Fréttablaðið - 28.07.2011, Blaðsíða 1
veðrið í dag
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
Sími: 512 5000
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup apríl - júní 2011
Fimmtudagur
skoðun 20
2 SÉRBLÖÐ
í Fréttablaðinu
Allt
Gleraugu
28. júlí 2011
174. tölublað 11. árgangur
GLERAUGUFIMMTUDAGUR 28. JÚLÍ 2011 KynningarblaðBörnHeilsaTískaFréttir
Fróðleikur
Þegar velja skal gleraugu fyrir börnin er mikilvægt að foreldrar séu meðvitaðir um það sem er nauðsynlegt við valið. Gleraugun mega ekki vera of þung og ættu ekki að móta andlit barnsins um of.
Einfaldleikinn bestur„Það sem ég legg áherslu á við foreldra er að barnagleraugu séu ekki eingöngu keypt vegna þess að þau séu merkt sérstöku vöru-merki sem er í uppáhaldi hjá barninu,“ segir Kjartan Krist-jánsson, sjónfræðingur og eig-andi Optical Studio verslana. „Frekar eiga þau að vera þægi-leg fyrir barnið, létt og brotaþol-in sem er stór þáttur. Þá mega gleraugun ekki bera andlitið of-urliði í of þykkum og dökkum tónum heldur er betra að hafa einfaldleikann að leiðarljósi. Öllu máli skiptir að gleraugun trufli ekki barnið í öllu sínu atgervi til dæmis við leik, hlaup og snöggar hreyfingar og þá segir sig sjálft að þyngdin skiptir gríðarlegu máli. Þau verða að vera létt en um leið mjög sterk.“Kjartan segir að boðið sé upp á þriggja ára ábyrgð án skilyrða á umgjörðum. „Sem þýðir að ný umgjörð er afgreidd ef umgjörð-in brotnar eða fer í sundur. Slíkt skiptir miklu máli fyrir foreldra sem þurfa að sjá börnum fyrir gleraugum frá unga aldri og fram eftir aldri.“
Lindberg, skrúfulausar umgjarðirPaul-Jörn Lindberg er löngu orðinn heimsfrægur fyrir sína einstöku hönnun á gleraugnaumgjörðum, en í meira en 30 ár hefur hann þróað gleraugnaumgjörð sem gæti verið í senn léttasta og sterkast gleraugna-umgjörð í heimi. Lindberg Kid/
Teen umgjörðin er sex sinnum léttari en hefðbundnar umgjarð-ir og vegur aðeins 0,01% af þyngd 6 ára barns. Umgjörðin er skrúfu-laus en gerð úr títanvír sem snú-inn er saman og er hún því um leið sveigjanleg og sterk. Fyrir yngstu börnin eru gleraugun sérsmíðuð í
þeirri stærð sem hentar barninu. Lindberg hefur hlotið fjölda al-þjóðlegra hönnunarviðurkenninga fyrir hönnun sína en Kjartan segir að með framleiðslu sinni vilji Lind-berg koma því til skila með jákvæð-um formerkjum til foreldra að ekk-ert sé nógu gott fyrir börnin þeirra.
Optical Studio hefur í meira en 20 ár verið umboðs- og söluaðili fyrir Lindberg umgjarðir á Íslandi. Gott orðspor á gleraugnamarkaðin-um er ekki síst vegna þessara frá-bæru gleraugnaumgjarða og starfs-fólks Optical Studio sem leggur alúð sína í að veita sem besta þjónustu.
Kjartan Kristjánsson segir að barnagleraugu eigi að vera þægileg fyrir börnin. MYND/ANTON
HEIMSFRÆG BARNAGLERAUGU
Nýtt frá
Sölufulltrúar: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Snorri Snorrason snorris@365.is 512 5457Davíð Helgi Andrésson lærði fatahönnun í dönskum lýðháskóla með 27 stelpum og hannaði flík sem minnir á smekkbuxur
H gsar út fyrir
rammann
Á hugi Davíðs Helga Andrés-sonar á fatahönnun kviknaði í valáfanga í Menntaskólanum við Sund. Þaðan lá leið hans í lýðháskólann Den Danske Skandinav-iske Design Højskole. „Í danska skól-anum lærði ég fatahönnun ásamt 27 stelpum sem höfðu saumað síðan þær voru litlar,“ segir Davíð sem var eini strákuri n á brautinni og bætir við: „Þess vegna hjálpuðu stelpurnar og kennararnir mér mikið.“Á sex mánuðum vann Davíð ólík verkefni sem hvert hafði sérstakt þema. Síðustu vikuna í skól um fengu nemendur þó að hanna eftir sínu höfði og leit hann þá til hug-myndar sem hann hafði teiknað upp í menntaskóla. Útkoman var flík sem samanstendur af jakka-fatabuxum og áföstu vesti. „Við hönnunina fékk ég innblástur frá smekkbuxum,“ segir Davíð og bætir við: „Mér finnst karlmannafata-hönnuðir hafa þröngan
Óskrifaðar tískureglur eru ófáar. Ein leggur algert bann við því að hafa sama naglalakk á tám og fingrum. Það verður að vera hvort í sínum litnum. Eins mætti hafa annaðhvort fingur eða tær ólakkaðar á móti lit.
