Fréttablaðið - 06.05.2011, Side 49
FÖSTUDAGUR 6. maí 2011
Leikkonan Teri Hatcher úr þátt-
unum Desperate Housewives er
að leita sér að kærasta og hefur
verið dugleg að fara á stefnumót
að undanförnu. Hún er 46 ára og
á þrettán ára dóttur með öðrum
eiginmanni sínum, Jon Tenney.
Hún segir að nýi kærastinn þurfi
ekki að vera ríkur. „Ég vil vera
opin fyrir öllu. Hann þarf helst
að vera á milli 39 og 54 ára,
skemmtilegur, ævintýragjarn,
fyndinn, góður,
traustur, klár og
ganga vel í líf-
inu. Það þýðir
samt ekki endi-
lega að hann
þurfi að vera
ríkur,“
sagði
hún.
Leitar að
kærasta
TERI HATCHER
Leikkonan hefur
verið dugleg að
fara á stefnumót að
undanförnu.
Tallulah Belle Willis, 17 ára dótt-
ir Demi Moore og Bruce Willis,
var handtekin af lögregluyfir-
völdum í í Kaliforníu fyrir að
hafa áfengi um hönd. Aldurstak-
markið á áfengisdrykkju í Kali-
forníu er 21 ár og því neyddust
yfirvöld til að hafa afskipti af
henni. Þar sem Tallulah er undir
lögaldri þurftu laganna verðir að
hringja í forráðamenn hennar og
að sögn bandarísku vefsíðunnar
TMZ.com var það Demi Moore
sem kom og sótti dóttur sína.
Tallulah hefur verið að feta
í fótspor foreldra sinna í kvik-
myndaleik en hún hefur leikið
í kvikmyndum á borð við The
Scarlet Letter og The Whole Ten
Yards.
Tekin með
sterkt áfengi
VANDRÆÐAGEMLINGUR Tallulah Belle
Willis þykir vandræðagemlingur og var
nýlega sektuð fyrir að vera með sterkt
áfengi undir höndum.
Bobbi Brown vörur án virðisaukaskatts
dagana 5.-9. maí í Hagkaup Smáralind.
TAX
FREE
DAGAR
Au
glý
sin
ga
sím
i