Fréttablaðið - 01.06.2011, Síða 10
1. júní 2011 MIÐVIKUDAGUR
KRÓKHÁLSI 5 - 110 REYKJAVÍK - SÍMI 517 8050
MÁN. TIL FÖS.- 9 TIL 18 /// LAU. - 10 TIL 16
AÐEINS
54.900,-
TILBOÐ AÐEINS
49.900,-
TILBOÐ AÐEINS
45.900,-
TILBOÐ AÐEINS
89.900,-
TILBOÐ AÐEINS
104.900,-
TILBOÐ AÐEINS
52.720,-
TILBOÐ AÐEINS
59.900,-
TILBOÐ AÐEINS
89.900,-
TILBOÐ AÐEINS
74.900,-
ÓDÝRA
VEIÐIBÚÐIN
STJÓRNMÁL Samfylkingin áréttir að flokkurinn hafi
keypt þjónustu af fjölmörgum aðilum í hótel- og
veitingahúsarekstri á síðustu árum. Í tilkynningu
frá flokknum segir að Samfylkingin forðist ekki á
nokkurn hátt að nýta þjónustu aðila sem tilheyri
Samtökum ferðaþjónustunnar (SAF).
„Ljóst er að skilaboðin sem koma fram í tilkynn-
ingu [SAF] eiga ekki við nokkur rök að styðjast hvað
Samfylkinguna varðar,“ segir í tilkynningunni.
Var þetta sent í kjölfar tilkynningar frá SAF sem
birtist í fjölmiðlum í gær. Þar sagði að það hefði
vakið athygli fyrirtækja sem leigðu út ráðstefnusali
að stjórnmálaflokkar hefðu að undanförnu haldið
flokksþing sín í skólastofnunum og þyrftu þar af leið-
andi ekki að greiða virðisaukaskatt af húsaleigunni.
Samtökin nefndu dæmi þar sem sagt var að flokk-
ar Vinstri grænna og Samfylkingar hefðu haldið
fundi og flokksþing í skólum landsins í stað þess að
kaupa þjónustu ráðstefnusala.
Auður Lilja Erlingsdóttir, framkvæmdastýra VG,
tekur undir ábendingar SAF og segir gott að þeim
skuli haldið á lofti. Hins vegar liggi gildar ástæður
að baki því að VG hafi tvívegis fundað í skóla og þar
sé með engu verið að forðast að borga virðisauka-
skatt. Ráðstefnusalir hafi ýmist verið uppbókaðir
sökum lítils fyrirvara eða verið að dreifa fundar-
stöðum jafnt milli svæða. - sv
Stjórnarflokkarnir segjast ekki forðast þjónustu skattlagðra fyrirtækja:
Vísar ásökunum SAF á bug
SAMFÉLAGSMÁL „Tryggingastofnun
á í samstarfi við fjölmarga aðila
vegna endurhæfingar. Þessir aðil-
ar hafa tekið verulega vel við sér
og brugðist hratt við ástandinu og
það ber að þakka.“
Þetta segir Sigríður Lillý
Baldurs dóttur, forstjóri Trygg-
ingastofnunar ríkisins, vegna
athugasemda á vef Alþýðusam-
bands Íslands, ASÍ, um að hún hafi
ekki nefnt samstarfið við Virk-
Starfsendurhæfingarsjóð í viðtali
í Fréttablaðinu nýverið.
Sigríður Lillý sagði þar að lík-
lega hafi hægt á fjölgun öryrkja
vegna aðgerða
stjórnvalda
undanfarin ár.
Þau hefðu grip-
ið til margvís-
legra úrræða
t i l þess að
tryggja end-
urhæfingu og
virkni í kjölfar
atvinnumissis
og heilsubrests.
