Fréttablaðið - 28.07.2011, Blaðsíða 10
28. júlí 2011 FIMMTUDAGUR10
1. Hvað tefur nýtingu borhola í
Kröfluvikjun II?
2. Hvað heitir bæjarstjórinn í
Garðabæ?
3. Hvaða einkaskóli fær afskrifaðar
76 milljónir af skuldum sínum við
Landsbankann?
SVÖR
SAMGÖNGUR Útlit er fyrir að Herj-
ólfur ferji 300 þúsund farþega til
og frá Vestmannaeyjum í ár en
til samanburðar má geta þess að
þessi fjöldi var einungis 120 þús-
und síðasta árið sem Herjólfur tók
höfn í Þorlákshöfn.
Í fyrra fóru 220 þúsund farþegar
með skipinu en það lagði í fyrsta
sinn við Landeyjahöfn þann 20.
júlí það ár. Ferðir þangað voru þó
stopular á tíma-
bili í fyrravet-
ur.
Elliði Vign-
isson bæjar-
stjór i segir
þessa fjölgun
farþega hafa
haft gífurleg
áhrif á mann-
líf, þjónustu
og atvinnulífið
í Vestmanna-
eyjum. „Ég hef
búið alla mína tíð hér í Eyjum,
fyrir utan nokkur ár þegar ég
þurfti að sækja mér menntun
annars staðar, og ég hef ekki séð
bæinn minn í öðru eins lífi og
ljóma,“ segir hann. Hann segir að
nokkur ný fyrirtæki hafi sprott-
ið upp í kjölfar þessa þunga sem
kominn er í umferðina út í Eyjar
og eldri fyrirtæki hafi eflst mjög.
Hólmgeir Austfjörð, eigandi
veitingastaðarins Topp pizza, seg-
ist finna vel fyrir þessum breyt-
ingum á eigin skinni. „Á meðan
Herjólfur fer í Landeyjahöfn er
fullt hérna hjá mér frá ellefu að
morgni og fram á kvöld,“ segir
hann. „Þegar skipið fer til Þor-
lákshafnar fæ ég nokkra hausa í
hádeginu og svo kemur einstaka
maður eftir það.“ Hann segir að nú
fái hann um 2.000 til 2.500 gesti
á viku en þegar Herjólfur komst
ekki til Landeyjahafnar á tímabili
síðastliðinn vetur hafi hann fengið
um 40 gesti á viku.
Eitt af þeim fyrirtækjum sem
skaut upp kollinum eftir að Land-
eyjahöfn var tekin í notkun er fata-
verslunin Salka. Hún var opnuð í
nóvember síðastliðnum og segir
Theodóra Ágústsdóttir afgreiðslu-
kona að þá hafi fólk af Suðurlandi
komið til að gera jólainnkaupin í
Eyjum. „Svo finnur maður alveg
hvernig holskeflan skellur hér
á um leið og Herjólfur kemur úr
fyrstu ferðinni klukkan ellefu, þá
byrjar umferðin,“ segir hún.
Þau Theodóra og Hólmgeir taka
undir með bæjarstjóranum og
segja að merkja megi þessa þungu
umferð á mannlífinu í bænum.
„Hér er setið við hvert borð úti við
kaffihúsin, þannig að þetta setur
skemmtilegan svip á bæinn,“ segir
Theodóra. jse@frettabladid.is
Herjólfur ferjar 300
þúsund farþega í ár
Áætlað er að um tvö hundruð þúsund farþegar fari með Herjólfi í ár. Þessi
fjöldi glæðir atvinnulífð í Eyjum og fyrirtækin blómstra sem aldrei fyrr.
THEODÓRA
ÁGÚSTSDÓTTIR
HERJÓLFUR VIÐ LANDEYJAHÖN Það hefur heldur betur glæðst mannlífið í Heimaey
eftir að Landaeyjahöfn var tekin í notkun enda stöðugur straumur af farþegum út í
Eyjar. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
SJÁVARÚTVEGSMÁL Umhverfisstofn-
un hefur gefið út starfsleyfi fyrir
kvíaeldisstöð HB Granda í Beru-
firði. Leyft er að framleiða allt
að 400 tonn af laxi og 4.000 tonn
af þorski í sjókvíum á ári. Fyrir-
tækið óskaði eftir breytingum á
starfsleyfi þar sem það hyggst
leggja aukna áherslu á þorskeldi,
að sögn Austurgluggans.
Athugasemd barst frá Skipu-
lagsstofnun sem benti á að ekki
væri kveðið ítarlega á um ráðstaf-
anir vegna fisks sem sleppur úr
kvíum. Umhverfisstofnun breytti
lítillega texta leyfisins með tilliti
til mengunarmála. Nýja starfs-
leyfið gildir til 1. júlí 2027. - kh
Fiskeldi á Austfjörðum:
HB Grandi fær
leyfi fyrir fisk-
eldi í Berufirði
MOSFELLSBÆR Nýtt tjaldsvæði
hefur verið opnað fyrir ferða-
menn í Mosfellsbæ.
Á svæðinu er ágæt aðstaða
fyrir tjöld, fellihýsi, hjólhýsi og
húsbíla. Hægt er að komast í raf-
magn og á svæðinu er vaskur og
skjólaðstaða til að vaska upp og
salernisaðstaða.
