Fréttablaðið - 03.08.2011, Síða 33
MIÐVIKUDAGUR 3. ágúst 2011 35
Ég vissi að ég myndi fanga athygli þína með ofan greindum
titli en hann er ekki alveg rök-
réttur, eða hvað? Á Íslandi tíðkast
það sem betur fer ekki að börn og
unglingar séu sötrandi kaffi. Hvers
vegna er það gott að börn og ung-
lingar drekka ekki kaffi? Í kaffinu
eru ýmis efni sem við viljum ekki
að börnin okkar fái og ber þar helst
að nefna efnið koffín sem bæði er
örvandi og ávanabindandi.
Kaffi- og gosdrykkja á Íslandi er
býsna algeng og súkkulaðiát með
mesta móti. Í nánast öllu dökku
gosi og súkkulaði er koffín. Því
myndi margur spyrja hvort viðbót
af koffíni sé einhver skaðvaldur?
Svarið við þeirri spurningu er ein-
faldlega já og á engan hátt ásætt-
anlegt að við gerum illt verra
og bætum enn frekar við koffín-
neysluna hjá íslenskum börnum og
unglingum. Undirritaður skrifaði
grein í Morgunblaðið um koffín
fyrir nokkrum árum en nú er svo
komið að þörf er á að fjalla aftur
um koffín því neysla barna og ung-
linga á orkudrykkjum, stútfullum
af koffíni, hefur aldrei verið meiri.
Áður en lengra er haldið er mikil-
vægt að skilgreina hvað orku-
drykkir eru og hvað þeir eru ekki,
því mikils ruglings gætir meðal
foreldra um þetta. Ekki er til form-
leg skilgreining á orkudrykkjum
en þeir eiga það allir sameigin-
legt að innihalda ansi mikið magn
af koffíni. Þeir eru oftast í 250 eða
500 ml álstaukum en Egils Orka
er þó undan tekning en hún er seld
í plasti. Flestir orkudrykkir eru
einnig með viðbættum vítamínum
og nokkrir með ginsengi og guar-
ana sem er uppspretta koffíns.
Dæmi um orkudrykki eru Red Bull,
Euroshopper, Burn, Cult og Orka.
Mikilvægt er að benda á að Power-
ade, Gatorade, Soccerade og fleiri
slíkir drykkir í 500 ml plastflösk-
um, oft í aðlaðandi litum, eru ekki
orkudrykkir. Þessir drykkir kallast
kolvetna- eða íþróttadrykkir og eru
ætlaðir til notkunar í íþróttum þar
sem svitatap er töluvert. Mjólkur-/
próteindrykkir, t.d. Hámark, sem
gott getur verið að neyta strax eftir
erfiða æfingu eða í einstaka skipti
sem millimál, eru heldur ekki orku-
drykkir. Sama má segja um gos-
drykki þó svo að magn koffíns sé
oft ansi hátt í gosdrykkjum. Orku-
drykkir eru ýmist sykurlausir (með
sætuefnum) eða stútfullir af sykri.
Um koffín
En hvað er það við koffín sem er
svo slæmt? Koffín er efni sem
viður kennt er til matarframleiðslu
um allan heim. Oft er það sett í
matvæli sem bragðefni en einnig
eru dæmi um að koffín sé sett í
matvöru vegna virkni efnisins á
líkamann og eru orku drykkir gott
dæmi um slíkt. Mörg mismunandi
sjónarhorn koma iðulega fram
þegar talið berst að koffíni. Jack
James var í viðtali í Fréttablaðinu
20. nóvember 2010 þar sem hann
reifaði skaðsemi/skaðleysi koffíns.
Hann benti réttilega á að það væri
vitað að koffín hækkaði blóðþrýst-
ing, það gæti haft áhrif á virkni
ýmissa lyfja og þegar þess væri
neytt í of miklu magni gæti það
haft neikvæð áhrif á fóstur. En það
er fleira sem benda má á varðandi
koffínneyslu. Neysla og ofneysla
koffíns getur valdið höfuðverk,
svima, kvíða, einbeitingarleysi,
auknu þvaglosi, óþægindum í melt-
ingarvegi, breytingum á hegðun og
ógleði. Í einhverjum tilfellum hafa
menn ráðlagt fólki frá því að neyta
koffíns og áfengis saman en mögu-
legt er að slíkt geti leitt til alvar-
legra hjartsláttartruflana.
En hvers vegna er orkudrykkja
þá neytt ef áhrifin af koffíni eru
svona slæm? Það er vegna örv-
andi áhrifa þess á miðtaugakerf-
ið og eru sterkustu rökin fyrir
áhrifum koffíns á líkamann bundin
við þennan þátt. Þegar fólk neyt-
ir koffíns, t.d. með drykkju orku-
drykkja, þá hressist það. Það eru
hins vegar skammtímaáhrif og oft
er fólk þreyttara þegar áhrif koff-
íns dvína en áður en þess var neytt.
Ávinningur neyslunnar er því í
raun enginn.
Er þá einhver ástæða til þess
að gefa börnum okkar og ungling-
um orkudrykki? Nei, alls ekki, og
hafa ber í huga að áhrif koffíns á
líkamann eru á hvert kílógramm
líkamsþyngdar og því eru áhrifin
mun meiri á smáa líkama en stóra.
Auk þess eru orkudrykkir oftast
fullir af sykri og ekki er á bætandi
í sykurneyslu barna og unglinga á
Íslandi.
Gaman er að nefna að ef neyslu-
mynstur barna og unglinga á gos-
drykkjum myndi breytast og í stað
hefðbundinna gosdrykkja myndu
þau t.d. drekka Klettakók þá gæti
maður fært rök fyrir því að sykur-
neysla þessa hóps yrði helming-
uð! Hér er gert ráð fyrir því að
börn og unglingar „þyrftu“ ennþá
að drekka gos þó að best væri að
sleppa því. En hvernig má þetta
vera? Með því að skipta um tegund
þá er sykurneyslan helminguð?
Í kóki frá Klettagosi er meira en
helmingi minna af sykri en í öðru
slíku gosi frá hinum framleiðend-
unum. Það munar um minna þegar
allir þessir þúsundir lítra renna, ár
hvert, ofan í börnin okkar og ung-
lingana!
Foreldrar: Hvers vegna leyfum
við börnunum okkar að drekka
ígildi kaffis? Tja, og reyndar rúm-
lega ígildi því hefðbundinn orku-
drykkur inniheldur oft meira magn
koffíns en hefðbundinn kaffibolli
auk þess sem flestir orku drykkir
innihalda líka mikinn sykur og
óþarfa magn af vítamínum og
öðrum örvandi efnum.
Sýnum ábyrgð og fylgjumst með
börnunum okkar! Við endurtökum
ekki uppeldi þeirra!
Kaffi- og gosdrykkja á Íslandi er býsna algeng
og súkkulaðiát með mesta móti. Í nánast öllu
dökku gosi og súkkulaði er koffín.
Kaffidrykkja íslenskra barna er staðreynd!
Heilbrigðismál
Steinar B.
Aðalbjörnsson
næringarfræðingur