Fréttablaðið - 01.06.2011, Page 26

Fréttablaðið - 01.06.2011, Page 26
MARKAÐURINN1. JÚNÍ 2011 MIÐVIKUDAGUR4 Ú T T E K T Sjávarklasinn er sprottinn upp úr doktorsverkefni Þórs Vigfús- sonar í alþjóðaviðskiptum við Háskóla Íslands. Kortlagning- in hófst í fyrra og er áætlað að ljúka henni í haust. Verkefnið er unnið innan Viðskiptafræði- stofnunar Háskóla Íslands, en fjölmörg fyrirtæki leggja til upplýsingar og hafa aðstoðað við fjármögnun. Tveir starfs- menn vinna við verkið auk Þórs. Þór segir mér að hugmyndin hafi kviknað þegar hann var að rannsaka lítil tæknifyrirtæki í tengslum við doktorsnámið. „Þar lagði ég áherslu á tengsla- netið og það hvernig frumkvöðl- ar nýttu sér það til að styrkja fyrirtæki sín, komast til út- landa og annað í þá veruna. Við rannsóknina sá ég mun á milli greina, þar á meðal hjá fyrir- tækjum sem tengdust sjávarút- vegi. Þar voru ákveðin einkenni sem voru áhugaverð. Þau voru þrátt fyrir allt ekki í miklum samskiptum hvert við annað eða innan atvinnugreinarinnar líkt og tíðkast hjá leikjafyrirtækjum. Lítil samskipti innan sjávarklasans Hugmyndasmiðurinn segir misskilning að upprunaland fyrirtækja opni dyr erlendis. Þ að er eins og það þyki ekki fínt að tilheyra þessum klasa. Hluti af vinnu okkar er að koma fólki í skilning um að þarna eru vannýtt tækifæri. Við þurfum að fá fólk til að skynja það og að sækja eigi á þessi mið,“ segir Þór Sigfússon, fyrrverandi forstjóri Tryggingafélagsins Sjóvár. Þór og samstarfsfólk hans kynnti í síðustu viku verkefnið Sjávarklas- ann. Vettvangurinn var viðeigandi; Bryggjan í Sjóminjasafninu Víkinni úti á Grandagarði í Reykjavík. Þar voru mættir framámenn íslenskra fyrirtækja sem tengjast sjávarútvegi með einum eða öðrum hætti á bryggju- polla innan um síldartunnur og talíur, dvergútgáfur af hluta skipa með upp- ábúnum káetum og vaxmynd af full- klæddum sjómanni við það að stíga um borð. Á meðan kynningunni vatt fram syntu fiskar fram og aftur við bryggjusporðinn. Markmið Sjávarklasans felst í því að kortleggja alla starfsemi sem teng- ist hafinu og fyrirtækjum sem horfa til hafs hér á landi. Jafnframt snýr verkefnið að því að kanna tengsl ólíkra greina innan sjávarklasans og gera tilraun til að greina þau tækifæri sem geta falist í samstarfi fyrirtækja. Sambærileg vinna hefur verið innt af hendi í nokkrum öðrum löndum upp á síðkastið, svo sem á Nýja-Sjálandi, í Bretlandi og Noregi. Nálgun þeirra er með öðrum hætti en hér auk þess sem þau horfa á aðra þætti, svo sem hlut olíu í norskri landhelgi. Því er ekki að skipta hér. Umfang fyrirtækja sem tengd eru sjávarútveginum hefur aldrei verið kannað hér fyrr en nú. VERÐMÆTI Í KLASANUM Samstarf, hagræði og verðmæta- sköpun sem felst í klasavinnu hefur verið í umræðunni hér og utan land- steina um nokkurra ára skeið. Michael Porter, prófessor við Harvard-háskóla í Bandaríkjunum, hefur lengi talað fyrir áhrifum klasa á þróun fyrir- tækja og lífskjör. Síðast gerði hann það hér í fyrirlestri seint á síðasta ári í tengslum við þau tækifæri sem hann taldi geta falist í jarðvarmaauðlind- unum og þeirri þekkingu á nýtingu þeirra, sem hefur byggst upp hér á landi til að skapa arðvænlega, alþjóð- lega atvinnustarfsemi. Porter sagði