Fréttablaðið - 26.05.2011, Blaðsíða 37

Fréttablaðið - 26.05.2011, Blaðsíða 37
Skoðaðu nýja og spennandi staði og taktu þér far með einhverju af þeim 15 flugfélögum sem fljúga frá Íslandi á árinu. Prófaðu Dohop leitarvélina á Vísi, flug og gisting, öll hagstæðustu tilboðin á einum stað. I ljóshærð, hávaxin og úr Verzlunar- skólanum. Þetta eru hlutir sem geta ekki skemmt fyrir.“ Þú ert í beinni, sérð að Brynjar er farinn að svitna og titra. Hvað gerirðu? „Ég segi: „Rólegur, þetta var bara píku- prump“ og svo set ég Britney í gang.“ Af hverju tala stelpur alltaf um píkuprump þegar þær eru með uppistand? „Af því það er svo fokkings fyndið dæmi. Ef þið Mið- Ísland gæjar væruð með vagínur þá mynduð þið skilja það, ég hugsa samt að Dóri þekki þetta.“ Mið-Ísland – ríða, drepa, giftast, sleppa? „Ég myndi fara í orgíu með ykkur öllum. Ég hugsa að það væri geðveikt fyndið. Svo myndi ég drepa Dóra og sleppa Jóhanni fram af byggingu. Loks myndi ég giftast Bergi Ebba en Ari væri leynilegur elsk- hugi minn.“ Eru strákarnir sem tóku þátt í upp- standskeppninni í Versló ekki abbó? „Jú, algerlega. Ég held að þetta tap muni há þeim að ei- lífu.“ Hvort heillar meira, uppistandið eða út- varpsmennskan? Eða jafnvel leiklistin? „Leiklistin heillar mig ótrúlega mikið. Útvarpsmennskan er líka mjög spennandi og uppistandið líka. Þetta er svona gullin þrenna.“ Er ekki ljóst að þig vantar millinafn til að þetta fljúgi algerlega í útvarpinu. Margrét Mjöll milli fjögur og sex, eitthvað slíkt? Einhverjar uppá- stungur? „Nei, alls ekki. Mar- grét Björns er nefni- lega svo gott. Þetta er sterkt og glæsilegt nafn. Þú veist að þú getur alltaf treyst Margréti Björns. Mar- grét Björns svíkur þig ekki.“ Nú er þversumma tölunnar 957, 21. Og þversumma tölunnar 21 er 3. 3 er tala trúarinnar og heilagrar þrenningar. Því liggur beint við að spyrja, ertu trúuð? „Ég trúi bara á sjálfa mig. Djók. Nei, ég er ekki alveg nógu trúuð en ég fermdist og allt svoleiðis. Ég bara veit ekki alveg með þennan Guð.“ Er ekki kjörið að þú verðir næsta Magga massi? Kemur til greina að fara að stera sig og kjöta sig verulega fyrir sumarið? „Jú, ég er virkilega heit fyrir því að verða næsta Magga massi. Ég man að gamli frjálsíþróttaþjálfarinn minn vildi gera mig að sleggjukastara. Ef ég hefði fetað þá braut væri ég í frekar góðum málum en ég myndi sjá fram á langt og strangt æf- ingasumar. Ég þyrfti samt að fá mér annað nafn fyrst Magga massi er upptekið, spurning með Grétu grjót?“ Verslunarskólinn, þriðji besti framhalds- skóli landsins. Ræðið? „Þetta er algjört kjaftæði náttúrlega. Og hvað? Á MR að vera bestur? Þetta er bara rugl. Verzlunar- skólinn er langflott- asti og besti skólinn. Enda sjáum við það að besta fólkið kemur úr Verzló eins og t.d. Klara í Nylon, Hemmi Gunn og gæinn með íþróttafréttirnar. Við ræðum þetta ekkert frekar.“ Þrátt fyrir að þú hafir landað plássi á FM 957, liggur ekki leiðin ávallt niður á við eftir að hafa deilt sviði með Mið-Íslandi og Pétri Jóhanni? „Alls ekki. Ég byrjaði á toppnum og verð þar.“ Nú er töluverður aldursmunur á þér og Brynjari. Er þetta hluti af einhverju trendi í þjóðfélaginu? „Já, algjörlega. Sveinn Andri startaði nýju snilldartrendi, Anna Mjöll kom svo grjóthörð á eftir honum og mér fannst ég þurfa að fylgja þessu þotuliði eftir.“ SPYRLARNIR: MIÐ-ÍSLAND Strákarnir í Mið-Íslandi eru heitari en hraunhnullungar í Gríms- vötnum þessa dagana. Þeir héldu gríðarlega vinsæl mánaðarleg uppistandskvöld í vetur og vinna nú að sjónvarpsþáttum sem verða frumsýndir í vetur. Margrét Björnsdóttir kom einmitt fram á einu af uppistandskvöldum hópsins og það var því kjörið að fá þá til að yfirheyra hana. Á myndinni eru Mið-Íslandsdrengirnir ásamt Ragnari Hanssyni, leikstjóra og andlegum leiðtoga hópsins, við framleiðslu sjónvarpsþáttanna. ÐI NÝJU A MJÖLL KOM SVO ONUM OG MÉR FANNST ESSU ÞOTULIÐI EFTIR.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.