Fréttablaðið - 13.05.2011, Page 25

Fréttablaðið - 13.05.2011, Page 25
Sölufulltrúi: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Teiknismiðja og fjölskylduleiðsögn verður í Ásmundasafni klukkan 15 á sunnudag og verða teikningar myndhöggvarans Ásmundar Sveinssonar notaðar sem uppspretta. Byrjað verður á að fara um sýninguna Frá hugmynd að höggmynd - Teikningar Ásmundar Sveinssonar en að því búnu fá allir að spreyta sig á því að teikna. D ansarinn Kara Hergils Valdimarsdóttir er dugleg í eldhúsinu. Það kemur ekki endilega til af góðu en hún er haldin fiski- og kjúklingaofnæmi og fannst hún tilneydd að prófa sig áfram til að geta haldið áfram að borða góðan mat þrátt fyrir ofnæmið. „Ég borða mikið af grænmeti og ávöxtum og reyni að gera það spennandi,“ segir Kara, sem gefur sýnishorn af mat sem er henni að skapi. Hún er í þann mund að útskrif- ast af listdansbraut Listaháskóla Íslands með BA-gráðu í samtíma- dansi og frumsýnir tvö útskriftar- verk í Gaflaraleikhúsinu í kvöld. „Mataræði mitt fer ágætlega saman við dansinn, enda er gott að fá sér eitthvað létt en orku- mikið fyrir sýningar,“ segir Kara. Fyrra verkið, The Genius of the Crowd, er eftir Tony Vezich en hið síðara, How Did You Know Frankie, er unnið í samvinnu við Sveinbjörgu Þórhallsdóttur. Fyrra verkið er kraftmikið dans- verk sem krefst mikils af dönsur- unum hvað varðar líkamlegan styrk og úthald en hið seinna er leikhússkotið verk unnið út frá dauðasyndunum sjö. Sýningarnar verða fimm talsins. vera@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ/GVA 1 eggaldin truffluolía salt og pipar 1 mozzarella-kúla Skerið eggaldin niður í ræmur og veltið upp úr truffluolíu. Saltið og piprið eftir smekk. Grillið í um það bil 10 mínútur á hvorri hlið. Sumarsalat: spínat gul og rauð paprika tómatar agúrka ferskur ananas rauð vínber avocado mangó döðlur fetaostur balsamik edik Skerið niður og blandið saman. Hellið fetaosti og ediki yfir. GRILLAÐ EGGALDIN MEÐ MOZZARELLA OG FERSKU SUMARSALATI Fyrir 2-4 Kara Hergils er haldin prótínofnæmi og hefur þurft að rýna í mataræðið. Við það vaknaði matgæðingur. Borðar létt en orkumikið

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.