Fréttablaðið - 13.05.2011, Qupperneq 48
13. maí 2011 FÖSTUDAGUR
Bækur ★★
Sláttur
Hildur Knútsdóttir
JPV-útgáfa
Búa tilfinningarnar í hjartanu? Og
ef svo er verða þær þá eftir þegar
hjartað er flutt í aðra manneskju?
Man hjartað hvern það elskaði í
fyrri kroppi? Er líffæri bara líf-
færi eða er það hluti af
því hver við erum sem
manneskjur? Þessum
spurningum veltir Hildur
Knútsdóttir upp í fyrstu
skáldsögu sinni, Slætti.
Önnur aðalsöguhetjan er
Edda, 24 ára hjartaþegi
sem upplifir breytingar
á þrám og löngunum við
hjartaskiptin. Hin aðal-
persónan er Eysteinn,
sjö ára skyggn drengur
sem missti móður sína
í bílslysi þegar hann
var tveggja ára. Leið-
ir þeirra liggja saman
fyrir tilviljun með óafturkræfum
áhrifum á líf beggja.
Sláttur er prýðilega byggð saga
og ágætlega skrifuð, samtöl eðli-
leg og flestar persónurnar trú-
verðugar. Samt sem áður geng-
ur dæmið illa upp. Jafnvel þótt
við gefum okkur það að ástin búi
í hjartanu hvernig fer hjartað þá
að því að þekkja þann elskaða?
Og hvernig fer hinn elskaði að því
að þekkja hjarta ástvinar í öðrum
líkama? Hugsanlega mætti skýra
slíkt með „vöðvaminni“ en hér er
engin tilraun gerð til þess og raun-
ar margítrekað að taugarnar frá
hjartanu hafi allar verið klipptar
í aðgerðinni og það sé því ekki
Mitt hjarta eða þitt?
raunverulegur hluti af nýja líkam-
anum. Þemað um hina ódauðlegu
ást sem í hjartanu býr er þekkt úr
ýmsum misvel heppnuðum Holly-
wood-myndum og Sláttur fylgir
formúlu þeirra út í æsar. Hér er
dansað á barmi væmninnar, hver
klisjan rekur aðra og auk þess
að vera fullkomlega fyrirsjáan-
leg er sagan ansi langt frá því að
vera trúverðug. Endirinn er einn
sá snubbóttasti sem sögur fara af,
munaði minnstu að maður hringdi
í forlagið og spyrði hvort það
væri ekki galli í upp-
laginu, hvort ekki
vantaði nokkrar
síður?
Ýmislegt er þó
skemmtilega unnið í
sögunni. Samskipti
Eddu við ofurstjórn-
sama móður sína og
sálfræðinginn sem
móðirin lætur hana
ganga til eru bæði
kómísk og ljúfsár og
óttinn og reiðin sem
ævilangur sjúkdóm-
ur veldur komast vel
til skila. Samskipti
Eysteins við föður sinn og stjúpa
eru einnig mjög vel unnin og ótti
drengsins við skyggnina skilar sér
vel. Það fer ekkert á milli mála að
höfundurinn er fínasti penni og
kann að segja sögu, en þessi saga
er hvorki fullhugsuð né fullskrif-
uð. Hér hefði forlagið átt að grípa
inn í og benda á það sem miður
fer. Það er mikill misskilningur að
ungum höfundum sé greiði gerður
með því að gefa út hálfköruð verk
þeirra. Friðrika Benónýsdóttir
Niðurstaða: Ágætlega stíluð saga, en
ófullburða og klisjukennd.
Útskriftardansnemar við Listaháskóla Íslands
frumsýna í kvöld tvö dansverk í Gaflaraleikhúsinu
í Hafnarfirði, The Genius of the Crowd eftir Tony
Venich og How Did You Know Frankie? eftir Svein-
björgu Þórhallsdóttur.
Níu útskrifast af samtímadansbraut leiklistar-
deildar Listaháskóla Íslands í vor. Þetta er í annað
sinn sem deildin útskrifar dansara með BA-gráðu
en fyrri hópurinn útskrifaðist fyrir tveimur árum.
Undanfarnar vikur hafa útskriftarnemarnir
unnið með danshöfundunum Tony Vezich og Svein-
björgu Þórhallsdóttur að síðustu uppfærslum
sínum við skólann og árangurinn má sjá í upp-
færslunum The Genius of the Crowd og How Did
You Know Frankie? The Genius of the Crowd er
kraftmikið dansverk sem byggir á tækni sem
dansararnir stunda öll námsár sín við skólann og
kallast „Release the Beast“. How Did You Know
Frankie? er leikhússkotið dansverk sem er unnið út
frá dauðasyndunum sjö og tóku nemendurnir virkan
þátt í sköpun sýningarinnar.
Dansarar í báðum sýningunum eru Austeja Vil-
kaityte, Ásrún Magnúsdóttir, Kara Hergils, Marie
Bergby Handeland, María Þórdís Ólafsdóttir, Lea
Vendelbo Petersen, Lotta Suomi og Þyri Huld Árna-
dóttir. Sýningin í kvöld hefst klukkan 20 en verkin
verða sýnd fimm sinnum. Nánari upplýsingar um
sýningartíma má finna á lhi.is.
Síðasti dansinn fyrir útskrift
ÚR ÚTSKRIFTARSÝNINGUNNI Þetta er annar árgangurinn sem
útskrifast af listdansbraut leiklistardeildar Listaháskóla Íslands.
Þriðja og síðasta sýningin á
Óperudraugnum, í nýrri leik-
gerð Guðrúnar Ásmundsdóttur,
verður í Hofi á Akureyri á sunnu-
dag. Óperudraugurinn er einn
vinsælasti söngleikur samtím-
ans og hefur þegar verið sýndur
fyrir fullu húsi í Skagafirði og
Reykjavík.
Uppfærslan er samstarfsverk-
efni Draumaradda norðursins
og Óperu Skagafjarðar. Leik-
stjórn er í höndum Guðrúnar
Ásmundsdóttur og Alexöndru
Chernyshovu, en sú síðarnefnda
hefur verið ein aðaldriffjöðurin
í tónlistarflórunni á Norðurlandi
vestra. Alls koma 45 manns fram
í sýningunni. Michael Jón Clarke
fer með hlutverk sjálfs Óperu-
draugsins í sýningunni en Alex-
andra Chernyshova leikur hans
heittelskuðu. Af öðrum einsöngv-
urum má nefna Ívar Helgason,
Dagrúnu Ísabellu Leifsdóttur og
Snorra Snorrason. - kg
Lokasýn-
ing Óperu-
draugsins
á Akureyri
ÓPERUDRAUGURINN Frá uppfærslu
Radda norðursins og Óperu Skaga-
fjarðar.