Fréttablaðið - 03.08.2011, Side 26
3. ÁGÚST 2011 MIÐVIKUDAGUR4 ● fréttablaðið ● ferðir
● SKJÓTUR SKILNAÐUR
Skilnaðir geta verið tímafrekir,
krefjandi og sóðalegir. Eigend-
ur hollensku hótelkeðjunnar
Heart break Hotel hafa séð við
því og segjast geta útvegað ráð-
gjafa, lögfræðinga og barna-
sálfræðing og gengið frá skiln-
aðinum á einni helgi. Hjónin
þurfa bara að bóka sig hvort á
sitt herbergið á einhverju hótel-
anna í keðjunni annað hvort í
Hollandi eða Belgíu og undir-
rita skilnaðarpappírana. Allar
nánari upplýsingar er að finna á
vefsíðu hótelkeðjunnar á www.
echtscheidingshotel.nl.
● SAFN UM SCHWARZENEGGER Safn helg-
að leikaranum og fyrrverandi ríkisstjór-
anum Arnold Schwarzenegger hefur
verið opnað á æskuheimili hans í
þorpinu Thal nærri Graz í Austur-
ríki. Gestum og gangandi gefst
þar kostur á að sjá við hvaða að-
stæður Schwarzenegger ólst upp
og skoða ýmsa muni sem tengjast kvik-
myndaferli vöðvatröllsins. Má þar nefna mót-
orhjól í fullri stærð úr Tortímandanum tvö
og sverð úr kvikmyndunum um villimanninn
Conan svo fátt eitt sé nefnt.
● FJÖLSKYLDUFERÐ Á
HRÍSGRJÓNAAKUR
Vinsældir vistvænnar ferðaþjón-
ustu hafa aukist undanfarin ár.
Hrísgrjónaræktendur á býlinu
Tiger land í Taílandi bjóða upp á
slíkar ferðir þar sem fjölskyldur
geta dvalið og ræktað lífræn
hrísgrjón í sex daga. Hægt er að
dvelja á sáningartíma í júní og
júlí og á uppskerutíma í október
og nóvember. Býlið er í Chiang
Rai í fjöllum Norður-Taílands.
Þátttakendur geta að auki upp-
lifað alls kyns skemmtun, svo
sem heimsókn á næturmarkað-
inn í Chiang Rai til nálægra ætt-
flokka. Frekari upplýsingar má
finna á vefsíðunni www.tiger-
landricefarm.com.
● TJALDSVÆÐI Ónýttar
flugbrautir og tóm flugskýli
standa nú þar sem reisa á
stærsta tjaldsvæði gervallra
Bandaríkjanna, nánar tiltekið á
Floyd Bennett Field-flugvelli í
suðurhluta Brooklyn-hverfis í
New York. Þetta eru góðar fréttir
fyrir þá sem vilja ferðast til New
York án þess að greiða hótel-
gistingu dýru verði. Tjald svæðið
er þó ekki aðeins ætlað ferða-
mönnum heldur er hugsunin
sú að borgarbúar geti þar lært
að setja upp tjöld, róa á kajak
og lifa á landsins gæðum. Flug-
völlurinn var reistur árið 1931 og
var mikið notaður
í seinni heims-
styrjöld en
hefur stað-
ið ónot-
aður í
fjöru-
tíu
ár.
● Í FÓTSPOR MÁRA OG MIÐALDARIDDARA
Ingibjörg Þórhallsdóttir og
Rúnar Karlsson reka ferða-
þjónustu á Spáni og sérsníða
gönguferðir og dagsetning-
ar að þörfum sex til sextán
manna hópa. Ein slík ferð er
um gróðursæla en yfirgefna
dali þar sem gengið er eftir
hlöðnum Márastígum frá 8.
öld, innan um orkídeur, pálma
og granateplatré. Meira á
gongufri.is.
Skannaðu QR kóðann
með snjallsímanum þínum
EX
PO
·
w
w
w
.e
xp
o.
is
12
9
Akstur frá BSÍ til fl ugstöðvarinnar með F
lug
rú
tu
nn
i t
ek
ur
u
m
þ
að
bi
l 45
MÍNÚTUR
3
6
Bókaðu á www.flugrutan.is
Áætlunarferðir Flug rútunnar
eru í tengslum við allar
komur og brottfarir flugvéla
um Keflavíkurflugvöll
Alltaf laus sæti!
NJÓTTU ÞESS AÐ FERÐAST Á EINFALDAN HÁTT
RÚTAN SEM
ÞÚ MÁTT
EKKI MISSA AF!
Áætlun Flugrútunnar frá BSÍ
til Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar
Brottfarir frá
Umferðarmiðstöðinni
til Keflavíkurflugvallar.
1950
önnur leiðin
VERÐ
KR.
975
önnur leiðin
VERÐ
KR.
1950
50% afsláttur
fyrir morgunhana
sem ferðast með
04:20 brottförinni.
Mán. – lau. Sun.
04:40 04:40
05:00 05:00
05:20 05:20
05:40 05:40
06:00 06:00
06:30 06:30
08:00 08:00
09:30
10:30 10:30
11:30 11:30
12:30 12:30
13:30 13:30
14:00 14:00
15:00 15:00
16:00
21:00 21:00
22:00 22:00
23:00 23:00
04:20 04:20
OR