Fréttablaðið - 02.07.2011, Page 24
2 fjölskyldan
Fjölskyldan kemur út mánaðarlega með helgarblaði Fréttablaðsins. Ritstjórn:
Sólveig Gísladóttir Hönnun: Silja Ástþórsdóttir Forsíðumynd: Haraldur Guðjónsson
Pennar: Marta María Friðriksdóttir, Ragnheiður Tryggvadóttir, Þórdís Lilja Gunnars-
dóttir Ljósmyndir: Fréttablaðið Auglýsingar: Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir
sigridurdagny@365.is
Félagarnir Karíus og Baktus hafa gert mér lífið auðveldara síðustu mánuði. Eftir að dóttir mín heyrði af tilvist þessara ókræsilegu bræðra
varð tannburstunarstundin mikið ánægjulegri.
Engar mótbárur heyrast þegar burstinn er
nefndur á nafn og ef foreldrarnir virðast ætla
að gleyma tannhreinsuninni er sú stutta fljót að
minna þau á. Eini óverulegi ókostur inn er rútína
sem hefur orðið til í kjölfarið.
Dóttir mín er á „af hverju“ stiginu, öðru nafni rassálfa-
stiginu. Hún er forvitin um flesta hluti en síðan notar hún þessi tvö
stuttu orð líka til að pína út úr foreldrum sínum ítarlegar útskýringar
og sögur. Karíus og Baktus rútínan hljómar nokkurn veginn svona og
er endurtekin samviskusamlega bæði kvölds og morgna:
Mamma: Jæja nú skulum við bursta tennur!
Dóttir: Akkurru?
Mamma: Svo þær verði hreinar og fínar.
Dóttir: Akkurru?
Mamma: Svo Karíus og Baktus hafi ekkert að borða.
Dóttir: Akkurru?
Mamma: Svo þeir bori ekki í tennurnar þínar.
Dóttir: Akkurru?
Mamma: Vegna þess að þeim finnst það svo skemmtilegt.
Dóttir: Akkurru?
Mamma: Æ, ... af því bara.
Svangir bræður
Stærri Adrenalíngarður verður
opnaður á Nesjavöllum í dag. Nú á
vormánuðum hefur Adrenalín-
garðurinn verið stækkaður og honum
breytt þannig að hægt er að velja um
þrautir í eins, fimm og tíu metra hæð.
Einnig hafa verið settar upp tvær
nýjar svifbrautir, sem eru þær lengstu
á landinu.
Adrenalíngarðurinn býður upp á
afþreyingu og útivist fyrir fjölskyld-
una. Garðurinn er stór þrautabraut
þar sem hægt er að finna ólíkar
þrautir í mismunandi hæð. Í þrauta-
brautinni eru 45 þrautir í áður-
nefndum þremur mismunandi hæðum en hver og einn velur hvar hann vill byrja og síðan er hægt að
fikra sig hærra. Í garðinum er einnig stærsta róla landsins sem er tíu metra há og fólk ræður hversu
hátt er farið.
Frítt verður í Adrenalíngarðinn í dag fyrir þá sem bóka á netinu en nánari upplýsingar er að finna á
www.adrenalin.is.
Stærri Adrenalíngarður opnaður í dag
Sólveig Gísladóttir
skrifar
Þetta byrjaði allt árið 2006 þegar við vorum að leita eftir heppilegu sporti fyrir Andra Má. Ég mætti með
honum á æfingar og fannst þetta
spennandi,“ segir Hrefna Halldórs-
dóttir, sem smitaðist af klifuráhuga
sonarins og fór sjálf að prófa vegg-
ina meðan hann var á æfingum. Ári
síðar voru hún og yngri sonurinn
Hilmar bæði farin að klifra.
