Fréttablaðið - 28.07.2011, Síða 6
28. júlí 2011 FIMMTUDAGUR6
Meira í leiðinni
N1 þjónustustöðvar
N1 verslanir
CARS VÖRUR FÁST
HJÁ N1
EFNAHAGSMÁL Bjarni Benedikts-
son, formaður Sjálfstæðisflokks-
ins, segir stöðuna í ríkisfjármál-
um slæma. Það sé grafalvarlegt að
áætlanir um rekstur ríkisins á síð-
asta ári skuli ekki hafa náð fram
að ganga, jafnvel þó þar spili inn-
spýtingarútgjöld inn í.
„Staðreynd málsins er sú að um
og yfir 100 milljarða halli er gríð-
arlegur. Þetta eru um 25 prósent
af öllum tekjum ríkisins,“ segir
Bjarni.
Hann segir Sjálfstæðisflokk-
inn ætíð hafa talað fyrir þeirri
stefnu að auka þyrfti tekjur ríkis-
sjóðs til að loka fjárlagagatinu og
standa undir velferðarkerfinu. Til
þess þurfi að auka framleiðslu og
verðmætasköpun. „Það er í því
verkefni sem ríkistjórnin er að
bregðast. Hún þarf að skapa fleiri
atvinnutækifæri og grípa þau sem
gefast.“
Bjarni segir að rætt hafi verið
aftur og aftur um sömu fram-
kvæmdirnar sem virðist aldrei
komast á koppinn. „Síðan hefur
ríkisstjórnin með áherslum sínum
í skattamálum dregið kjark úr
fjárfestum.“
Sigmundur Davíð Gunnlaugs-
son, formaður Framsóknarflokks-
ins, segir að breyta verði lögum
og reglum til að hvetja til fjár-
festinga. Þá eigi að einfalda skatt-
kerfið og halda því stöðugu þannig
að menn viti að hverju þeir gangi.
„Skuldir heimila og fyrirtækja eru
svo miklar að stór hluti tekna fer
í að standa undir þeim. Svigrúmið
er því lítið. Svo bætist við að þetta
eykur verðbólguna og verðtrygg-
ingin hækkar skuldirnar enn frek-
ar.“
Hann segir hallann áhyggjuefni
sem sýni að skattahækkunarstefna
stjórnarinnar hafi ekki dugað.
Landsframleiðsla hafi verið í sögu-
legu lágmarki í fyrra, 13%, en hún
þurfi að vera um 20 prósent bara
til að halda í horfinu. - kóp
Stjórnarandstaðan segir fjárlagahallann vera gríðarlegt vandamál sem verði að vinna á:
Verður að auka verðmætasköpun í landinu
BJARNI
BENEDIKTSSON
SIGMUNDUR DAVÍÐ
GUNNLAUGSSON
EFNAHAGSMÁL Steingrímur J. Sig-
fússon fjármálaráðherra segist
vera uggandi yfir alþjóðlegu efna-
hagsástandi. Hann segir að í síð-
ustu viku hafi verið umtalsverð
hætta á nýrri kreppu og ekki sjái
fyrir endann á því máli enn þá.
„Hagvaxtarhorfurnar eru ekki
mjög góðar, til dæmis í þeim hag-
kerfum sem við erum mjög tengd
og það hefur auðvitað bara áhrif
á okkar útflutnings- og viðskipta-
hagsmuni.“
Steingrímur segir að ef horft sé
á stóru myndina sé það ekki þann-
ig að hagvöxtur í Kína, Indlandi
og nýmarkaðsríkjum nái að draga
efnahagskerfi heimsins áfram,
á meðan séu vaxandi erfiðleik-
ar í Norður-Ameríku og Evrópu.
„Hagvöxtur sumra þessara ríkja
hefur byggst á útflutningi inn á
þau markaðssvæði og það kemst
sandur í öll hjól ef ekki vinnst ein-
hvern veginn úr þessu.“
Hann segir Íslendinga sérstak-
lega viðkvæma þar sem hagkerf-
ið sé mjög háð inn- og útflutn-
ingi. Steingrímur varar við því
að afstaða til Evrópusambands-
ins hafi áhrif á skoðanir manna á
alþjóðlegum efnahagsmálum.
