Fréttablaðið - 01.06.2011, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 01.06.2011, Blaðsíða 4
1. júní 2011 MIÐVIKUDAGUR4 SKIPULAGSMÁL Eigendur hússins við Baldursgötu 32 skulda Reykjavíkurborg nú 6,4 milljón- ir króna í dagsektir, samkvæmt upplýsingum frá byggingafull- trúa borgarinnar. Húsið hefur staðið autt í sex ár og er einungis brunarústir eftir að kveikt var í því árið 2008. Baldursgata 34, sem er í eigu sama fyrirtækis, er nú að fara sömu leið, en búið er að negla þar fyrir alla glugga eftir að síð- ustu húsráðendur fluttu þaðan út. Vel yfir hundrað milljónir króna hvíla á lóðunum tveimur, að sögn Helga Gunnarssonar, forsvars- manns Baldursgötu ehf. Hann segir kaupin á húsunum hafa verið verstu mistök sem hann hafi gert. „Við keyptum húsin árið 2005 og næstu árin á eftir skiptist afar ört um meirihluta í borg- inni, þannig að skipulagsmálin byrjuðu alltaf upp á nýtt. Svo var allri uppbyggingu harðlega mót- mælt af nágrönnunum,“ segir Helgi. „Pólitíkin á stóran þátt í því hvernig þetta var fyrst og svo kom bankahrunið strax á eftir.“ Varðandi Baldursgötu 34, sem hefur staðið auð í tæpan mánuð, segir Helgi að ekki hafi verið neitt annað hægt að gera en að loka húsinu. „Óreiðufólk braust inn í húsið og flutti þangað inn. Við létum einfaldlega hreinsa það út og lokuðum fyrir allt,“ segir hann. Helgi vill ekki tjá sig um fram- haldið, en segir málin vera í vinnslu. „Þetta er alveg skelfileg staða. Það eru mestu mistök sem við höfum gert að kaupa þessi hús,“ segir hann og bætir við að ef leysa eigi vandamálin sem fylgi niðurníddum húsum í miðborg- inni sé frekar letjandi en hvetj- andi að beita fólk dagsektum. Borgin eigi að koma mun meira að þessum málum en hún hafi gert. „Pólitíkin ber sína ábyrgð, þó að við höfum sjálfsögðu líka gert mistök. Þetta byrjaði sem mjög góð hugmynd, en endaði alveg skelfilega.“ Hópur íbúa við Þórsgötu hefur sent Reykjavíkurborg bréf þar sem aðgerða er krafist vegna húsanna við Baldursgötu. Lilja Gunnarsdóttir, einn íbúanna, segir að þegar hús númer 34 hafi einnig lagst í eyði fyrr í mánuðinum hafi mælirinn orðið fullur. „Við erum búin að vera þolin- móðir nágrannar í mörg ár, en þegar við sáum seinna húsið fara líka var okkur nóg boðið,“ segir hún. „Þetta er náttúrlega ekki boðlegt.“ Magnús Sædal, bygginga- fulltrúi Reykjavíkur, segir málin vera í vinnslu. Ekkert hafi verið ákveðið um aðgerðir að svo stöddu. sunna@frettabladid.is GENGIÐ 31.05.2011 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 221,137 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 114,58 115,12 189,04 189,96 164,97 165,89 22,123 22,253 21,276 21,402 18,538 18,646 1,4041 1,4123 183,3 184,4 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hendrik Sigurðsson hendrik@frettabladid.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Hallgrímsdóttir sigridurh@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is FANGELSISMÁL Útboð byggingar nýs fangelsis er að bresta á, að sögn Ögmundar Jónassonar innanríkisráðherra. Málið er á dagskrá ríkis- stjórnarinnar næstkomandi föstudag. „Það þýðir vonandi að við fáum niðurstöðu í málið, ekki síðar en á þriðjudag,“ segir innan- ríkisráðherra. „Það er einhugur um að bjóða út fangelsið. Það sem hefur verið til umræðu er í hvaða formi útboðið eigi að vera, hvort þetta eigi að vera opinber framkvæmd eða einkaframkvæmd. Það er mjög brýnt að útboð nýs fangelsis komist á rekspöl hið allra fyrsta. Það hefur tafist um nokkrar vikur að hefja útboðið enda ekki hristir fram úr erminni tveir milljarðar sem áætlað er að fangelsið kosti.“ Ráðherra útskýrir að þegar hann hafi komið að málinu hafi hugmyndin verið sú að bjóða fangelsið út í einkaframkvæmd, nokkuð sem hann hafi rakið til Alþjóðagjaldeyris- sjóðsins og þeirrar hugmyndafræði sem hann stendur fyrir. „Nú heyri ég að hann sé ekki að setja þessa kröfu fram nema þá óbeint í kröfunni um að ná hallalausum fjárlögum sem fyrst. Slíkt væri þó bara bókhaldsatriði því ef við reisum fangelsi þá borgar ríkið hverja einustu krónu framkvæmdarinnar hvort sem það er einka- framkvæmd eða opinber framkvæmd. Einka- framkvæmd þýðir að ríkið felur einkaaðila að reisa fangelsið og leigir það síðan af honum. Það er dýrari kostur og við hljótum að gera það sem er ódýrast og hagkvæmast.