Fréttablaðið - 26.05.2011, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 26.05.2011, Blaðsíða 14
26. maí 2011 FIMMTUDAGUR14 FRÉTTASKÝRING: Jón Steinsson, lektor í hagfræði, gagnrýnir kvótafrumvarp sjávarútvegsráðherra MBA-NÁM ALÞJÓÐLEGT STJÓRNENDANÁM VIÐ HR www.hr.is 95% útskrifaðra bættu stöðu sína á vinnumarkaði. 99% sögðust betri starfsmenn. 99% juku sjálfstraust sitt í starfi. (Viðhorfskönnun MBA nemanda 2002– 2010) Kynntu þér námið og bókaðu viðtal hjá verkefnastjóra. Fjárfestu í sjálfum þér Hrafnhildur Hafsteinsdóttir, verkefnastjóri hrafnhildur@hr.is UMSÓKNARFRESTUR ER TIL 5. JÚNÍ Jón Steinsson, lektor í hag- fræði við Columbia-háskóla, hefur sent Alþingi ýtarlega umsögn um nýtt frumvarp sjávarútvegsráðherra um breytingar á kvótakerfinu. Fréttablaðið heldur áfram að skoða frumvarpið og fjallar hér um umsögn Jóns. Hagfræðingurinn Jón Steinsson, lektor við Columbia-háskóla í Bandaríkjunum, hefur töluvert skrifað um mögulegur breyting- ar á fiskveiðistjórnunarkerfinu á síðustu misserum. Jón hefur talað fyrir svokallaðri leigutil- boðsleið, sem er útfærsla á fyrn- ingarleiðinni sem ríkisstjórn- i n h u g ð i s t upphaflega fara í breytingum á kvótakerfinu, en tilboðsleiðin var sett fram af Jóni og Þor- keli Helgasyni stærðfræðingi. Þá hefur Jón stungið upp á því að deilurnar um kvótakerf- ið verði til lykta leiddar með þjóðaratkvæðagreiðslu þar sem kosið yrði á milli frumvarps frá ríkisstjórninni og frumvarps frá Landssambandi íslenskra útvegsmanna. Jón gerir margvíslegar athuga- semdir við fyrirliggjandi frum- varp í umsögninni. Hann er afar gagnrýninn á bann við veð- setningu aflaheimilda og þær takmarkanir sem gerðar eru á framsali samkvæmt frumvarp- inu. Hann óttast jafnframt að með frumvarpinu séu sjávar- útvegsráðherra færð of víðtæk völd til þess að haga stjórn fisk- veiða eftir eigin höfði. Loks telur hann frumvarpið skapa töluverða óvissu um framtíð greinarinnar þar sem það mun einungis gilda í mest 23 ár verði það að lögum. Þá setur Jón fram mat á því hve hátt veiðigjald sjávarútvegurinn þolir og því hvernig auðlinda- arðurinn í sjávarútvegi skiptist milli hins opinbera og útgerðar- innar verði frumvarpið að veru- leika og jafnframt hve mikið af hlut hins opinbera rynni til byggðamála. Auðlindaarð eða auðlindarentu má skilgreina sem þann hagnað sem til verður við nýtingu takmarkaðrar auðlindar umfram það sem tíðkast í öðrum greinum en samkvæmt viðtekn- um kenningum hefur skattlagning rentu mun minni skaðleg áhrif en annars konar skattlagning. Hvernig skiptist auðlindarentan? Verði fyrirliggjandi frumvarp að lögum er það mat Jóns að um 30 prósent af auðlindaarðinum verði innheimt í gegnum veiðigjald og í gegnum uppboð á veiðiheim- ildum á svokölluðu kvótaþingi. Skilar veiðigjald 20 prósentum og uppboð 10 prósentum. Þar að auki verður 5 prósentum af auð- lindaarðinum varið til byggða- mála í gegnum strandveiðipott og byggðapott. Eftir standa því 65 prósent af auðlindaarðinum sem verða áfram í höndum núverandi handhafa. Jón varar hins vegar við því að töluverð hætta sé á samráði í uppboðum á aflaheimildum, ekki síst þar sem fáir aðilar ráða yfir stærstum hluta heimilda eins og gildir um loðnu, síld og makríl hér á landi. Uppboðin þurfi því að hanna með það að markmiði að lágmarka hættuna á samráði. Jóhanna Sigurðardóttir forsætis- ráðherra og aðrir forystu- menn ríkisstjórnarinnar hafa ítrekað lýst því yfir að sann- gjarn hluti auðlindaarðsins af sjávarútveginum eigi að renna til þjóðarinnar. Jón bætir því við í mati sínu að samkvæmt frum- varpinu séu þessi 30 til 35 prósent því sá hluti. Óhagkvæmni aukin Jón telur nokkra þætti frumvarps- ins líklega til að auka óhagkvæmni í sjávarútvegi til muna. Fyrir það fyrsta er það mat Jóns að sá hluti