Fréttablaðið - 28.07.2011, Page 17
FIMMTUDAGUR 28. júlí 2011
Stjórnlagaráð samþykkti í gær einum rómi frumvarp
til nýrrar stjórnarskrár og mun
á morgun afhenda það forseta
Alþingis. Stjórnlagaráð gerir
þingi og þjóð tilboð um stjórn-
skipulegan grundvöll að opnara
og réttlátara þjóðfélagi, um nýja
stjórnarskrá gegn flokksræði,
forréttindum, leynd og spillingu
í samræmi við niðurstöður þjóð-
fundar 2010. Frumvarpið felur í
sér ýmis merk nýmæli og fyrir-
heit um gagngerar breytingar á
stjórnskipan landsins, sumar í
samræmi við ábendingar Rann-
sóknarnefndar Alþingis. Stjórn-
lagaráð leggur til, að Alþingi
leyfi þjóðinni að greiða atkvæði
um frumvarpið til samþykktar
eða synjunar. Meðal merkustu
nýmæla frumvarpsins eru þessi.
Jafnt vægi atkvæða
„Atkvæði kjósenda alls staðar á
landinu vega jafnt. ... Kjósandi
velur með persónukjöri fram-
bjóðendur af listum í sínu kjör-
dæmi eða af landslistum, eða
hvort tveggja. Honum er og
heimilt að merkja í stað þess við
einn kjördæmislista eða einn
landslista, og hefur hann þá valið
alla frambjóðendur listans jafnt.“
Í þessum orðum felst, að kjósend-
um er frjálst að kjósa hvort held-
ur með gamla laginu eða velja
frambjóðendur þvert á lista.
Allir geta kosið Ómar Ragnars-
son hvar í flokki sem þeir standa.
Einnig segir: „Heimilt er að
mæla fyrir um í lögum að valið
sé einskorðað við kjördæmislista
eða landslista sömu samtaka.“ Í
þessu felst, að Alþingi er heim-
ilt að skerða rétt kjósenda til að
kjósa þvert á lista.
Auðlindir í þjóðareign
„Auðlindir í náttúru Íslands,
sem ekki eru í einkaeigu, eru
sameiginleg og ævarandi eign
þjóðarinnar. Enginn getur fengið
auðlindirnar, eða réttindi tengd
þeim, til eignar eða varanlegra
afnota og aldrei má selja þær
eða veðsetja. ... Til auðlinda í
þjóðareign teljast náttúrugæði,
svo sem nytjastofnar, aðrar auð-
lindir hafs og hafsbotns innan
íslenskrar lögsögu, og uppsprett-
ur vatns- og virkjunarréttinda,
jarðhita- og námaréttinda. Með
lögum má kveða á um þjóðareign
á auðlindum undir tiltekinni dýpt
frá yfirborði jarðar. Við nýtingu
auðlindanna skal hafa sjálfbæra
þróun og almannahag að leiðar-
ljósi. Stjórnvöld bera, ásamt þeim
sem nýta auðlindirnar, ábyrgð
á vernd þeirra. Stjórnvöld geta
á grundvelli laga veitt leyfi til
afnota eða hagnýtingar auð-
linda eða annarra takmarkaðra
almannagæða, gegn fullu gjaldi
og til tiltekins hóflegs tíma í
senn. Slík leyfi skal veita á jafn-
ræðisgrundvelli og þau leiða
aldrei til eignarréttar eða óaftur-
kallanlegs forræðis yfir auðlind-
unum.“ Með fullu gjaldi er átt við
fullt markaðsverð fyrir nýtingar-
réttinn.
Náttúruvernd
„Náttúra Íslands er undirstaða
lífs í landinu. Öllum ber að virða
hana og vernda. ... Nýtingu nátt-
úrugæða skal haga þannig að
þau skerðist sem minnst til lang-
frama og réttur náttúrunnar
og komandi kynslóða sé virt-
ur. ... Með lögum skal tryggja
almenningi aðgang að undirbún-
ingi ákvarðana sem hafa áhrif
á umhverfi og náttúru, svo og
heimild til að leita til hlutlausra
úrskurðaraðila.“ Í þessu felst, að
venjulegt fólk getur leitað réttar
síns vegna umhverfisspjalla.
Upplýsingaréttur
„Upplýsingar og gögn í fórum
stjórnvalda skulu vera tiltæk án
undandráttar og skal með lögum
tryggja aðgang almennings að
öllum gögnum sem opinberir
aðilar safna eða standa straum
af.” Leyndinni þarf að linna.
Óspilltar embættaveitingar
„Með lögum skal koma á skipan
sem tryggir að hæfni og mál-
efnaleg sjónarmið ráði við skipun
manna í embætti. Þegar ráð-
herra skipar í embætti dómara
og ríkissaksóknara skal skipun
borin undir forseta Íslands til
staðfestingar. Synji forseti skip-
un staðfestingar þarf Alþingi að
samþykkja skipunina með 2/3
atkvæða til að hún taki gildi.
Ráðherra skipar í önnur æðstu
embætti, eins og þau eru skil-
greind í lögum, að fenginni til-
lögu sjálfstæðrar nefndar. Velji
ráðherra ekki í slíkt embætti
einn þeirra sem nefndin telur
hæfasta er skipun háð samþykki
Alþingis með 2/3 atkvæða. For-
seti Íslands skipar formann
nefndarinnar.“ Þetta þýðir, að
ráðherrar geta ekki lengur upp
á sitt eindæmi skipað óhæft fólk
í æðstu embætti. Þetta ákvæði
vísar á skarpari valdmörk og
mótvægi, gagnkvæmt aðhald og
eftirlit.
Við lýsum eftir rökræðum
Nær öll 114 ákvæði frumvarpsins
voru samþykkt án mótatkvæða
í ráðinu. Frumvarpið í heild var
samþykkt við nafnakall með
öllum greiddum atkvæðum, 25
alls. Við höfum ráðfært okkur við
fjölda fólks innan lands og utan,
bæði sérfræðinga og aðra, sem
hafa sent okkur gagnlegar ábend-
ingar og erindi.
Öllu þessu fólki þökkum við
af heilum hug. Við lýsum eftir
rökræðum um þetta framsækna
frumvarp og stuðningi fólksins í
landinu við það.
Við nýtingu auðlindanna skal hafa sjálf-
bæra þróun og almannahag að leiðarljósi.
Stjórnvöld bera, ásamt þeim sem nýta
auðlindirnar, ábyrgð á vernd þeirra.
Meira í leiðinni
PUNKTAR
GILDA
x4
3.990 KR.
+1.000 PUNKTAR
SJÓPOKI 40 L FULLT VERÐ
7.990 KR.
Vatnsheldur poki með límdum
saumum sem hentar mjög vel í
ferðalagið. Hliðarhandfang og ól
yfir öxlina sem hægt er
að taka af.
FRÁBÆR POKI FYRIR
VERSLUNARMANNAHELGINA
N1 þjónustustöðvar
N1 verslanir
VANILLU ÍSPINNAR MEÐ SÚKKULAÐI 120 ML
298 KR. 3 STK.
VANILLU ÍSPINNAR MEÐ SÚKKULAÐI 60 ML
398 KR. 12 STK.
VANILLU ÍSTOPPAR MEÐ SÚKKULAÐI 120 ML
498 KR. 8 STK.
SPARAÐU MEÐ
EURO SHOPPER
SPARAÐU Í
BÓNUS
Við lýsum eftir stuðningi
Í DAG
Þorvaldur Gylfason
prófessor