„Ég hef reyndar ekki verið nógu
dugleg undanfarið en þeir mæta
oft saman. Þeir klifra líka mikið
úti og við höfum farið í útilegur á
Hnappavelli á Öræfum en þar er
stærsta klifursvæðið á landinu. Þá
erum við bara að dunda okkur fjöl-
skyldan, þeir að klifra og við hjón-
in að tryggja þá,“ segir Hrefna, en
sá sem „tryggir“ heldur í línuna á
jörðu niðri og passar að klifrarinn
detti ekki. Sambandið milli þeirra
hlýtur því að þurfa að vera gott
– hefur klifrið styrkt fjölskyldu-
böndin?
„Já, ég er ekki frá því. Það
þarf auðvitað að treysta félagan-
um, hann er með líf þitt í lúkun-
um,“ segir Hrefna. „Við skemmt-
um okkar alltaf mjög vel saman,“
bætir hún við og Hilmar tekur
undir það. „Klifur er líka bara
svo fjölbreytt sport, það geta allir
verið í þessu. Svo er líka gott að
geta fengið far á æfingar,“ segir
hann hlæjandi.
„Það bindur fjölskylduna vel
saman þegar allir hafa áhuga á
því sama,“ segir Andri. „Við tölum
mikið saman um klifur og ráð-
leggjum hvert öðru.“
„Það sem er líka gott er að geta
hvers og eins skiptir ekki máli,
hver klifrar bara á sínum forsend-
um,“ segir Hrefna. Þegar hún er
spurð hvort klifur sé ekki hættu-
leg íþrótt hristir hún hausinn en
viðurkennir þó að verða stressuð
þegar strákarnir leggja á kletta-
vegginn.
„Ég fæ stundum hnút í magann
en ég held að klifrið kenni þeim að
taka ábyrgð og temja sér aga.“ - rat
Samferða á æfingar
Hrefna Halldórsdóttir klifrar upp um alla veggi ásamt sonum sínum tveim. Fjölskyldan fer
saman í útilegur til að klifra og er sammála um að klifur sé fjölskylduvænt sport.
Upp um alla veggi Hrefna fór að
prófa veggina meðan Andri var
á æfingu og fékk þar með klifur-
bakteríuna.
Mæðgin Hrefna Halldórsdóttir og Andri Már og Hilmar Ómarssynir æfa saman í Klifurhúsinu. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Úðabrúsi 5L
kr. 2.695
ALLTAF EITTHVAÐ NÝTT
Verkfæralagerinn
Smáratorgi 1, 201 Kópavogi, sími 588 6090, vl@simnet.is
Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-17, sun. kl. 13-17
Bílaþvottakústar
2.995 Bílabónvélar 3 gerðir
frá kr. 4.995
12V Fjöltengi
kr. 1.995
Straumbreytir
12V->230V
kr. 7.995
Straumbreytir
230V->12V
3.985
12/24V Framlenging
kr. 999
Reiðhjólafestingar á kúlu
F/2-hjól kr. 4.785
F/3-hjól kr. 9.760
ÚT Á GRANDA ÚT Á GRANDA
Grandagarði 3, 101 Reykjavík, Sími 552 9940
Opið mán.–fös. kl. 9–18. Laugard. kl. 9–16
Opið á sunnudögum í júní, júlí og ágúst.
Frábærir upplásnir bátar með hörðum botni sem pakkast í tösku og
smella í skottið á fjölskyldu bílnum ekkert kerru vesen ekkert vesen
með að geyma yfir vetur. Pumpa og árar fylgja.
3 STÆRÐIR
290cm 259.000 kr.
320 cm 279.000 kr.
360 cm 299.000 kr.
CE vottaðir bátar og samþykktir af siglingastofnun.
Léttir bátar sem þola allt að 20 hestafla mótor.
Frír Rafmagnsmótor fylgir
sem er rúmt hestafl að
vermæti 44.950 kr.
Takmarkað magn
Jaxon slöngubátur
Visa raðgreiðslur til 36 mán.
Vaxtalaust Visa lán til 6 mánaðaLeigjum einnig út bátana
BARNVÆNT