Fréttablaðið


Fréttablaðið - 13.09.2011, Qupperneq 22

Fréttablaðið - 13.09.2011, Qupperneq 22
13. september 2011 ÞRIÐJUDAGUR2 Kameron hefur verið önnum kafinn við að kenna dans síðan hann tók þátt í dansþættinum vin- sæla og ferðast um allan heim í því augnamiði. „Ég flutti til New York strax eftir þættina og hef búið þar síðan og æft dans. Þættirnir gerðu mig það þekktan að ég hef verið eftirsóttur sem kennari allar götur síðan. Kennt mikið í Ástralíu, Suður-Afríku, Skotlandi og fleiri stöðum sem ég hefði aldrei komið til annars.“ Er þessi stöðugi flækingur ekki þreytandi? „Ef ég á að vera hrein- skilinn þá tekur þetta dálítið á. Ég var 21 árs þegar ég tók þátt í SYTYCD og þá hafði maður enda- lausa orku. Nú er ég 25 ára og er farinn að finna fyrir því að þetta tekur sinn toll. En þetta er það sem ég vil gera og ég nýt þess í botn, þannig að ég er búinn að eyða orð- inu þreyta úr mínum orðaforða,“ segir Kameron hlæjandi. fridrikab@frettabladid.is Framhald af forsíðu Kameron hefur kennt víða, meðal annars í Ástralíu, Afríku og Skotlandi. Ferðamálaskóli Íslands www.menntun.is Sími 567 1466 Meðal námsefnis: Mannleg samskipti. Helstu áfangastaðir erlendis í máli og myndum. Mismunandi trúarbrögð. Saga landsins, menning og listir. Frumbyggjar og saga staðarins. Þjóðlegir siðir og hefðir. Leiðsögutækni og ræðumennska. Ferðalandafræði: Evrópa, Asía, Africa, Ameríka og Eyjaálfan. Námið fer fram í formi fyrirlestra og reynslu fararstjóra í leiðsögn á erlendri grund. Leiðbeinendur eru: Kjartan Trausti Sigurðsson, Pétur Björnsson, Jóhanna Kristjónsdóttir, Höskuldur Frímannsson, Magnús Björnsson, Pétur Óli Pétursson, Bjarni Randver Sigurvinsson, Sr. Bragi Skúlason. Fararstjórn erlendis G æ ð i H r e i n l e i k i V i r k n i M A G N Ú S D Ó T T I R H Ó L M F R Í Ð U R F æ ð u b ó t a re f n i í l a n d s l i ð s k l a s s a f y r i r þ á s e m v i l j a n á á r a n g r i SKÓMARKAÐUR Grensásvegur 8 & Nýbýlavegur 12 Sími 517 2040 Opið mánud-föstud. 11-18 laugard. 11-16 St. 36-41 St. 40-46 St. 37-41 St. 36-41 Verð: 6.575 Verð: 6.595 Verð: 6.295 Verð: 5.895 NÝ SENDING ÍSLENSKT HUNDANAMMI Fæst í Bónus, Samkaup, 10-11, Fjarðarkaup og Inspired Keflavíkurflugvelli gott í þjálfun og í leik VINSÆLVARA Timburmenn eru eftirköst mikillar áfengisdrykkju. Slík eftir- köst eru vegna eituráhrifa áfengis og einkennast af höfuð- verk, óreglulegum hjartslætti, ógleði og ertingu frá melt- ingarvegi. Höfuðverkurinnn er oftast vegna ofþornunar en áfengi hefur vatnslosandi áhrif. Vísindamenn á Rannsóknarstofu í stofnfrumufræðum við Lífvísinda- setur Háskóla Íslands og Land- spítalann birtu nýverið grein í lífvísinda ritinu PLoS ONE sem varpar nýju ljósi á tengsl stofn- frumna við æxlisvöxt í brjósta- krabbameinum. Þeir binda vonir við að uppgötvanir þeirra skili sér í nýjum meðferðar úrræðum. Rannsóknin, sem var hluti af doktorsverkefni Valgarðs Sigurðs- sonar, snerist um að þróa þrívítt frumuræktunarlíkan þar sem æðaþelsfrumur voru ræktaðar með stofnfrumum úr brjóst kirtli. „Okkur tókst að sýna fram á hvern- ig svokallaðar æðaþels frumur (æðaþel er innsta lagið í vegg æða) geta umbreytt stofnfrumum í brjóstkirtli í svokallaðar bandvefs- líkar frumur. Slíkar bandvefs líkar frumur hafa þann eiginleika að skríða frá upprunalegri staðsetn- ingu yfir í nærliggjandi vefi og eru taldar gegna hlutverki í mein- vörpum brjóstakrabbameina,“ segir Þórarinn Guðjónsson, dós- ent í vefjafræði við Læknadeild Háskóla Íslands, sem stýrði rann- sókninni ásamt Magnúsi Karli Magnússyni prófessor. Bandvefsumbreyting æxlis- frumna af þessu tagi er algeng í undirflokki brjóstakrabbameina, svokallaðra basal-líkra æxla, þar sem batahorfur eru verri en í öðrum tegundum brjóstakrabba- meina. „Hingað til hafa engin sér- tæk lyf virkað á þessi æxli. Því eru notuð breiðvirkandi lyf sem hafa oftar en ekki slæm áhrif á einstaklinginn að öðru leyti. Við erum að vonast til hægt verði að nota lyf, sem jafnvel eru til á mark- aði í dag, til að hindra þennan æðavöxt samhliða öðrum lyfjum. Með öðrum orðum að hægt verði að koma í veg fyrir að æðaþelsfrum- urnar geti haft þau áhrif á stofn- frumurnar að þær fari að skríða inn í aðlæga vefi,“ segir Þórarinn. Hann segir rannsóknina varpa ljósi á samspil æða og brjósta- krabbameinsfrumna og að hún auki þannig líkur á að hægt verði að þróa ný meðferðarúrræði sem beinist að þessu samspili. Hann segir mikinn áhuga á því að þróa krabbameinsmeðferðir sem hindra meinvarpamyndun enda eru þau helsta dánarorsök krabbameins- sjúklinga. vera@frettabladid.is Skilar sér mögulega í nýjum meðferðarúrræðum Rannsókn íslenskra vísindamanna varpar ljósi á tengsl stofnfrumna við æxlisvöxt í brjóstakrabbameinum. Hún eykur líkur á að hægt verði að þróa ný meðferðarúrræði sem mögulega hindra meinvörp. Þórarinn (til vinstri) og Magnús Karl segja mikinn áhuga á að þróa meðferðir sem hindra meinvörp enda draga þau marga til dauða. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL Vísindamönnunum tókst að sýna fram á hvernig svokallaðar æðaþelsfrumur geta umbreytt stofnfrumum þannig að þær fari að skríða frá upprunalegri staðsetningu yfir í nærliggjandi vefi og mynda meinvörp. NORDICPHOTOS/GETTY FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN MEIRI SKEMMTUN Meiri Vísir.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.