiginkona hennar, Jónína Leós- dóttir, heilsa upp á Þórunni Sigurðar- dóttur fyrir tónleikana. Sjónvarpsmaðurinn Egill Helgason ásamt eiginkonu sinni, Sigurveigu Káradóttur, syni sínum Kára og japanska blaðamanninum Hirohito Ono hjá stórblaðinu Asahi Shimbun. Egill og Hirohito voru í skóla saman í París en Hirohito er víst ákaflega lunkinn sellóleikari. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI www.myndlistaskolinn.is MÓTUN leir og tengd efni Diplómanám 4 annir Ígildi 120 ECTS eininga til BA náms hjá erlendum samstarfsskólum UMSÓKNARFRESTUR TIL 30. maí Myndlista- og hönnunarsvið Fornám 2 annir Undirbúningur fyrir nám á háskólastigi í arkitektúr, hönnun og myndlist. UMSÓKNARFRESTUR TIL 23. maí Við verðum á Eiðistorgi í gömlu Blómastofunni aðeins þessa helgi og af því til efni munum við einnig bjóða upp á fatnað, sæn gurföt og fleira tengdum Múmínálfum, Línu Lang sokk, Mínu Mús og fleiri merkjum. Komdu, skoðaðu og mátaðu ok kar dásamlegu skó ,sokka, sun dföt og allt hitt.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.