„Ég tek undir
þau orð Gylfa Arnbjörnssonar,
forseta ASÍ, að starfsemi á borð
við þá sem Virk býður upp á sé
einnig mikilvæg til þess að bregð-
ast við fjölgun öryrkja. Við höfum
reynt það af góðu samstarfi við
Virk að þar er vel að verki staðið.“
- ibs
Forstjóri Tryggingastofnunar segir starfað með fjölmörgum vegna endurhæfingar:
Brugðust hratt við ástandinu
SIGRÍÐUR LILLÝ
BALDURSDÓTTIR
ÞINGFLOKKSFUNDUR SAMFYLKINGARINNAR Samfylkingin
segir skilaboðin frá SAF ekki eiga við nein rök að styðjast.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
KJARAMÁL Elín Björg Jónsdóttir,
formaður BSRB, segir viðræður
vegna kjarasamninga ganga vel og
hafa fjögur aðildarfélög bandalags-
ins náð samkomulagi við viðsemj-
endur sína á síðustu dögum.
Kjölur, stéttarfélag starfsmanna
í almannaþjónustu, og SFR, stéttar-
félag í almannaþjónustu, skrifuðu
undir samninga við ríkið og Sam-
flot, samtök bæjarstarfsmanna-
félaga, samdi við samninganefnd
sveitarfélaga. Þá sömdu flugum-
ferðastjórar við Isavia og aflýstu
með því öllum verkfallsaðgerðum,
en þar hafði verið yfirvinnubann í
gildi um nokkra hríð.
Þrír fyrstnefndu samningarnir
eru á svipuðum nótum og stóru
samningarnir sem tókust milli ASÍ
og Samtaka atvinnulífsins. Um það
bil helmingurinn af vinnumarkað-
inum féll undir þá samninga og
Elín Björg segir að með þeim hafi
hlutirnir farið að hreyfast.
„Um leið og þeir voru frágengnir
fóru steinarnir að losna úr stíflunni
og nú er kominn góður skriður á
þessi mál.“
Hún bætti því við að bréf sem
BSRB barst nýlega frá ríkisstjórn-
inni, þar sem tíunduð var afstaða
stjórnvalda gagnvart kjarasamn-
ingum opinberra starfsmanna,
hafi einnig liðkað fyrir samnings-
ferlinu. Þar var meðal annars lögð
áhersla á að eyða kynbundnum
launamun og vinna í lífeyris-
sjóðsmálum.
Elín Björg telur að dregið geti til
tíðinda á næstunni, en þó sé ekki
enn farið að sjá fyrir endann á
samningahrinunni.
„Enn eiga 23 félög eftir að semja
og þar af eru sum félög með marga
samninga, þannig að það er mikið
eftir enn. Það er hins vegar góður
gangur á þessu og ásetningur til að
landa samningum,“ segir Elín.
Magnús Pétursson ríkis -
sáttasemjari segir í samtali við
Fréttablaðið að mikill erill sé í
húsakynnum hans þessa dagana.
Þar voru til dæmis fulltrúar Starfs-
greinasambandsins, SFR, BHM og
hjúkrunarfræðingar við samninga í
gær. Samiðn og Rafiðnaðarsamband
Íslands náðu saman í gær.
„Þetta er að vinnast ágætlega
og það er fullt í öllum okkar sölum
og rúmlega það þessa dagana.“
Magnús segir þó að margt sé enn
óunnið enda séu liðlega 300 kjara-
samningar í landinu.
„En þessu miðar öllu vel og það er
hugur í fólki að halda áfram.“
thorgils@frettabladid.is
Fjögur aðildarfélög
BSRB náð samningi
Fjögur aðildarfélög BSRB hafa náð samningum við ríki og sveitarfélög undan-
farna daga. Formaður bandalagsins segir viðræður ganga vel þótt enn sé nokk-
uð í land hjá mörgum. Mikið er að gera í Karphúsinu og allir salir þéttsetnir.
VIÐRÆÐUR GANGA VEL Elín Björg Jónsdóttir, formaður BSRB, segir að hreyfing hafi
komið á samingaviðræður opinberra starfsmanna eftir að ASÍ og SA náðu saman.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Starfsemi á borð við
þá sem Virk býður
upp á [er] einnig mikilvæg til
þess að bregðast við fjölgun
öryrkja.
SIGRÍÐUR LILLÝ BALDURSDÓTTIR
FORSTJÓRI TRYGGINGASTOFNUNAR
Þetta er að vinnast
ágætlega og það er
fullt í öllum okkar sölum og
rúmlega það þessa dagana.
MAGNÚS PÉTURSSON
RÍKISSÁTTASEMJARI