Faxi - 01.12.1982, Qupperneq 11
Ragnar Guðleifsson:
Samvinnuverslun á
Suðumesjum fyrír 1945
FYRSTA BÚÐ KRON i KEFLAVÍK. Aðalgata 10. í dyrunum stendur Sölvi Ólafs-
son, en við hjólið er sendiHinn, Guðbjörn Þorsteinsson, sem seinna varð kunnur
skipstjóri og útgerðarmaður.
KRON-BÚÐIR OPNAÐAR
í KEFLAVÍK
Þegar Kaupfélag Reykjavíkur
og nágrennis var stofnað og Pönt-
unarfélag V.S.F.K. varð eitt af
stofnfélðgum þess, var það
ákveðið, að fljótlega yrði opnuð
sölubúð í Keflavík. Var þegar haf-
ist handa um framkvæmdir og 9.
nóvember það ár var opnuö sölu-
búð við Aðalgötu 10, í húsi Þórar-
ins Ólafssonar, trésmiðs. Hús
þetta hafði áður verið trésmíða-
verkstæði Þórarins, en það var
upphaflega byggt sem verslunar-
hús. Guðmundur Helgi Ólafsson
byggði húsið og verslaði þar á
sinni tíð.
Miðað við verslanir hér á þeim
tíma, var verslunarhús þetta
sæmilegt hvað stærð snerti. Þar
voru allar innréttingar, hillur og
borð, af nýjust gerð og hagkvæm-
ar mjög á þeirra tíma mælikvarða.
En búðin var lítil og ekki til fram-
búðar, einkum var vinnuaðstaða
öll við afgreiðslu pantana og út-
sendingu þeirra ófullnægjandi.
Þannig var háttað viðskiptakjör-
um félagsmanna KRON, að þeir
höfðu rétt til að panta vörur hálfs-
mánaðarlega, sem þeirsóttu sjálf-
ir eða voru sendar heim til þeirra.
Þessar vörur fengu þeir með 5%
afslætti. Auk þess greiddi KRON
tekjuafgang eftir ársuppgjör, gegn
framvísun kassakvittana. Var
þessi arður öll þau ár, sem KRON
starfaði 7%, þar af voru 4% borg-
uð út, en 3% lögðust í stofnsjóð.
Þegar Keflavíkurdeildin skildi við
KRON og Kaupfélag Suðurnesja
var stofnað, fluttust stofnsjóðir fé-
lagsmanna til kaupfélagsins.
Flestir félagar notuðu sér þessi
kjör og pöntuðu reglulega. Þessi
afgreiðsla útheimti sérstakt hús-
rými. Þar við bættist að frá þessari
búð gekk sölubíll í nágranna-
byggðarlögin: Leiru, Garð,
Njarðvík, (Ytri- og Innri Njarðvík),
Hafnir og Grindavík (öll hverfin
þrjú). Voru þessar söluferðir fam-
ar vikulega. Vörur vorn seldar úr
bílnum - skilað var pöntunum og
tekið á móti nýjum pöntunum.
Til þess að bæta úr brýnni þörf
fyrir stærri búð og rýmra vinnu-
svæði til afgreiðslu pantana, var
nú ötullega að því unnið aö deildin
eignaðist stærra og fullkomnara
verslunarhús og vann enginn bet-
ur að því en framkvæmdastjóri fé-
lagsins, Jens Figved. Hann hafði á
því brennandi áhuga, enda leið
ekki á löngu að úr rættist. Þrátt fyrir
alla erfiðleika, sem þá var við að
etja, vegna heimsstyrjaldarinnar,
kom að því, að haustið 1941
skýrði Figved frá því, að starfs-
mannafélag KRON ætti skíða-
skála í nánd við Hveradali, sem
þeir vildu selja og hefði hann í
hyggju að fá samþykki stjórnar
Fyrsta starfsfólk KRON í Keflavík
Ragnar Guðleifsson deildarstþrí.
Margrét Arinbjörnsdóttir.
Sölvi Ólafsson.
Jens Figved, framkvæmdastjórí
KRON.
KRON til þess að kaupa skálann,
flytja hann suður til Keflavíkur og
byggja þar úr honum búð.
Leið nú haustiðog fram á vetur-
inn 1942, en þá sagði Figved frá
því að skíðaskálinn væri fenginn.
Var skálinn síðan fluttur suður
sundurrifinn á tveimur bílum. Lá
nú brakið um tíma á fiskreit Edin-
borgarverslunar, þar sem nú eru
mörk verslunarhúss Kaupfélags
Suðurnesja, Hafnargötu 30, og
verslunarhúss Stapafells. En
KRON hafði þá keypt lóðina þar
fyrir vestan, að Tjarnargötu, þar
sem verslun Kaupfélagsins, Hafn-
argötu 30, stendur nú.
Þórður Jasonarson byggingarmeist-
ari. Byggði verslunarhús KRON í
Keftavík, 1941-42.
Ekki hafði brakið úr skíðaskál-
anum legið þarna lengi, er bíll kom
frá KRON í Reykjavík og sótti
meginið af máttarstoðum skíða-
skálans, sem var.
Leið nú að vori, en þá kom
Figved einn góöan veðurdag með
teikningu af hinu fyrirhugaða
verslunarhúsi. Húsið hafði teiknað
Halldór H. Jónsson, arkitekt, og
var hann með í förinni. Skömmu
síðar kom byggingarmeistarinn, en
hann var Þórður Jasonarson, þá
nýkominn frá Svíþjóð og um líkt
FAXI-191