Fréttablaðið - 02.07.2011, Síða 70
2. júlí 2011 LAUGARDAGUR42
PERSÓNAN
Sveinbjörn Gísli Þorsteinsson
Aldur: Ég er ´77
módel.
Starf: Vinn við
ljósmyndun.
Búseta: 101
Reykjavík.
Hjúskapar-
staða: Ein-
hleypur.
Fjölskylda: For-
eldrar mínir eru
þau Gerður og
Þorsteinn.
Stjörnumerki:
Naut.
Sveinbjörn er betur þekktur sem Sveinbi
Superman og er orðinn þekktur fyrir
ljósmyndir sínar af skemmtanalífinu í
Reykjavík.
Tökum fyrir erlenda aðila hefur
fjölgað hér á landi undanfarið
þrátt fyrir tvö eldgos á rúmu ári.
Þetta segir Andrea Brabin, eig-
andi Eskimo umboðsskrifstofunn-
ar, sem leitar nú að þrjú hundruð
manns til að leika í erlendri aug-
lýsingu.
„Það er gaman að sjá hversu
mikið erlendum tökum hérlend-
is hefur fjölgað. Ég held að gosið
í Eyjafjallajökli hafi í rauninni
verið hin besta auglýsing fyrir
landið. Ég viðurkenni þó að maður
fékk í magann þegar gosið í Vatna-
jökli byrjaði en sem betur fer stóð
það stutt.“ Verið er að leita að
þrjú hundruð manns til að fara
með hlutverk í auglýsingu fyrir
Johnnie Walker. Viskíið er eitt það
vinsælasta í heimi og árlega selj-
ast yfir hundrað og þrjátíu milljón
flöskur af drykknum. Auglýsingin
sem tekin verður upp hér er ætluð
til heimssýningar og telst því ágæt
kynning á landinu.
Þegar hefur verið ráðið í aðal-
hlutverkið og sex önnur stærri
hlutverk en nú er verið að leita
að fólki til að taka þátt í nokkrum
fjöldasenum. Umsækjendur þurfa
þó að hafa náð tuttugu og fimm
ára aldri, þar sem um áfengisaug-
lýsingu er að ræða. Leikstjórarn-
ir eru engir nýgræðingar í aug-
lýsingagerð og hafa meðal annars
leikstýrt auglýsingu fyrir bíla-
framleiðandann Audi.
„Við erum að leita að fólki á
öllum aldri, stærðum og gerðum
til að taka þátt í stórri útisenu. Í
leiðinni nýtum við tækifærið til að
finna nýtt fólk á skrá hjá okkur,“
segir Andrea Brabin. Aðspurð seg-
ist hún ekki vita hver heildarkostn-
aðurinn við gerð auglýsingarinn-
ar verði en telur hana munu kosta
töluvert vegna mannfjöldans sem
að henni kemur. Áhugasamir geta
komið í prufu á skrifstofu Eskimo
á mánudaginn á milli 11 og 18.
- sm
Viskíauglýsing tekin upp á Íslandi
MIKIL LEIT Andrea Brabin leitar að þrjú
hundruð aukaleikurum í auglýsingu fyrir
Johnnie Walker viskíið.
„Ég gerði smá tilraun á sjálfri mér á fimmtu-
dagskvöldið þegar við sýndum Bíódaga. Og
ég var farin að sofa um miðja mynd,“ segir
Sigrún Stefánsdóttir, dagskrárstjóri RÚV.
Sjónvarpið hefur að undanförnu sýnt
íslenskar kvikmyndir á fimmtudags- og
sunnudagskvöldum. Kviksjá, kvikmynda-
þáttur Sigríðar Pétursdóttur, hefur verið
sýnd bæði á undan og eftir kvikmyndunum
á fimmtudagskvöldum en þar hefur útvarps-
og sjónvarpskonan rætt við Ásgrím Sverris-
son um myndirnar og tilurð þeirra. Sýning-
arnar hafa hlotið ágætis undirtektir en það
hefur hins vegar verið gagnrýnt hversu seint
myndirnar eru sýndar; þær eru iðulega ekki
búnar fyrr en um eða eftir miðnætti og þá
eru flestir landsmenn farnir að sofa enda
vinnudagur fram undan.
Sigrún lofar bót og betrun: „Fimmtudags-
myndirnar verða sýndar strax á
eftir tíufréttum og sunnudags-
myndirnar á eftir Land-
anum,“ segir Sigrún og
viðurkennir að fjöldi
fólks hafi sett sig í sam-
band og kvartað undan
sýningartímanum. Hún
bætir því hins vegar við
að það sé stefna RÚV að vera
með íslenskt efni á dagskrá
sinni og nefnir þar fjóra nýja
íslenska þætti sem hefja göngu
sína í júlí; Gulli byggir, Andri
á flandri, Með okkar eigin
augum og Grillað með Völla
Snæ. - fgg
Sigrún dagskrárstjóri sofnaði yfir Bíódögum
BREYTING Sigrún Stefánsdóttir náði
ekki að halda sér vakandi yfir Bíó-
dögum og nú hefur sýningartímum
íslensku bíómyndanna verið breytt.