mikilvægt að horfa fram á við, leita að tækifærum landsins og grípa þau. Þór er á sama máli, hann segir fólk sem starfar í fyrirtækjum sem tengj- ast sjávarútvegi sjá mörg tækifæri. „Fólk sér þau bæði í framleiðslu- greinum í fiskeldi, lýsi og fiskimjöli, frekari úrvinnslu sjávarafurða og allri annarri úrvinnslu, svo sem ensímfyrirtækin og líftæknifyrirtæk- in sem vinna úr fiskinum lyf og fæðu- bótarefni,“ segir hann. „Við verðum að átta okkur á umfangi starfseminnar. Þetta gengur út á að skapa verðmæti út úr klasanum í þeim skilningi að þau fyrirtæki sem þar eiga heima geti tengst honum og gengið í takt. Þegar því er lokið getum við áttað okkur á því hvaða tækifæri kunni að vera þar.“ Eins og fram kom í máli Guðmundar Kristjánssonar, forstjóra Brims, á kynningarfundinum í síðustu viku, eru takmörkuð tækifæri í hefðbundn- um veiðum og vinnslu. Þar eru mögu- leikarnir takmarkaðir við hvaða fisk megi veiða í sjónum. Að hans mati geta fyrirtækin sem heyra undir sjávarklasann aukið verðmæti aflans með nýsköpun. UMFANG HAFSINS Nú er búið að skilgreina allar atvinnu- greinar sem tengjast sjávarklasan- um og hversu mikið þær eiga undir sjávarútveginum. Horft er til þess að matið gefi til kynna hvar þjóðin er sterkust í haftengdri starfsemi og hvar tækifærin liggja. „Við höfum metið beint og óbeint framlag sjávarútvegs, bæði til landsframleiðslu og atvinnusköpun- ar. Síðan höfum við verið að kort- leggja hvaða fyrirtæki falla inn í hvaða kassa fyrir sig,“ segir Linda Björk Bryndísardóttir, nemi í hag- fræði og annar tveggja verkefnis- stjóra Sjávarklasans. Starf Lindu fólst í því að meta hlut sjávarútvegs og þjóðhagslega arðsemi greinarinnar. Linda kafaði í bókhald sjávarútvegsfyrirtækja sem ráða yfir tuttugu prósentum aflaheimilda á Ís- landsmiðum og fann þar dýrmætar upplýsingar sem gerðu henni kleift að draga upp nokkuð skýra mynd af því við hvaða fyrirtæki sjávarútvegurinn á helst viðskipti við. Brot af niðurstöðum Lindu eins og þær liggja nú fyrir má sjá í töflu á næstu síðu sem sýnir hvaða fyrir- tæki eiga mest undir sjávarútvegin- um. Til marks um það hversu lifandi verkefnið er eru nýrri upplýsingar hér en kynntar voru á Bryggjunni í síðustu viku. Sjávarútvegur er meira en grun FRÁ BRYGGJUPOLLANUM Umfang sjávarklasans var kynnt á Sjóminjasafninu á Grandagarði að viðstöddum forsvarsmönnum úr íslensku atvinnulífi, útgerð og fj með einum eða öðrum hætti. F Y R I R T Æ K J A K L A S I N N Í K R I N G U M S J Á V A R Ú T V E G I N N Rannsóknir, menntun og þjálfun Sjávarútvegur og tengd matvælavinnsla Flutninga- og hafna- starfsemi Þjónusta, ráðgjöf og fjármálastarfsemi Tæknibúnaður fyrir vinnslu og veiðar Sala, markaðssetn- ing og dreifing Stjórnun auðlinda, eftirlit og vöktun Fiskeldi Græn orka upplýs- ingatækni á hafinu Haftengd ferðaþjónusta Lífvirk efni hafsins Landgrunnið og sjóefni Nákvæm kortlagning á sjávarútveginum og öllum þeim fyrirtækjum sem horfa til hafs hefur staðið yfir í tæpt ár. Þetta er einstakt verk hér á landi. Þór Sigfússon átti hugmyndina að verkefninu. Hann segir í samtali við Jón Aðalstein Bergsveinsson að fyrirtæki í sjávarklas- anum þurfi að vinna meira saman.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.