Fréttablaðið - 28.07.2011, Side 56
28. júlí 2011 FIMMTUDAGUR44
sport@frettabladid.is
STELPURNAR í 17 ára landsliðinu í fótbolta mæta Spánverjum í undanúrslitum EM í Nyon í Sviss í dag. Íslenska liðið
vann alla sex leiki sína í undankeppninni með markatölunni 37-3. Leikurinn hefst klukkan 12 að íslenskum tíma en
strax á eftir mætast Þýskaland og Frakkland í hinum undanúrslitaleiknum. Leikirnir verða í beinni útsendingu á Euro-
sport sem er stöð númer 40 á Digital Íslandi.
FÓTBOLTI KR mætir Dinamo Tbilisi
frá Georgíu í fyrri viðureign
liðanna í 3. umferð undankeppni
Evrópudeildar í Vesturbænum í
kvöld. Fyrir fram er georgíska
liðið talið mun líklegra til afreka
í einvíginu en KR-ingar hafa farið
á kostum í sumar og skyldi ekki
afskrifa þá.
„Þetta lið er mun hærra skrif-
að en við en Zilina var það reynd-
ar líka. Þeir voru líka mun hærra
skrifaðir en Georgíumennirn-
ir. Möguleikinn er fyrir hendi og
við höfum fulla trú á að við getum
veitt þeim harða keppni,“ segir
Rúnar Kristinsson þjálfari KR.
Tbilisi-menn slógu út andstæð-
ing frá Moldóvu í fyrstu umferð. Í
annarri umferð lágu andstæðingar
frá Wales þrátt fyrir óvænt tap í
fyrri leiknum. Rúnar tekur undir
með blaðamanni að Georgíumenn-
irnir hafi örugglega lært af tapinu
í Wales og séu ólíklegir til þess að
vanmeta KR-inga.
„Ég hugsa það. Tímabilið hjá
þeim er rétt að byrja og þeir
eru með nýjan þjálfara. Það eru
væntanlega nýjar áherslur í leik
liðsins og þeir að komast inn í
það. Þeir ættu að vera búnir að
stilla saman strengina núna og
orðnir betri en í fyrri leiknum í
Wales. Liðið var töluvert breytt
í síðari leiknum sem þeir unnu
5-0. Þeir eru með þrjá Spánverja,
Brasilíumann og spænskan
þjálfara sem starfaði í fjögur ár
hjá Barcelona frá 2005-2009. Þeir
vilja spila fótbolta, halda boltanum
á jörðinni en vonandi getum við
strítt þeim eitthvað,“ sagði Rúnar.
Dinamo Tbilisi er reynslumikið
félag í Evrópukeppnum. Félagið
hefur komist í Evrópukeppni
nær óslitið frá árinu 1994 og
stóð sig einnig vel á árum áður
meðan Georgía var hluti af
Sovétríkjunum. Hápunkturinn
var vorið 1981 þegar liðið
stóð uppi sem sigurvegari í
Evrópukeppni bikarhafa. Pétur
Pétursson, aðstoðarþjálfari KR,
var leikmaður Feyenoord á þessum
tíma en liðið tapaði gegn Dinamo í
undanúrslitum keppninnar.
Til marks um breytta tíma
þurfti Dinamo-liðið að vinna sigur
á fjórum andstæðingum á leið
sinni í úrslitaleikinn. Í dag þurfa
Dinamo og KR að slá út fjóra
andstæðinga til þess að komast í
sjálfa aðalkeppnina.
„Þeir eru gríðarlega sterkir á
heimavelli með fjöldann allan af
áhorfendum. Svona lið spila alltaf
miklu betur á heimavelli, eru sókn-
djarfari og þora meira. Við þurfum
virkilega góð úrslit á heimavelli
til þess að eiga möguleika,“ segir
Rúnar um leik kvöldsins.
KR-ingar hafa enn ekki beðið
lægri hlut í leikjum sínum á heima-
velli í sumar. Sjö sigrar, tvö jafnt-
efli og markatalan 24-6 er niður-
staðan úr níu leikjum liðsins í
Vesturbænum og ljóst að Georgíu-
menn fá ekkert gefins í kvöld.
Bjarni Guðjónsson, fyrirliði KR,
segir ekki koma í ljós fyrr en í dag
hvort hann verði leikfær en Bjarni
meiddist á nára í leiknum gegn
Breiðabliki á sunnudag. Hann er
þó bjartsýnn miðað við bata síðustu
daga og segist vilja ná leiknum.
„Strákarnir eru mjög ánægðir
að spila Evrópuleiki. Það lyftir
sumrinu á hærra plan. Þetta eru
leikir sem menn dreymir um að
spila,“ segir Rúnar. Leikurinn í
kvöld hefst á KR-velli klukkan
19.15 en síðari viðureignin fer
fram í Georgíu að viku liðinni. - ktd
KR tekur á móti Dinamo Tbilisi í 3. umferð undankeppni Evrópudeildar á KR-velli í kvöld:
Leikir sem leikmenn dreymir um að spila
GAMAN Í KR KR-ingar hafa farið á kostum í öllum keppnum í sumar og reyna í kvöld
að halda Evrópuævintýrinu gangandi. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
NM-karla í körfubolta
Ísland-Noregur 80-61 (37-25)
Stig Íslands: Hlynur Bæringsson 22 (13 fráköst),
Logi Gunnarsson 17, Jakob Örn Sigurðarson 16
Pavel Ermolinskij 9 (9 frák. og 6 stoðs.), Hörður
Axel Vilhjálmsson 5, Brynjar Þór Björnsson 3,
Haukur Helgi Pálsson 3, Helgi Már Magnússon 3,
Finnur Atli Magnússon 2.
