Fréttablaðið - 06.05.2011, Qupperneq 54
6. maí 2011 FÖSTUDAGUR42
FÖSTUDAGSLAGIÐ
Ný heimildarmynd um rappsveitina
Quarashi er í undirbúningi í leik-
stjórn Gauks Úlfarssonar, sem vann
mikið með sveitinni á sínum tíma.
„Ég á ótrúlega mikið af mynd-
efni. Ég gerði eina heimildarmynd
um þá og ógrynni af tónlistarmynd-
böndum. Það eru líka til heilu tón-
leikarnir sem voru teknir upp í
Japan og stórir tónleikar í Amer-
íku með mörgum myndavélum,“
segir Gaukur en efnið hefur aldrei
áður litið dagsins ljós. Einnig er
til myndefni af Quarashi í hljóð-
veri með bandarísku rappsveitinni
Cypress Hill.
Gaukur gerði heimildarmyndina
„Um landið á lyfjum“ sem fjallaði
um Quarashi og kom út árið 1999.
Þá elti hann hljómsveitina út um
allar trissur með myndatökuvélina.
Nýja heimildarmyndin er unnin
í tilefni þess að Quarashi kemur
saman á nýjan leik á Bestu úti-
hátíðinni sem verður haldin í júlí.
Popparinn Birgir Örn Steinars-
son, kynningarfulltrúi Quarashi,
er að skrifa handrit myndarinn-
ar og vinna úr myndefninu ásamt
liðsmanni sveitarinnar Sölva Blön-
dal. Æfingar Quarashi í sumar
í tengslum við útihátíðina verða
teknar upp fyrir myndina, sem
og endurkomutónleikarnir sjálf-
ir. „Allir liðsmenn Quarashi eru
búnir að lofa að tala mjög opin-
skátt um tíma sinn í hljómsveit-
inni. Öll slagsmálin, öll rifrild-
in, allt dópið og allt saman fær
að fljóta með,“ segir Birgir Örn.
Stefnt er að útgáfu myndarinnar
með haustinu. -fb
Dóp og slagsmál í Quarashi-mynd
NÝ HEIMILDARMYND Heimildarmynd
um rappsveitina Quarashi er í undir-
búningi. Hún kemur út með haustinu.
MYND/ÞÖK
„Ég vona að þetta vindi upp á sig. Þetta er besti
bransinn til að byrja í því þetta eru „trendsetter-
arnir“,“ segir söngkonan Hera Björk Þórhalls-
dóttir.
Hera er sjóðandi heit í heimi samkynhneigðra í
Bandaríkjunum um þessar mundir. Hún er opin-
ber söngkona keppninnar Mr. Gay World USA og
lag hennar, Je Ne Sais Quoi, er lag keppninnar.
Undankeppnir hefjast víða um Bandaríkin í júní
og Hera kemur fram á einhverjum þeirra. Þá
kemur hún fram í lokakeppninni í janúar á næsta
ári.
„Þetta er algjör lukkupottur fyrir mig,“ segir
Hera hæstánægð. „Ég kann mjög vel við mig á
þessum markaði og þetta er það besta sem gat
komið út úr þessu öllu – og það á bara eftir að
versna. Í góðum skilningi.“
Og ertu að verða rík af þessu?
„Þetta er ennþá á byrjunarstigi að því leyti. Pen-
ingarnir eru ekki farnir að streyma inn.“
Hera Björk hefur ástæðu til að brosa þessa
dagana, en hún trúlofaðist nýlega ástinni sinni,
rekstrar hagfræðingnum Halldóri Eiríkssyni, og
játar að hún svífi um á bleiku skýi. „Það er bara
gott að vera til í dag. Það er ekki yfir neinu að
kvarta,“ segir hún.