kvóta sem ráðstafað er til strand- veiða og sem byggðakvóta muni aukast um 50 prósent frá því sem nú er og verða um 5 prósent af heildarkvóta. Þessi ráðstöfun, og þar með aukningin, valdi veru- legu fráviki frá hagkvæmri stjórn fiskveiða. Strandveiðar séu í raun veiðar þar sem keppst er um að ná sem mestu á land áður en pottur- inn klárast en slíkri hegðun fylgi offjárfesting og sóun. Byggðakvót- ar séu aftur á móti veittir á póli- tískum forsendum og víki þar með frá hagkvæmnissjónarmiðum. Þá sé hægt að ná fram sömu mark- miðum á hagkvæmari máta. Í frumvarpinu eru settar veru- legar takmarkanir við framsal á aflaheimildum og veðsetning þeirra bönnuð. Jón segir þessi ákvæði afskaplega óskynsamleg. Verði beint framsal bannað muni menn selja sig út úr greininni óbeint með því að selja fyrirtæk- in sem hafa aflaheimildir í stað heimildanna sjálfra. Bann við veðsetningu geri nýliðum erfið- ara fyrir að hasla sér völl í grein- inni þar sem það geri fjármögnun kaupa á útgerðarfyrirtækjum og aflaheimildum erfiðari en ella. Bannið dragi því úr hagræðingu í sjávarútvegi og til lengri tíma þeim ábata sem þjóðin hefur af fiskveiðum. Breytingar á veiðigjaldi Í frumvarpi sjávarútvegsráð- herra felst sú breyting að útreikn- ingar á upphæð veiðigjaldsins í sjávarútvegi skuli grundvallast á aflaverðmæti margfölduðu með sama hlutfalli og hlutfall vergr- ar hlutdeildar fjármagns er í rekstraryfirliti fiskveiða sem Hag- stofan birtir. Jón telur þá breytingu til bóta en um sé að ræða ágæt- an mælikvarða á auðlindaarðinn í sjávarútvegi. Þó þurfi að hafa í huga að útgerðir hafa sterka hvata vegna hlutaskiptakerfis sjómanna til að selja afla til tengdra aðilda á undirverði. Þannig geti þeir fært hluta auðlindaarðsins til vinnsl- unnar til dæmis en þar með nær veiðigjaldið ekki til nema hluta auðlindaarðsins. Á móti kemur að ársgreiðsla sem miðast við eðlileg- an arð af skipum, frystihúsum og öðrum fjárfestingum er ekki dreg- in frá þegar veiðigjaldið er reikn- að út. Með ofangreint í huga er það mat Jóns að veiðigjaldið muni jafngilda 25 prósent af auðlinda- arðinum sem verður til við veiðar aflaheimilda sem úthlutað er með nýtingarsamningum. Þá megi telja ólíklegt að slíkt gjald hafi merkj- anleg áhrif á rekstrarskilyrði í greininni. Frumvarpið eykur óhagkvæmni Magnús Þorlákur Lúðvíksson magnusl@frettabladid.is SJÁVARÚTVEGUR Jón telur ljóst að hækkun veiðigjalds hafi engin áhrif á framtíðarrekstrargrundvöll sjávarútvegsins. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM JÓN STEINSSON Í greinargerð sinni tekur Jón upp spurninguna hve hátt veiðigjald sjávarút- vegurinn þolir. Hann segir að hægt sé að svara þeirri spurningu á tvennan hátt. Sé markmiðið að tryggja að veiðigjaldið hamli ekki hagkvæmri fjár- festingu í greininni almennt þurfi veiðigjaldið að taka mið af auðlindaarð- inum. Engin hætta sé hins vegar á því að það veiðigjald sem frumvarpið gerir ráð fyrir íþyngi greininni það mikið að það hafi áhrif á fjárfestingar og rekstur til lengri tíma. Sé hins vegar litið á málið út frá sjónarhóli núverandi eigenda sjávarút- vegsfyrirtækja í stað rekstrargrundvallar í greininni sé svarið annað. Jón telur þó hinn raunverulega vanda vera að mörg fyrirtæki í greininni hafa skuldsett sig upp í topp og muni því líklega þurfa að ganga í gegnum fjárhagslega endur skipulagningu verði veiðigjaldið hækkað. Erfitt sé hins vegar að meta hve mikið sé hægt að hækka veiðigjaldið áður en þau fyrirtæki þyrftu að fara í endurskipulagningu. Slík endurskipulagning komi hins vegar ekki niður á starfsfólki fyrirtækjanna eða starfsemi þeirra að nokkru leyti. Því eigi að vera nokkurt rúm til að hækka veiðigjaldið. Hve mikið veiðigjald þolir útgerðin?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.