„Mér finnst það með endem-
um að lesa hálfgerða þórðargleði
hjá ýmsum yfir því að það gangi
illa í Evrópu, burtséð frá afstöðu
manna til Evrópusambandsins. Það
er öllum mikilvægt að það vinnist
úr þessum efnahagsvandræðum
og það verði ekki frekari áföll, að
ég tali nú ekki umönnur veruleg
kreppa.“ - kóp
Fjármálaráðherra hefur verulegar áhyggjur af alþjóðlegu efnahagsástandi:
Telur ekki útséð um aðra kreppu
STEINGRÍMUR J. SIGFÚSSON Fjármála-
ráðherra segir lítil hagkerfi vera mjög
háð breytingum í alþjóðlegu umhverfi.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Styður þú þá hugmynd að nýtt
fangelsi verði reist sem einka-
framkvæmd?
Já 49%
Nei 51%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Hefur þú styrkt hjálparstarf á
þessu ári?
Segðu þína skoðun á Vísi.is
SJÁVARÚTVEGUR Tvö fyrirtæki vinna
nú að því að hefja fiskeldi á Suð-
urnesjum og verður framleiðsl-
an samtals um fimm þúsund tonn
innan fárra ára ef hugmyndirnar
ganga eftir. Einnig munu þá að
minnsta kosti 110 manns vinna við
þessar stöðvar.
Þetta eru fyr-
irtækin Íslensk
matorka sem
hyggst hefja
eldi á 3.000
tonnum samtals
af bleikju og
norrænni tilapíu
eða hekluborra.
Að sögn Stef-
aníu K. Karls-
dóttur, eins af
eigendum fyrir-
tækisins, munu
á bilinu 60 til 80
vinna við fisk-
eldið, slátrun,
flökun og pökk-
un en einnig séu
uppi hugmyndir
hjá fyrirtækinu
um enn frekari
vinnslu á afurð-
inni. Hún segist
enn fremur búast við því að fram-
leiðslan hefjist þegar á næsta ári.
Hitt fyrirtækið er Stolt Sea
Farm, sem hyggur á eldi á 2.000
tonnum af senegalflúru. Athafna-
svæði fyrirtækisins verður um
600 metra vestan við Reykjanes-
virkjun HS Orku. Ráðgert er að
ekki færri en fimmtíu manns
starfi við eldisstöðina en allt að 75
önnur störf gætu fylgt starfsem-
inni að sögn Pablos Garcia, for-
stjóra Stolt Sea Farm. Hann segir
að fyrirtækið hafi sótt um öll til-
skilin leyfi og vonast hann til að
hægt verði að hefja framkvæmd-
ir á þessu ári. Áætlaður kostnað-
ur við þær verður ekki minni en
2,5 milljarður en byggt verður á
um sjö hektara svæði. „Við erum
í þessu af fullri alvöru og ég get
sagt það að eldisstöð sem þessi
mun ekki eiga sinn líka í heiminum
svo þetta mun heldur betur koma
Íslandi á kortið í þessum geira,“
segir hann. Hann vonast til þess
að getað kynnt þessi áform ítar-
lega á blaðamannafundi á Íslandi
í næsta mánuði.
Hann segir enn fremur margar
ástæður fyrir því að Ísland varð
fyrir valinu. „Til dæmis kemur
jarðhitinn sér vel og svo er Ísland
afar jákvætt fyrir verkefnum
sem þessum og hingað til höfum
við ekkert nema gott um sam-
skipti okkar við íslensk stjórnvöld
að segja,“ segir Pablo. Fyrirtækið
rekur nú þegar níu eldisstöðvar;
þar af sex á Spáni, eina í Noregi,
eina í Portúgal og eina í Frakk-
landi. jse@frettabladid.is
Vilja rækta tilapíu og
flúru á Suðurnesjum
Ef áform tveggja fyrirtækja ganga eftir verður komið upp fimm þúsund tonna
fiskeldi á næstu árum, meðal annars á tilapíu og senegalflúru. Framkvæmd-
irnar kosta nokkra milljarða og gætu hafist í október. Jarðhitinn verður nýttur.
Við erum í þessu af
fullri alvöru og ég get
sagt það að eldisstöð sem
þessi mun ekki eiga sína líka
í heiminum svo þetta mun
heldur betur koma Íslandi á
kortið í þessum geira.
PABLO GARCIA
FOSTJÓRI STOLT SEA FARM.
VINSÆLLI EN ÞORSKURINN Norræn tilapía, eða hekluborri, verður fluttur út í
fyrsta sinn frá Íslandi í næsta mánuði. Fyrirtækið Matorka er með áform um mikið
borraeldi á Reykjanesi. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
STEFANÍA K.
KARLSDÓTTI
PABLO GARCIA
KJÖRKASSINN