Fréttablaðið - 01.06.2011, Blaðsíða 34
SÍMA NÚM ER MARKAÐARINS: 512 5000, fax: 512 5301, rit stjorn@markadurinn.is Aug lýs ingadeild: auglys ing ar@markadurinn.is Veffang: visir.is
B A N K A H Ó L F I Ð 25.000 433.000 5,4manns, eða þar um bil, eru nú á vanskilaskrá. Íslendingar verða líklega til árið 2060, samkvæmt spá Hagstofunnar. milljarða skuldir og skuldbindingar hvíla á Sandgerðisbæ.
Forkólfar í bandaríska frum-
kvöðla geiranum steggjuðu vin
sinn hér á landi um fyrri helgi. Það
hefði ekki verið í frásögur færandi
ef fluginu heim hefði ekki verið
frestað þegar gaus í Grímsvötnum.
Þess vegna misstu þeir af opnun
frumkvöðlaráðstefnunnar Tech-
crunch Disrupt sem haldin var í
New York í síðustu viku. Meðal
strandaglópa voru stórvesírar
frá samskiptasíðunni Twitter,
Google og Microsoft. MG
Seigler, blaðamaður netmiðils -
ins, TechCrunch, var í hópnum
og skrifaði hann
líflegan pistil um
strandið fyrir
miðilinn frá bar í
miðborginni.
Strandaglópar
Gunnar Hólmsteinn Guð-
munds son, stofnandi og
framkvæmdastjóri Clara, sem
búsettur er í San Fransico þekkir
þá flesta sem tepptust hér. Eins
og frumkvöðla er háttur sá hann
tækifæri í svartnættinu. Hann
bauð þeim að skoða skrifstofur
Clara og blés síðan til lítillar
frumkvöðlaráðstefnu undir
yfirskriftinni TechCrunch
Erupt. Helsta framáfólki í
nýsköpunargeiranum hér var
boðið til fundarins á annarri
hæðinni í Kjörgarði við
Laugaveg. Fimmtíu
mættu, sem þykir
gott, ekki síst ef
tillit er tekið til þess
að ráðstefnan var
ákveðin með einnar
klukkustundar
fyrirvara.
Tækifæri í gosinu
Eignastýring • Markaðsviðskipti • Fyrirtækjaráðgjöf
Arctica Finance er framsækið, óháð og sjálfstætt
fjármálafyrirtæki sem hefur starfsleyfi frá Fjármálaeftirlitinu.
Fyrirtækið er í eigu starfsmanna sem búa að áralangri og
víðtækri reynslu af innlendum og erlendum fjármálamörkuðum.
www.arctica.is | Smáratorgi 3 | 201 Kópavogi | Sími 513 3300
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki
Guðmundur Arnar Guðmunds-
son, vörumerkjastjóri Ice-
landair og pistlahöfundur
Markaðarins um tíma, var
kjörinn formaður Ímark,
félags íslensks markaðs fólks,
á aðalfundi félagsins 18. maí
síðastliðinn. Hann tók við af
Gunnari B. Sigurgeirssyni,
markaðsstjóra Ölgerðarinnar.
Nokkrar breytingar urðu
á stjórninni, en þrír af sex
stjórnarmönnum hættu og
komu fjórir í þeirra stað. Nýir
stjórnarmenn eru Kristján Geir
Gunnarsson frá Nóa
Síríusi, Friðrik
Larsen hjá
Háskólanum í
Reykjavík, Gísli
S. Brynjólfsson
úr Hvíta húsinu
og Guðrún Einars-
dóttir hjá
Nova.
Nýr formaður
ÍMARK