Þær verða mun fyrr á dagskrá.
Bandalag íslenskra tónleikahald-
ara, BÍT, hefur verið stofnað hér á
landi. Markmiðið með samtökun-
um er að styrkja bakland tónleika-
haldara og verja hagsmuni þeirra.
„Þetta eru ákveðnir aðilar sem
hafa haldið tónleika á Íslandi
um árabil. Þetta eru náttúrulega
samkeppnisaðilar en á móti eru
ákveðnir hlutir sem er gott að
standa saman um,“ segir Grímur
Atlason, framkvæmdastjóri Ice-
land Airwaves, sem er í stjórn BÍT.
„Þegar þú ert alltaf sóló einhvers
staðar úti á túni er þetta mjög erf-
itt,“ segir hann og bætir við að
svona samtök þekkist
víða erlendis, meðal
annars í Bretlandi.
Formaður er
Ísleifur B. Þór-
hallsson og aðrir
sem sátu stofn-
fundinn voru Einar Bárðarson,
Þorsteinn Stephensen, Páll Eyj-
ólfsson, Steinþór Helgi Arnsteins-
son og Helgi Björnsson. Jakob
Frímann Magnússon, formaður
FTT, er oddamaður. „Hann bauð
mönnum skrifstofu til að halda
fundinn og kallaði menn saman,
sem var sniðugt. Mér fannst þetta
fyrst kannski óraunhæft en svo
fannst mér mjög gott að fólk tal-
aði saman,“ segir Grímur. „Þetta
er eins og Félag hljómplötuútgef-
enda. Þeir hittast og tala saman.
Þeir eiga sameiginlegra hags-
muna að gæta en þeir eru að keppa
grimmilega í plötubúðunum.“
Áður hefur verið reynt að sam-
eina tónleikahaldara í eina sæng
en án árangurs og núna virð-
ast menn tilbúnir til að sameina
krafta sína, kannski vegna krepp-
unnar og hennar fylgifiska.
Grímur nefnir að tónleikahald sé
ekki jafn ríkisstyrkt og aðrir geir-
ar tónlistar og því hafi verið mjög
áhættusamt fyrir menn að halda
tónleika. Oftast hafi þeir gert það
hver í sínu horni. „Þeir sem eru
reyndir eru farnir að átta sig á
hvernig þetta virkar. Allir þessir
aðilar hafa tapað peningum. Allir
hafa haldið góða tónleika en allir
hafa gert mistök,“ segir Grímur.
„Það er allt í lagi að deila þessum
mistökum. Svona vettvangur er
bara góður, líka fyrir miðakaup-
endur. Þeir geta treyst því sem er
að fara að gerast,“ segir hann og
á þar við að ákveðinn gæðastimp-
ill muni felast í vöru-
merkinu BÍT, eða PA
(Promoters Alliance)
eins og það útleggst
á ensku.
freyr@frettabladid.is
GRÍMUR ATLASON: ALLT Í LAGI AÐ DEILA MISTÖKUNUM
Tónleikahaldarar snúa
bökum saman og stofna BÍT
SNÚA BÖKUM SAMAN Frá vinstri: Einar Bárðarson, Steinþór
Helgi Arnsteinsson, Ísleifur B. Þórhallsson, Páll Eyjólfsson,
Grímur Atlason, Þorsteinn Stephensen og Helgi Björnsson
hafa snúið bökum saman og stofnað BÍT.
Ferðaskrifstofa
AUSTFAR - Fjarðargötu 8 ·710 Seyðisfirði · Sími: 472 1111
NORRÆNA FERÐASKRIFSTOFAN - Stangarhyl 1 · 110 Reykjavik · Sími: 570 8600
WWW.SMYRIL-LINE.IS
FERÐAPOTTUR
- SMYRIL LINE -
28.000
Innifalið: Sigling til og frá Danmörku eða Færeyja
með bíl að 4.9 m á lengd og að 1.9 m á hæð, gisting
i fjögurra m. klefa án glugga, skattar og önnur
aukagjöld.
Verð m.v. tvo ásamt bíl er kr. 75.500
eða kr. 37.500 á mann.
Aðeins 20 klefar í sölu og gildir fram til kl.17:00
þriðjudaginn 5 júlí.
Verð m.v. fjóra í fjögurra m. klefa án glugga
ásamt bíl er kr. 112.000 eða kr. 28.000 á mann.
Smyril Line býður nú frábært tilboð
með Norrænu til Danmerkur
Farið út þann 7. júlí og heim frá
Danmörku þ. 26.7 og frá Færeyjum þ. 27.7