Fréttablaðið - 28.07.2011, Blaðsíða 17

Fréttablaðið - 28.07.2011, Blaðsíða 17
FIMMTUDAGUR 28. júlí 2011 Stjórnlagaráð samþykkti í gær einum rómi frumvarp til nýrrar stjórnarskrár og mun á morgun afhenda það forseta Alþingis. Stjórnlagaráð gerir þingi og þjóð tilboð um stjórn- skipulegan grundvöll að opnara og réttlátara þjóðfélagi, um nýja stjórnarskrá gegn flokksræði, forréttindum, leynd og spillingu í samræmi við niðurstöður þjóð- fundar 2010. Frumvarpið felur í sér ýmis merk nýmæli og fyrir- heit um gagngerar breytingar á stjórnskipan landsins, sumar í samræmi við ábendingar Rann- sóknarnefndar Alþingis. Stjórn- lagaráð leggur til, að Alþingi leyfi þjóðinni að greiða atkvæði um frumvarpið til samþykktar eða synjunar. Meðal merkustu nýmæla frumvarpsins eru þessi. Jafnt vægi atkvæða „Atkvæði kjósenda alls staðar á landinu vega jafnt. ... Kjósandi velur með persónukjöri fram- bjóðendur af listum í sínu kjör- dæmi eða af landslistum, eða hvort tveggja. Honum er og heimilt að merkja í stað þess við einn kjördæmislista eða einn landslista, og hefur hann þá valið alla frambjóðendur listans jafnt.“ Í þessum orðum felst, að kjósend- um er frjálst að kjósa hvort held- ur með gamla laginu eða velja frambjóðendur þvert á lista. Allir geta kosið Ómar Ragnars- son hvar í flokki sem þeir standa. Einnig segir: „Heimilt er að mæla fyrir um í lögum að valið sé einskorðað við kjördæmislista eða landslista sömu samtaka.“ Í þessu felst, að Alþingi er heim- ilt að skerða rétt kjósenda til að kjósa þvert á lista. Auðlindir í þjóðareign „Auðlindir í náttúru Íslands, sem ekki eru í einkaeigu, eru sameiginleg og ævarandi eign þjóðarinnar. Enginn getur fengið auðlindirnar, eða réttindi tengd þeim, til eignar eða varanlegra afnota og aldrei má selja þær eða veðsetja. ... Til auðlinda í þjóðareign teljast náttúrugæði, svo sem nytjastofnar, aðrar auð- lindir hafs og hafsbotns innan íslenskrar lögsögu, og uppsprett- ur vatns- og virkjunarréttinda, jarðhita- og námaréttinda. Með lögum má kveða á um þjóðareign á auðlindum undir tiltekinni dýpt frá yfirborði jarðar. Við nýtingu auðlindanna skal hafa sjálfbæra þróun og almannahag að leiðar- ljósi. Stjórnvöld bera, ásamt þeim sem nýta auðlindirnar, ábyrgð á vernd þeirra. Stjórnvöld geta á grundvelli laga veitt leyfi til afnota eða hagnýtingar auð- linda eða annarra takmarkaðra almannagæða, gegn fullu gjaldi og til tiltekins hóflegs tíma í senn. Slík leyfi skal veita á jafn- ræðisgrundvelli og þau leiða aldrei til eignarréttar eða óaftur- kallanlegs forræðis yfir auðlind- unum.“ Með fullu gjaldi er átt við fullt markaðsverð fyrir nýtingar- réttinn. Náttúruvernd „Náttúra Íslands er undirstaða lífs í landinu. Öllum ber að virða hana og vernda. ... Nýtingu nátt- úrugæða skal haga þannig að þau skerðist sem minnst til lang- frama og réttur náttúrunnar og komandi kynslóða sé virt- ur. ... Með lögum skal tryggja almenningi aðgang að undirbún- ingi ákvarðana sem hafa áhrif á umhverfi og náttúru, svo og heimild til að leita til hlutlausra úrskurðaraðila.“ Í þessu felst, að venjulegt fólk getur leitað réttar síns vegna umhverfisspjalla. Upplýsingaréttur „Upplýsingar og gögn í fórum stjórnvalda skulu vera tiltæk án undandráttar og skal með lögum tryggja aðgang almennings að öllum gögnum sem opinberir aðilar safna eða standa straum af.” Leyndinni þarf að linna. Óspilltar embættaveitingar „Með lögum skal koma á skipan sem tryggir að hæfni og mál- efnaleg sjónarmið ráði við skipun manna í embætti. Þegar ráð- herra skipar í embætti dómara og ríkissaksóknara skal skipun borin undir forseta Íslands til staðfestingar. Synji forseti skip- un staðfestingar þarf Alþingi að samþykkja skipunina með 2/3 atkvæða til að hún taki gildi. Ráðherra skipar í önnur æðstu embætti, eins og þau eru skil- greind í lögum, að fenginni til- lögu sjálfstæðrar nefndar. Velji ráðherra ekki í slíkt embætti einn þeirra sem nefndin telur hæfasta er skipun háð samþykki Alþingis með 2/3 atkvæða. For- seti Íslands skipar formann nefndarinnar.“ Þetta þýðir, að ráðherrar geta ekki lengur upp á sitt eindæmi skipað óhæft fólk í æðstu embætti. Þetta ákvæði vísar á skarpari valdmörk og mótvægi, gagnkvæmt aðhald og eftirlit. Við lýsum eftir rökræðum Nær öll 114 ákvæði frumvarpsins voru samþykkt án mótatkvæða í ráðinu. Frumvarpið í heild var samþykkt við nafnakall með öllum greiddum atkvæðum, 25 alls. Við höfum ráðfært okkur við fjölda fólks innan lands og utan, bæði sérfræðinga og aðra, sem hafa sent okkur gagnlegar ábend- ingar og erindi. Öllu þessu fólki þökkum við af heilum hug. Við lýsum eftir rökræðum um þetta framsækna frumvarp og stuðningi fólksins í landinu við það. Við nýtingu auðlindanna skal hafa sjálf- bæra þróun og almannahag að leiðarljósi. Stjórnvöld bera, ásamt þeim sem nýta auðlindirnar, ábyrgð á vernd þeirra. Meira í leiðinni PUNKTAR GILDA x4 3.990 KR. +1.000 PUNKTAR SJÓPOKI 40 L FULLT VERÐ 7.990 KR. Vatnsheldur poki með límdum saumum sem hentar mjög vel í ferðalagið. Hliðarhandfang og ól yfir öxlina sem hægt er að taka af. FRÁBÆR POKI FYRIR VERSLUNARMANNAHELGINA N1 þjónustustöðvar N1 verslanir VANILLU ÍSPINNAR MEÐ SÚKKULAÐI 120 ML 298 KR. 3 STK. VANILLU ÍSPINNAR MEÐ SÚKKULAÐI 60 ML 398 KR. 12 STK. VANILLU ÍSTOPPAR MEÐ SÚKKULAÐI 120 ML 498 KR. 8 STK. SPARAÐU MEÐ EURO SHOPPER SPARAÐU Í BÓNUS Við lýsum eftir stuðningi Í DAG Þorvaldur Gylfason prófessor
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.