Hera kemur fram á sérstöku styrktarballi
íþróttafélagsins Styrmis á Barböru annað kvöld,
en herlegheitin eru til styrktar heimsmeistaramóti
samkynhneigðra í sundi sem haldið verður í maí
2012 í Reykjavík. „Þeir eru fremstir í flokki, vinna
hvert mótið á fætur öðru og eru alveg með‘etta,“
segir Hera, sem kemur einmitt fram á heims-
meistaramótinu í ár, en það fer fram á Havaí. Loks
kemur Hera fram á djasstónleikum í Salnum í
Kópavogi á föstudaginn í næstu viku. - afb
Opinber söngkona Mr. Gay World USA
GOÐSÖGN Í HEIMI SAMKYNHNEIGÐRA Hera
er elskuð og dáð af hommum og lesbíum í
Bandaríkjunum og er orðin opinber listamaður
keppninnar Mr. Gay World USA. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Tölvuleikur byggður á tölvuteikni-
myndinni Hetjur Valhallar – Þór
sem teiknimyndafyrirtækið CAOZ
er nú að klára fer vænatanlega á
netið á næsta ári. Hann verður hlut-
verkaleikur, ætlaður börnum og
verður aðalmarkaðssvæðið Norður-
löndin og Þýskaland. Tölvuleikur-
inn fékk nýverið styrk úr evrópska
MEDIA-sjóðnum upp á 24 milljónir
íslenskra króna, en það þykir mik-
ill gæðastimpill að fá slíkan styrk
úr áðurnefndum sjóði. Þegar hefur
verið gerður símaleikur fyrir i-
Phone síma um Þór þrumuguð en
eins og gefur að skilja er þessi net-
leikur mun stærri í sniðum.
„Við byrjuðum að vinna við þetta
síðasta sumar og höfum verið að
láta þetta meitlast yfir veturinn,“
segir Haukur Sigurjónsson, fram-
kvæmdastjóri Caoz Games, dóttur-
félags Caoz, en fyrirtækið mun sjá
um þróun leiksins og hönnun í sam-
starfi við starfsmenn CAOZ. Það
er kannski í takt við tæknina sem
umlykur teiknimyndafyrirtækið að
Haukur er búsettur í Svíþjóð, nánar
tiltekið í Lundi, og stýrir starfsem-
inni þaðan í gegnum Skype-síma-
forritið og tölvupóst.
Nýlega var greint frá því að
heildarverðmæti af útflutningi
tölvuleikja á Íslandi hefði sexfald-
ast á síðastliðnum fjórum árum en
Haukur segir ekki hlaupið að því að
fá styrki til tölvuleikjagerðar. „Við
fengum fimm milljón króna styrk í
október frá Norræna sjónvarps- og
kvikmyndasjóðnum og hann hefur
fleytt okkur ótrúlega langt. Þessi
styrkur frá MEDIA er síðan mik-
ill heiður því þar voru ansi marg-
ir um hituna.“ Engu að síður á enn
eftir að taka mörg skref og Haukur
kveðst ekki reiðubúinn til að áætla
hvað gerð tölvuleikjarins eigi eftir
að kosta þegar allt kemur til alls.
„Ég get svarað því í ágúst, þá liggja
fyrir niðurstöður úr alls kyns til-
raunum og prófunum.“
Tölvuleikurinn verður hlutverka-
leikur og mun væntanlega gera
börnum kleift að hanna sína eigin
HAUKUR SIGURJÓNSSON: HLUTVERKALEIKUR FYRIR BÖRN
Tölvuleikur eftir íslenskri
teiknimynd fær risastyrk
persónu. Að því leyti minnir hann á
netleikinn Club Penguin sem notið
hefur mikilla vinsælda hjá börnum
um allan heim, meðal annars hér á
Íslandi. „Við viljum hins vegar hafa
söguþráð í okkar leik, að börnin
geti fengið verkefni og klárað þau
og fengið í kjölfarið hrós eða verð-
laun frá Æsunum.“
freyrgigja@frettabladid.is
TEKUR SINN TÍMA
Tölvuleikur byggður á teiknimyndinni
Hetjur Valhallar – Þór fer væntanlega
á netið á næsta ári. Tölvuleikurinn
fékk nýverið styrk frá MEDIA-sjóðnum
upp á 24 milljónir, sem þykir mikill
heiður. Haukur Sigurjónsson, fram-
kvæmdastjóri CAOZ Games, segir ekki
hlaupið að því að fá styrki til að gera
tölvuleiki og því komi þetta sér vel.
„Let’s Get It Started með Black
Eyed Peas. Því er blastað
þegar það á að vera föstudags
föstudags.“
Halldór Högurður fáráðgjafi.
ÚTGÁFUTÓNLEIKAR
LÖGREGLUKÓRSINS
6.MAÍ 2011 KL.20:00
AUSTURBÆR – SNORRABRAUT 37
MIÐASALA:
WWW.MIDI.IS