Fréttablaðið - 02.07.2011, Page 30
2. júlí 2011 LAUGARDAGUR2
SKÓGARHLÍÐ 12 105 REYKJAVÍK SÍMI 520 4700
www.hagvangur.is
Verkstæðisformaður
Upplýsingar veita:
Inga Steinunn Arnardóttir
inga@hagvangur.is
Brynhildur Halldórsdóttir
brynhildur@hagvangur.is
Umsóknarfrestur er til og
með 10. júlí nk.
Umsóknir óskast fylltar út á
www. hagvangur.isTeitur Jónasson ehf. óskar eftir verkstæðisformanni til starfa.
Starfssvið:
• Verkstjórn á verkstæði
• Innkaup á varahlutum og rekstrarvörum
• Áætlanagerð um viðgerðir á bílum
• Öll almenn verkstæðisvinna
• Umsjón með fyrirbyggjandi viðhaldi
Teitur Jónasson ehf. er alhliða ferðaþjónustufyrirtæki fyrir innlenda og erlenda ferðamenn.
Fyrirtækið hefur til umráða á fjórða tug hópferðabíla og strætisvagna, allt frá 9-86 manna
og getur því boðið upp á fjölbreyttan fararkost sem hentar við öll tækifæri. www.teitur.is
Hæfniskröfur:
• Reynsla af bílaviðgerðum, helst á stórum bílum
• Próf í bifvélavirkjun er kostur
• Reynsla af stjórnunarstörfum æskileg
• Sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð
• Góðir samskipta- og samstarfshæfileikar
SKÓGARHLÍÐ 12 105 REYKJAVÍK SÍMI 520 4700
www.hagvangur.is
Framleiðslustjóri í plastdeild
Upplýsingar veitir:
Þórir Þorvarðarson
thorir@hagvangur.is
Umsóknarfrestur er til og
með 10. júlí nk.
Umsóknir óskast fylltar út á
www. hagvangur.is
Plastprent auglýsir laust til umsóknar starf framleiðslustjóra í plastdeild sem heyrir
undir framkvæmdastjóra félagsins sem er jafnframt yfirmaður framleiðslusviðs.
Við leitum að áhugasömum og kraftmiklum einstaklingi sem er tilbúinn að
taka að sér verkstjórn í plastdeild félagsins og endurvinnslu. Afurðir plastdeildar
eru plastfilmur en afurðir endurvinnslunnar eru plasthráefni sem er notað til
framleiðslu á umhverfisvænum umbúðum.
Helstu verkefni:
• Verkstjórn í plast- og endurvinnsludeild.
• Innkaup á plasthráefnum og tengdum hráefnum.
• Þróun og áframhaldandi uppbygging á endurvinnslu
félagsins á plasti.
• Reglubundnar framleiðslu- og kostnaðar-
greiningaskýrslur.
• Þátttaka í vöruþróunarverkefnum.
• Afleysingar innan félagsins á skyldum sviðum.
Plastprent er leiðandi fyrirtæki í plastframleiðslu á Íslandi sem býður upp á
umbúðalausnir fyrir matvæli, iðnað og verslanir.
Hæfniskröfur og eiginleikar:
• Tækniskóla- og/eða háskólamenntun.
• Reynsla af framleiðslu og framleiðslustjórnun og
þekking á vélum og tækjum.
• Góð þekking á gæða- og framleiðslukerfum.
• Frumkvæði og fagmennska í starfi.
• Sjálfstæð og öguð vinnubrögð.
• Hugmyndaauðgi, frumkvæði og keppnisskap.
• Færni í samskiptum og þægilegt viðmót.
• Góð tölvukunnátta og þekking á framleiðslukerfum úr
Axapta/Navision.
• Gott vald á íslensku og ensku.