Valitor-bikar karla
Þór Ak.-ÍBV 2-0
1-0 David Disztl (11.), 2-0 Sveinn Elías Jónss. (54.)
1. deild karla
Leiknir R.-Þróttur R. 5-1
1-0 Fannar Þór Arnarsson (22.), 2-0 Kristján
Páll Jónsson (56.), 3-0 Þórir Guðjónsson (57.),
3-1 Dusan Ivkovic (76.), 4-1 Ólafur Hrannar
Kristjánsson (88.) 5-1 Þórir Guðjónsson (90.)
Haukar-ÍR 3-2
1-0 Úlfar Hrafn Pálsson (12.), 1-1 Jón Gísli Ström
(31.), 2-1 Alieu Jagne (53.), 2-2 Haukur Ólafsson,
víti (60.), 3-2 Hilmar Rafn Emilsson (66.)
Fjölnir-BÍ/Bolungarvík 1-1
0-1 Nicholas Deverdics (81.), 1-1 Marinó Þór
Jakobsson (90.).
Upplýsingar um markaskorarar af fótbolti.net.
STAÐAN Í DEILDINNI:
ÍA 14 13 1 0 41-6 40
Selfoss 14 9 1 4 30-14 28
Haukar 14 7 3 4 20-15 24
BÍ/Bolungarvík 14 6 3 5 18-23 21
Fjölnir 14 5 5 4 23-25 20
Þróttur R. 14 6 2 6 17-26 20
Víkingur Ó. 14 5 4 5 18-17 19
Stig hinna liðanna: ÍR 15 stig (-7), Grótta 14
(-9), KA 14 (-10), Leiknir 13 (0), HK 5 (-15).
ÚRSLIT Í GÆR
KÖRFUBOLTI Íslenska
karlalandsliðið í körfubolta
tryggði sér bronsið á Norður-
landamótinu í Sundsvall með
því að vinna 19 stiga sigur á
Norðmönnum, 80-61, í gær.
Hlynur Bæringsson fór á
kostum í leiknum og var með
22 stig og 13 fráköst. Logi
Gunnarsson fylgdi eftir góðum
leik á móti Dönum með því
að skora 17 stig og Jakob Örn
Sigurðarson skoraði 16 stig.
Þetta er í þriðja sinn á síðustu
fjórum Norðurlandamótum
sem íslenska liðið nær þriðja
sætinu. Liðið náði líka bronsinu
2000 og 2002 en hafði endað í
4. sæti á NM 2006. Finnar urðu
Norðurlandameistarar með
miklum yfirburðum en þeir unnu
úrslitaleikinn á móti Svíum með
22 stiga mun.
Jakob Örn og Hlynur voru
báðir valdir í úrvalslið mótsins.
Jakob skoraði 17,8 stig að
meðaltali í fjórum leikjum
íslenska liðsins en Hlynur var
með 15,5 stig og 10,3 fráköst að
meðaltali í leik. - óój
Ísland í þriðja sæti á NM:
Hlynur og Jakob
í liði mótsins
HLYNUR BÆRINGSSON Fyrirliðinn var
frábær í gær. MYND/KRISTINN GEIR PÁLSSON
FÓTBOLTI Íslenska karlalandsliðið
endaði tólf mánaða fall á
Styrkleikalista FIFA í gær þegar
gefinn var út nýr heimslisti.
Ísland hækkaði um eitt sæti á
listanum og er númer 121.
Íslenska landsliðið var búið að
falla niður listann eða standa í
stað samfellt frá júlí 2010 þegar
liðið var í 79. sæti.
Íslenska liðið er samt í sömu
stöðu innan UEFA og verður
því í síðasta styrkleikaflokki
þegar dregið verður í riðla fyrir
undankeppni HM 2014 í Brasilíu
á laugardaginn. Ísland verður
því í sex liða riðli með fimm
„sterkari“ liðum. - óój
Ísland upp um sæti hjá FIFA:
Tólf mánaða
fall á enda
GYLFI ÞÓR SIGURÐSSON Í leik með A-
landsliðinu. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
FÓTBOLTI Eiður Smári Guðjohn-
sen spilaði sinn fyrsta leik fyrir
AEK Aþenu í gærkvöldi þegar
liðið gerði markalaust jafntefli
við tyrkneska liðið Karabükspor í
æfingaleik.
Eiður Smári lék aðeins fyrri
hálfleikinn og var einu sinni
nálægt því að skora. Kamerún-
maðurinn Steve Leo Beleck kom
inn á fyrir Eið Smára í hálfleik.