“ - jss Innanríkisráðherra leggur áherslu á að rekstur nýs fangelsis verði sem hagkvæmastur: Útboð byggingar nýs fangelsis að bresta á ÖGMUNDUR JÓNASSON Innanríkisráðherra segir hag- kvæmara að nýtt fangelsi verði reist með opinberri framkvæmd. VEÐURSPÁ Alicante Basel Berlín Billund Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 22° 20° 19° 17° 16° 11° 17° 17° 22° 20° 20° 30° 32° 17° 18° 16° 19° Á MORGUN 3-10 m/s. FÖSTUDAGUR 5-13 m/s. 5 8 8 8 10 6 8 10 10 9 4 7 4 5 9 5 4 2 3 3 3 6 8 12 10 5 7 8 10 9 7 ÞOKKALEGA MILT í veðri á landinu næstu daga. Hitinn ætti að komast í 15°C þar sem hlýjast verður suðvestan til í dag. Á morgun, uppstigningardag, verður besta veðrið austanlands, en þar verður vindur hægur, bjart og hitinn víða 10-14 stig. Elísabet Margeirsdóttir veður- fréttamaður Skuldar 6,4 milljónir í dag- sektir vegna Baldursgötu Dagsektir hrannast upp hjá Baldursgötu ehf. vegna húss við Baldursgötu 32. Íbúar við Þórsgötu krefjast þess að Reykjavíkurborg grípi til aðgerða. Verstu mistök sem ég hef gert eru að kaupa þessi hús, segir eigandinn. Íbúar á Þórsgötu skora á skipulags- og borgaryfirvöld að fella úr gildi heimilað byggingarmagn fyrir lóðirnar Baldursgötu 32 og 34. Ástæður fyrir því eru vanræksla eigenda og hvernig staðið var að nýju deiliskipulagi árið 2007. Íbúarnir segja enn fremur að borgaryfirvöld hafi ekki gætt hagsmuna hverfisins. „Ekki er sanngjarnt að braskarar geti keypt lóðir, knúið fram aukið bygg- ingarmagn og haldið heilu hverfunum í gíslingu. Það er okkar mat að samþykkt deiliskipulag vegna Baldursgötu 32 og 34 sé ákaflega óréttlátt gagnvart íbúum í kring. Íbúum, sem hafa fasta búsetu á svæðinu, sumir hafa búið hér áratugum saman og margir hafa áhuga á að búa í hverfinu um ókominn tíma. Eigendur Baldursgötu ehf. hafa hins vegar engan áhuga á að búa í hverfinu sjálfir, þeir hafa eingöngu áhuga á að byggja sem stærst og selja það dýrt,“ segir í bréfi til borgarinnar. Þess er óskað að borgin fylgist betur með málum þar sem stundað er kennitölubrask og misnotkun á einkahlutafélögum. Óskað er eftir því að yfirvöld taki til endurskoðunar deiliskipulagið fyrir Baldursgötureit. Skora á yfirvöld að grípa til aðgerða ÓSÁTTIR ÍBÚAR Íbúar við Þórsgötu eru afar ósáttir við brunarústirnar við Baldurs- götu og næsta hús sem hefur nú einnig lagst í eyði. Hópurinn krefur borgina um aðgerðir. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Við erum búin að vera þolinmóðir nágrannar í mörg ár, en þegar við sáum seinna húsið fara líka var okkur nóg boðið. LILJA GUNNARSDÓTTIR ÍBÚI VIÐ ÞÓRSGÖTU ELDGOS Fjársöfnun meðal íslenskra fyrirtækja vegna eld- gossins í Grímsvötnum fer vel af stað. Þegar hafa safnast 20 til 35 milljónir króna í sjóð sem settur var á fót til að veita bændum og starfsemi á gossvæðinu fjárhags- legan stuðning. Söfnunin fer fram í samráði við Samtök atvinnulífsins, en skipuð hefur verið fjögurra manna verk- efnisstjórn. Tengiliður hennar er Guðni Ágústsson, fyrrverandi ráðherra. - mþl Söfnun vegna eldgossins: Fyrirtækjasöfn- unin byrjar vel PORTÚGAL, AP Hvorki sósíalistar né sósíaldemókratar fá meirihluta í þingkosningunum í Portúgal um helgina samkvæmt skoðana- könnunum. Sósíalistum, með José Socrates forsætisráðherra í farar- broddi, er spáð 35 prósentum og stjórnarandstæðingunum í Sósíal- demókrataflokknum, með Pedro Passos Coelho í fararbroddi, álíka miklu. Þrír minni flokkar njóta langtum minni stuðnings. Pattstaðan gæti orðið til þess að illa gangi að ná samstöðu um efnahagsmálin, sem enn myndi auka á vanda bæði Portúgals og annarra evruríkja. - gb Kosið í Portúgal á sunnudag: Virðist stefna í nýja pattstöðu VONGÓÐUR Pedro Passos Coelho von- ast til að taka við efnahagsvandanum af Socrates. NORDICPHOTOS/AFP
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.