Fréttablaðið - 28.07.2011, Side 34
KYNNING − AUGLÝSINGGleraugu FIMMTUDAGUR 28. JÚLÍ 20114
LESGLERAUGU BUNDIN
Á EYRU
Talið er að lesgleraugu hafi
komið til sögunnar á Ítalíu um
árið 1260. Þau voru hönnuð til
að hjálpa öldruðum við lestur.
Lesgleraugun nutu fljótlega
mikilla vinsælla en það var einn
hængur á, umgjörðin hafði
ekkert til að halda glerjunum á
sínum stað svo hún datt alltaf
af nefinu. Áður en nútíma les-
gleraugu komu fram reyndu
Spánverjar að bæta úr þessu
vandamáli. Þeir tóku band, festu
það við umgjörðina og vöfðu
því síðan um eyrun á sér. Þessi
lausn fékk misgóð viðbrögð
meðal fólks.
SJÓNTÆKI
Sjóntæki er ljósfræðilegt áhald
eða hlutur sem er notaður til
að bæta sjón þeirra, sem hafa
sjóngalla. Algengir sjóngallar
eru nærsýni, fjarsýni og sjón-
skekkja. Gleraugu, sem borin
eru á nefi, eru elsta gerð sjón-
tækja og komu fyrst fram á 14.
öld. Einglyrni er sjóngler, sem
borið er fyrir annað augað, en er
lítið notað nú á dögum. Lúpa er
lítið stækkunargler sem notað
er við vinnu með smáa hluti.
Á seinni hluta 20. aldar komu
fram augnlinsur, sem settar eru
utan á hornhimnu augans. Með
leysiaðgerð á augum má nú
orðið laga margar gerðir sjón-
galla, sem gerir sjóntæki yfirleitt
óþörf eftir aðgerðina.
Heimild: www.wikipedia.org
AFLEIT KAUP
Neytendafrömuðurinn doktor Gunni gerði eitt sinn afleit kaup. Þau
voru í Elvis Presley-sólgleraugum sem hann fann á heimasíðunni Elvis.com.
„Þetta voru vanhugsuð netkaup. Gleraugun kostuðu bara þúsund kall,
en voru send með rándýrri Federal Express-sendingu, sem kostaði svona
5.000 kall. Ofan á það bættist tollur og virðisaukaskattur, þannig að
gleraugun kostuðu svona 10.000 krónur að lokum.
Þetta voru bara plastgleraugu eins og fást í
Kolaportinu og ég hefði getað keypt þau á 500
krónur.
Konan var lengi að tala um þessi gleraugu
og alltaf þegar hún vildi kaupa eitthvað
sem ég vildi ekki, þá sagði hún bara „Elvis
Presley-sólgleraugun“. Þá gat ég lítið sagt.“
AUGU ÚR
KRISTÖLLUM
Nökkvar eru tegund
lindýra sem til eru um
þúsund afbrigði af. Á Íslandi
eru þeir gráir. Þeir eru oft undir
steinum og geta hringað sig
upp til að verjast áreiti.
Vísindamenn hjá Duke-háskóla
í Norður-Karólínu í Banda-
ríkjunum hafa komist að því
að þessar pöddur eru með
sérlega merkileg kristalsaugu úr
aragóníti sem gerir þeim kleift
að sjá jafn vel í vatni sem undir
beru lofti. Aragónít hefur tvo
brennipunkta sem nökkvarnir
nýta sér til að sjá og skynja tvær
myndir samtímis.
Vísindamennirnir vona að í
framtíðinni geti þeir hannað
sniðug gleraugu eða linsur úr
aragónít-kristal.