teg 42026 - frábær og flottur í BC skálum á kr. 4.600,- buxur í stíl á kr. 1.990,-
Laugavegi 178 - Sími: 551 3366 Opið mán.-fös. 10-18.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.misty.is
Vertu vinur
STÆKKAR ÞIG UM NÚMER !
Fólkið í
landinu les
Fréttablaðið
Prentmiðlakönnun Capacent Gallup.
18-49 ára á höfuðborgarsvæðinu.
Meðallestur á tölublað, apr.-jún 2011
Í fatahönnun með
27 stelpum
Davíð Helgi Andrésson hugsar
út fyrir rammann.
allt 1
Furðulega sannspár
Hugleikur Dagsson teiknaði
skopmynd um dauða Amy
Winehouse fyrir tveimur
árum.
fólk 50
Fimmtíu ár frá fyrsta
blokkflaututímanum
Gísli Helgason gefur
út afmælisdisk með
Eyjalögum.
tímamót 24
TÍSKA Gullsmiðurinn Kristján
Eyjólfsson hefur fengið inngöngu
í hin virtu bresku samtök The
Goldsmiths‘ Company Directory,
sem eru lokuð samtök gullsmiða
í Bretlandi. Samtökin eiga rætur
sínar að rekja til þrettándu aldar
og eru meðlimir nú einungis þrjú
hundruð. Kristján er eini Íslend-
ingurinn í samtökunum.
„Stærstu nöfnin í gullsmíði í
Bretlandi eru meðal annarra í
þessum samtökum,“ segir Krist-
ján glaðlega og bætir við að þau
séu gífurlega virt í Bretlandi.
„Þetta þykir mikill heiður og
gæðastimpill.“ - mmf / sjá Allt
Fékk inngöngu í virt samtök:
Með þekktum
gullsmiðum
BJART AUSTANTIL en lítilsháttar
skúrir vestanlands. Vindur verður
fremur hægur af suðvestri og hitinn
á bilinu 10-20 stig, hlýjast austan-
lands.
VEÐUR 4
12 15
13 15
16
SAMFÉLAGSMÁL Forsvarsmenn
Bandalags íslenskra skáta (BÍS)
hafa rekið fjóra menn úr hreyf-
ingunni á undanförnum árum
eftir að upp komst að þeir höfðu
beitt unga skáta kynferðisofbeldi.
Elsta málið er um 30 ára og það
nýjasta átti sér stað í fyrra.
Júlíus Aðalsteinsson, félags-
málastjóri BÍS, segir félagið hafa
beitt sér fyrir því að vinna úr
málum sem þessum eftir að mál
kom upp hjá KFUM og KFUK
árið 2003 þar sem starfsmaður
félagsins var handtekinn fyrir
vörslu barnakláms og staðinn að
því að áreita börn kynferðislega
í starfinu.
„Í framhaldinu af því beittum
við okkur fyrir því innan æsku-
lýðsráðs ríkisins hvernig taka
ætti á svona málum,“ útskýrir Júl-
íus og bætir við að umræðan um
kynferðisbrotin innan kirkjunnar
hafi einnig orðið til þess að ákveð-
ið hafi verið að setja á fót fagráð
um meðferð kynferðisbrota innan
skátahreyfingarinnar.
Fagráðið mun starfa óháð skát-
unum og segir Júlíus það mikil-
vægt í ljósi smæðar hreyfingar-
innar, þar sem flestir annaðhvort
þekkja eða kannast við þolendur
eða gerendur. Með því telur Júlíus
að trúverðugleiki þess aukist og
komið sé í veg fyrir að persónuleg
tengsl eigi sér stað.
Júlíus segir nauðgun ekki hafa
komið við sögu í neinum brotanna,
heldur var um að ræða óviðeig-
andi ummæli eða kynferðislega
snertingu. Börnin voru oftar en
ekki fleiri en eitt í hverju máli.
Nýjasta tilvikið var í fyrra, þegar
ungur maður var dæmdur fyrir
að misnota tvo sjö ára drengi sem
leiðbeinandi í skátabúðum.
Fulltrúar BÍS hafa átt einn
fund með fulltrúum mennta- og
menningarmálaráðuneytisins um
skipun fagráðs um meðferð kyn-
ferðisbrota innan skátahreyfing-
arinnar. Formleg beiðni frá BÍS
til ráðuneytisins hefur þó enn
ekki verið lögð fram.
