Fréttablaðið - 13.05.2011, Síða 62

Fréttablaðið - 13.05.2011, Síða 62
13. maí 2011 FÖSTUDAGUR46 FÖSTUDAGSLAGIÐ Björn Bragi Arnarsson, ritstjóri Monitor, og Þórunn Antonía Magnúsdóttir úr Steindanum okkar hafa verið ráðin til að stjórna vikulegum sjónvarpsþætti á Stöð 2. Þátturinn á að koma í staðinn fyrir Audda og Sveppa, sem hefur verið á dagskrá á föstu- dagskvöldum síðan í janúar 2009. „Við ætlum að gera þrusugóð- an þátt og skemmtilegan,“ segir Björn Bragi en þættirnir eiga að hefjast í haust. Um hálftíma langan skemmti- þátt verður að ræða fyrir ungt fólk á öllum aldri. „Þetta er algjör draumur. Þetta er mjög skemmti- legt og krefjandi verkefni.“ Björn Bragi er ekki alveg ókunnur sjón- varpsforminu, hann hefur verið með Monitor-sjónvarpsþætti á netinu sem notið hafa töluverðra vinsælda. „Þetta hefur verið fín reynsla og það hefur verið ótrúlega skemmtilegur tími að byggja þetta vikublað upp síðan það kom í mars í fyrra. Monitor TV hefur einnig gengið rosalega vel en þetta verður klárlega skref upp á við og meira krefjandi en áður,“ segir hann um nýja þátt- inn á Stöð 2. Einnig stendur til að aukaefni verði á síðunni Visir.is. Björn Bragi, sem er 26 ára, mun starfa áfram hjá Monitor þangað til eftirmaður hans verður fund- inn. Vinna við sjónvarpsþáttinn hefst síðan í sumar. Þórunn Antonía hefur leikið í grínþáttunum Steindinn okkar og hefur því góða reynslu úr sjón- varpi. Hún er að vonum spennt fyrir nýja þættinum. „Ég hlakka mikið til að taka þátt í þessu verk- efni og mér líst rosalega vel á það.“ Aðspurð segir hún að vissu- lega sé það draumur að stjórna eigin sjónvarpsþætti. „Þetta er rosalega skemmtilegt starf. Það er í þessum listageira sem mig hefur langað að halda mig inni í. Það verður gaman að sjá hvað verður úr þessu.“ Þórunn er einnig frambærileg söngkona sem hefur m.a. unnið með bandaríska tónlistarmann- inum Beck. Nýtt lag frá henni og popparanum Berndsen kemur ein- mitt út í dag og nefnist það Out of Touch. „Þetta er sumarslagari. Ég var búin að semja eitthvert kassa- gítarvæl en ákvað að það væri ekki stemningin og ákvað að breyta mér í poppstjörnu í smá stund í anda Kylie Minogue.“ freyr@frettabladid.is BJÖRN BRAGI ARNARSSON: ÆTLUM AÐ GERA ÞRUSUGÓÐAN ÞÁTT Nýr skemmtiþáttur tekur við af Audda og Sveppa MEÐ NÝJAN ÞÁTT Björn Bragi Arnarsson og Þórunn Antonía Magnúsdóttir stjórna nýjum skemmtiþætti næsta vetur. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA „Ég er forfallinn Eurovision-sjúklingur. Hef lifað tímana tvenna og man ekki eftir maí þar sem ég fylgdist ekki með Eurovision,“ segir þúsundþjalasmiðurinn Gunnar Sigurðarson. Gunnar og Viðar Ingi Pétursson, félagi hans úr útvarpsþættinum sáluga Grút- varp, lýsa Eurovision-keppninni á morgun í beinni útsendingu á útvarpsstöðinni X977. Gunnar segist vera að svara kalli þjóðar- innar, en nokkur óánægja var með fjarveru Sigmars Guðmundssonar í undankeppninni á þriðjudaginn. „Eins og þú veist kannski hefur verið gríðarleg undiralda í þjóðfélaginu vegna óánægju með að X-maðurinn Sigmar sé ekki að lýsa keppninni,“ segir Gunnar alvarlegur. „Ég held að útvarpsstöðin hafi fundið fyrir þessum þrýstingi.