Elfar Freyr Helgason kom inn á
sem varamaður á 58. mínútu. - óój
Fyrsti leikur Eiðs með AEK:
Fékk 45 mínútur
FÓTBOLTI Hópur vísindamanna
í Hollandi hefur sett fram
skemmtilega kenningu. Sam-
kvæmt niðurstöðu rannsóknar
sem sérfræðingarnir gerðu eru
meiri líkur á því að markverðir
skutli sér til hægri í vítaspyrn-
um sem framkvæmdar eru við
hátt spennustig í úrslitaleikjum
eða vítaspyrnukeppnum.
Hollendingarnir telja sig hafa
sannað að það sé eðlislægt hjá
mönnum að skutla sér til hægri
undir slíkum kringumstæðum.
Hins vegar benda vísindamenn-
irnir einnig á að við „venjuleg-
ar“ aðstæður séu meiri líkur á
því að markverðir skutli sér til
vinstri þegar verja þarf víta-
spyrnum
- seth
Vísindamenn í Hollandi:
Leyndarmálið
um vítakeppnir
FÓTBOLTI „Deyja fyrir klúbbinn”
er einkennislag og einkennisorð
Þórsara og þeir sýndu í gær að
þeir spila eftir þessum orðum.
Þvílík barátta og kraftur sem
skilaði 2-0 sigri á ÍBV og sæti í
úrslitaleik bikarkeppninnar. Þetta
verður fyrsti bikarúrslitaleikur
Þórs sem hafði sex sinnum leikið
í undanúrslitum áður.
Gegn gangi leiksins er ekki nógu
sterk klysja sem lýsir varla hálf-
leiksstöðunni í gær. Eyjamenn
sóttu án afláts til að byrja með og
fengu fín færi en skoruðu ekki.
Það gerði hins vegar Þór þegar
Dvid Dizstl potaði boltanum í tómt
markið eftir að Abel Dhaira mark-
maður hafði misst boltann klaufa-
lega yfir sig eftir innkast.
Taflið snerist við í seinni
hálfleik. Þórsarar byrjuðu mjög
vel, fengu fín færi og uppskáru
annað mark. Sveinn Elías skallaði
þá hornspyrnu Atla í markið en
dekkning Eyjamanna var ömurleg
auk þess sem þeir hindruðu eigin
markmann í að komast í boltann.
ÍBV reyndi hvað það gat en
allt kom fyrir ekki. Þeir sköpuðu
nokkur ágæt færi en þá skorti
greddu í teignum til að koma
tuðrunni í netið. Það var þeim dýrt
í gær.
Þórsarar börðust með hjartanu
og uppskáru vel. Þeir átu alla bolta,
í eigin teig og andstæðinganna.
„Það lá mikið á okkur og fyrri
hálfleikurinn var erfiður,” sagði
Páll Viðar Gíslason, þjálfari Þórs.
„Við vörðumst vel gegn mjög vel
spilandi ÍBV-liði. Við leiðum 1-0
og það er mjög ósanngjörn staða
samkvæmt öllum þeim sem hafa
vit á fótbolta. Við vorum þéttir
í seinni hálfleik og við vorum
brattari í seinni hálfleik en þeim
fyrri. Við féllum of mikið til
baka en það getur vel verið að
strákarnir séu að stríða mér með
þessu og ef þeir eru að gera það
er það í lagi, á meðan við erum að
vinna,” sagði Páll og hló við.
„Ég er auðvitað stoltur af strák-
unum. Ég er búinn að vera í
klúbbnum frá blautu barnsbeini,
hér eru vinirnir og fjölskyldan og
ég get ekki annað en verið stoltur.
Nú er bara golf á morgun og svo
annar úrslitaleikur, á móti Fram á
miðvikudaginn. Menn mega fagna
þessu afreki en það þýðir ekkert
að slaka á,” sagði Páll en Þórsar-
ar eru ekki á leiðinni á Þjóðhátíð í
Eyjum. „Aldeilis ekki, við leyfum
Eyjamönnum að vera þar einir,”
sagði Páll.
„Þetta var návæmlega eins og í
deildarleiknum, við vorum betra
knattspyrnulið en okkur skorti
bara áræðni í teignum til að klára
þetta. Ég ber fulla virðingu fyrir
Þórsliðinu, þeir eru rosalega dug-
legir í báðum teigunum. Þeir fórna
sér fyrir klúbbinn allan leikinn.
Það er hægt að fara ansi langt á
baráttu og vilja og það hafa þeir
sýnt,” sagði Tryggvi Guðmunds-
son.
- hþh
DÁVID DISZTL ÖFLUGUR Ungverjinn kom Þórsurum á bragðið í upphafi leiks og hefur
nú skorað 4 mörk í 3 bikarleikjum á þessu tímabili. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Er að springa úr stolti
Þórsarar sýndu að þeir eru svo sannarlega tilbúnir að deyja fyrir klúbbinn, eins
og þeir syngja ótt og títt í stúkunni. Barátta þeirra var til fyrirmyndar og eftir
sex töp í undanúrslitum spilar liðið loks um bikarmeistaratitilinn.