Þar sem svæðið er nýtt og til
kynningar í sumar er gisting
ókeypis en greiða þarf fyrir raf-
magn, að því er segir á vef Mos-
fellsbæjar.
Nýjung fyrir ferðamenn:
Frítt tjaldsvæði
í Mosfellsbæ
GARÐYRKJA Nýr rósagarður var vígð-
ur í Skrúðgarðinum í Laugardal
fyrir skemmstu, en þar má sjá um
130 rósaafbrigði, eða svokölluð yrki.
Garðurinn, sem er samstarfsverk-
efni Rósaklúbbs Garðyrkjufélags
Íslands, Yndisgróðurs Landbúnað-
arháskólans og Reykjavíkurborgar,
er staðsettur milli Grasagarðsins
og félagsheimilis KFUM og KFUK.
Hann er aðgengilegur frá Sunnu-
vegi og Holtavegi.
Garðurinn var vígður að við-
stöddu fjölmenni á 80 ára afmæli
Jóhanns Pálssonar, grasafræðings
og fyrrum garðyrkjustjóra Reykja-
víkurborgar. Þar fræddi Jóhann við-
stadda um það sem þar má sjá, en
eitt af séreinkennum garðsins er
einmitt safn rósa sem Jóhann hefur
sjálfur kynbætt. Þær getur almenn-
ingur nú séð í fyrsta sinn á einum
stað.
Samson B. Harðarson, landslags-
arkitekt og forsvarsmaður Yndis-
gróðurs, segir í samtali við Frétta-
blaðið að stefnt sé að því að bæta í
safnið með tíð og tíma.
„Það er eitthvert pláss eftir í
garðinum en við eigum kannski
eftir að setja um 20 yrki til viðbót-
ar.“ - þj
Fjölskrúðugur rósagarður opnaður í Skrúðgarðinum í Laugardal:
Nýr rósagarður skartar 130 rósaafbrigðum
RÓSAHAF Fallegur rósagarður var vígður í Laugardalnum fyrir skemmstu.
MYND/SAMSON HARÐARSON
Sérfræðingar í bílum
„…bentu á þann sem að þér þykir bestur !“
benni.is
SAMSTARF TIL GÓÐRA VERKA
WWW.SOS.IS - WWW.BENNI.IS
Bílabúð Benna - Chevrolet sýningarsalur - Tangarhöfða 8-12 - Reykjavík - sími 590 2000
Bílabúð Benna - Njarðarbraut 9 - Reykjanesbæ - sími 420 3330
Bílaríki - Glerárgötu 36 - Akureyri - sími 461 3636
Bí
ll
á
m
yn
d:
S
pa
rk
L
T
m
eð
a
uk
ab
ún
að
i.
SPARK
*ERGO Grænn Bílasamningur / 8,8% vextir / Óverðt.
kr. 1.790 þús.
kr. 555 þús.
kr. 19.910
kr. 1.790 þús.
kr. 1.990 þús.
mánaðargreiðsla*
19.910 kr.
MEXÍKÓ, AP Fjórtán ára banda-
rískur piltur var í vikunni dæmd-
ur fyrir mexíkóskum dómstól
fyrir morð, mannrán og fyrir að
hafa vopn og eiturlyf undir hönd-
um. Edgar Jimenez Lugo ólst upp
í San Diego í Kaliforníu en starf-
aði fyrir eiturlyfjaklíku í Mexíkó
áður en hann var tekinn höndum
undir lok síðasta árs.
Hann játaði að hafa átt aðild að
fjórum morðum, en hafi þá verið
undir áhrifum lyfja og undir hót-
unum samverkamanna sinna.
Hann hlaut hámarksdóm fyrir
börn undir saknæmisaldri, eða
þriggja ára betrunarvist. - þj
Barnungur brotamaður:
Fjórtán ára fjór-
faldur morðingi
ÞRIGGJA ÁRA DÓMUR Drengurinn játaði
aðild sína að fjórum morðum.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
VEISTU SVARIÐ?
1. Súr gufa. - 2. Gunnar Einarsson.
- 3. Ísaksskóli.
SLYS Kona datt af baki í Stafholts-
tungum í Borgarfirði þegar
hesturinn sem hún sat prjón-
aði skyndilega. Hún var flutt á
sjúkrahús en talið var að hún
hefði brotnað á mjöðm.
Í öðru tilviki slasaðist kona
lítillega þegar hún var í reiðtúr
í Norðurárdalnum. Hesturinn
hennar hrasaði út af vegkanti með
þeim afleiðingum að konan féll af
baki og hesturinn féll síðan ofan
á hana, að því er fram kemur á
vefnum Skessuhorn.is.
Kona féll af hestbaki:
Mjaðmarbrotn-
aði eftir fall
Segir sig úr Borgarhreyfingu
Guðmundur Andri Skúlason sagði
sig úr stjórn Borgarahreyfingarinnar
á þriðjudag. Hann lét bóka að alvar-
legur trúnaðarbrestur hefði komið
upp innan stjórnarinnar, en gagnrýni
kom fram á meðferð hans á fjár-
málum hreyfingarinnar. Hann segir
hana grófa aðför að heiðri sínum.
STJÓRNMÁL