“ Gunnar segist ekkert hafa út á lýsingu Hrafnhildar Halldórsdóttur að setja, enda fylgdist hann með undankeppninni í breska ríkissjónvarpinu BBC. „Ég veit að það var allt brjálað vegna þess að Sigmar var ekki, en ég get ekki dæmt frammistöðu hennar,“ segir hann. Gunnar segir Eurovision-keppnina gefa ýmsar pólitískar vísbendingar og fullyrðir að hún lýsi stjórnmálasamstarfi þjóða, þjóð- erniskennd og jafnvel umræðu um Evrópu- sambandið. „Eurovision er ekki bara ein- hverjir meikaðir samkynhneigðir strákar heldur er keppnin pólitísk saga og menning þjóða,“ segir hann, „Við ætlum að upplýsa og fræða hlustandann – ekki bara í stjórnmála- sögu, heldur líka um árangur í Eurovison.“ - afb Eurovision ekki bara hommar með meik LÝSA EUROVISION Gunnar og Viðar hyggjast miðla þekkingu sinni á Eurovision og málefnum Evrópu í beinni útsendingu á X-inu á morgun. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR „Bandaríkjamarkaður er talinn einn sá erfiðasti að komast inn á. Þrátt fyrir það viljum við reyna við markaðinn, þar sem við telj- um að vörurnar okkar eigi vel heima þar,“ segir Sigrún Lilja Guðjónsdóttir, framkvæmda- stjóri og hönnuður tískumerkis- ins Gyðja Collection. Gyðja hefur opnað söluskrif- stofu í Bandaríkjunum, nánar tiltekið í borginni sólríku Miami. Skrifstofan sér um sölu og dreif- ingu á vörum Gyðju og Sigrún segir opnun skrifstofunnar hafa verið í undirbúningi í nokkurn tíma. „Ég er búin að vera þónokkuð í Bandaríkjunum að skoða mark- aðinn og kynna mér aðstæður,“ segir Sigrún. „Við höfum verið á sýningum í Bandaríkjunum og fengið góð viðbrögð og náð að selja vörurnar okkar. Það er helst viðskiptaumhverfið þarna og að vera staðsett svona langt frá markaðnum sem hefur gert okkur erfitt fyrir.“ Að sögn Sigrúnar var því borð- leggjandi að opna skrifstofu í Bandaríkjunum. Höfuðstöðvar Gyðju verða þó eftir sem áður á Íslandi. „Og við ætlum ekki að breyta því þar sem við erum jú íslenskt merki og sækjum inn- blásturinn úr einstakri náttúru okkar,“ segir Sigrún. - afb Gyðjan opnar skrifstofu í Miami TIL MIAMI Gyðja Collection, tískumerki Sigrúnar Lilju Guð- jónsdóttur, hefur opnað skrif- stofu í borginni sólríku Miami. „Dauði með Skálmöld. Mér finnst titill þessa lags eitthvað svo lýsandi fyrir föstudags- stemninguna eftir að ég hætti að drekka.“ Sigmar Guðmundsson sjónvarpsmaður. Pantaðu í síma 565 600 0 eða á w ww.som i.is Frí heim sending * FERSKT & ÞÆGILEGT TORTILLA VEISLUBAKKI EÐALBAKKI LÚXUSBAKKI DESERTBAKKI GAMLI GÓÐI TORTILLA OSTABAKKI 30 bitar 30 bitar 20 bitar 20 bitar 20 bitar 50 bitar Fyrir 10 manns ÁVAXTABAKKI Hver samlokubakki er hæfilegur fyrir fjóra eða fimm. *Frí heimsending gildir aðeins ef pantaðir eru 4 eða fleiri bakkar.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.