Júlíus segir viðbúið að enn
fleiri mál komi upp á yfirborðið
eftir stofnun fagráðsins.
„Auðvitað vona ég ekki, en
það er viðbúið,“ segir hann. „En
við viljum alltaf setja barnið í
fyrsta sæti. Ef einhver grunur um
ofbeldi vaknar, þá er það okkar
hlutverk að halda hlífiskildi yfir
börnunum í okkar starfi.“
- sv
Fjórir skátar reknir fyrir
kynferðisbrot gegn börnum
Bandalag íslenskra skáta hefur rekið fjóra menn úr hreyfingunni á síðustu árum eftir að upp komst að þeir
höfðu beitt börn kynferðisofbeldi. Elsta málið er 30 ára gamalt. Forsvarsmenn skáta vilja setja á fót fagráð.
Ef einhver grunur um
ofbeldi vaknar, þá er
það okkar hlutverk að halda
hlífiskildi yfir börnunum í
okkar starfi.
JÚLÍUS AÐALSTEINSSON
FÉLAGSMÁLASTJÓRI BÍS
Sögleg stund hjá Þór
Þórsarar eru komnir alla
leið í bikarúrslitaleikinn
eftir 2-0 sigur á ÍBV í gær.
sport 44
SJÁVARÚTVEGUR María Damanaki,
sjávarútvegsstjóri ESB, vill að
innflutningsbann verði sett á
íslenskar sjávarafurðir og að
aðildarviðræð-
um verði fryst-
ar verði Íslend-
ingar ekki við
viðvörunum
Evrópusam-
bandsins vegna
makrílveiða.
Sat hún fund
með fulltrú-
um skoskra og
norskra útgerðarmanna og þar
sem þetta bar á góma. Þar var
ákveðið að krefja Norður-Atlants-
hafs fiskveiðiráðið um að senda
eftirlitsmenn til Íslands og Fær-
eyja en sögusagnir hafa verið á
kreiki um að Færeyingar hafi
fengið erlenda togara til að hjálpa
við að ná að veiða upp í makríl-
kvóta sinn.
Ekki náðist í Jón Bjarnason
sjávarútvegsráðherra. - jse
Makríldeilan í hnút:
Íslendingar fá
hótun frá ESBVEÐURGUÐIR AFTRA EKKI VEIÐI Menn létu veðrið ekki aftra sér frá því að veiða í soðið í höfuðborginni í gær. Á Skarfabakka við Sundahöfn var margt um manninn og voru þeir ófáir sem urðu varir.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
SJÁVARÚTVEGUR Ef áform tveggja
fyrirtækja ganga eftir munu að
minnsta kosti 110 störf skapast
við hlývatnseldi á Suðurnesjum á
næstu árum. Fyrirækið Stolt Sea
Farm hefur sótt um öll tilskilin
leyfi til að reisa eldisstöð fyrir
senegalfúru og yrði hún ein sinn-
ar tegundar í heiminum, að sögn
Pablo García, forstjóra fyrirtæk-
isins. Að minnsta kosti fimmtíu
manns munu starfa þar.
Íslensk matorka hefur síðan
uppi áform um að reisa eldisstöð
fyrir norræna tilapíu og bleikju.
Þar munu starfa á bilinu 60 til
80 manns. Margir þekkja tilapíu
undir nafninu beitarfiskur en
þessa norrænu tilapiu kýs fyrir-
tækið að kalla hekluborra. Í næsta
mánuði mun fyrirtækið flytja út
fyrsta farm sinn af þessum fiski.
Um er að ræða tilraun en til mik-
ils er að vinna þar sem þessi fisk-
ur nýtur mun meiri vinsælda en
þorskurinn víðast hvar.
- jse / sjá síðu 6
Að minnsta kosti 110 störf skapast á Reykjanesi ef áform um fiskeldi ganga eftir:
Vilja hefja fiskeldi á Suðurnesjum
Mikilvægur stólpi undir atvinnulífið
Árni Sigfússon, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, segir þessi verkefni gríðarlega
mikilvæg og að allt stefni í að fiskeldi verði ein af sterkustu stoðum atvinnu-
lífins á Reykjanesi en þar er atvinnuleysi nú um tólf prósent. „Það er ekki nóg
með að þarna skapist bein störf við eldið heldur höfum við einnig rætt við
þessi fyrirtæki um að þau nýti þær fiskvinnslustöðvar sem hér eru til staðar
en hafa staðið höllum fæti frá því að kvótinn fór héðan,“ segir hann. Garcia
segir að um 75 störf muni skapast samhliða stafsemi fyrirtækisins á svæðinu.
MARIA DAMANAKI