Faxi - 01.12.1982, Page 12
Verslunarhús KRON í Keflavik reist sumarið 1941. Verslunarhús KRON, Hafnargötu 30, fullbyggt.
leyti kom bróðir hans Stefán
Jasonarson, sem vann með hon-
um við bygginguna.
Var nú hafist handa við bygg-
ingu hússins. Grunnursteyptur og
var kjallari undir hálfu húsinu, fyrir
geymslu og kyndingu. Var síðan
húsið byggt úr timbri. Á þessum
árum, þegar heimsstyrjöldin stóð
sem hæst, var erfitt að fá sement,
og var þá algjört bann við því að
byggja stór hús, svo sem verslun-
arhús, úrsteypu. Þvívarbrugðiðá
það ráð að byggja húsið úr timbri.
Húsið var þannig byggt. Þegar
griridin hafði verið reist, var hún
klædd viðarborðum að innan-
verðu en ekki að utanverðu, eins
og venja var og er við slíkar bygg-
ingar. Þegar veggurinn hafði verið
klæddur þannig, var rúmið milli
stafa að utanveröu fyllt með reið-
ingi. Þar næst var rúminu lokað að
utan með asfalt-pappa. Þá var
venjulegt múrhúðunarnet strengt
á vegginn utanverðan og síðan
múrhúðað. Einnig voru veggir
múrhúðaðir að innanverðu. Þann-
ig var húsið byggt og það stendur
enn lítið breytt. Þó hafa dyr sem
voru nálægt norð-austurhorni ver-
ið færðar á miðja norðurhlið og
dyr, sem voru á austur-hlið, þar
sem nú er annar gluggi frá norð-
austurhomi, hafa verið færðar til
suöurs, þangaö sem þær eru nú.
Þá var húsið einnig allt klætt að
utan með stáli. Breytingar þessar
voru gerðar, þegar búðinni var
breytt í kjörbúð.
HÚSIÐ TEKIÐ í
NOTKUN - BÚÐIN OPNUÐ
1. MARS1942
Þannig segir ritstjóri FAXA,
Kristinn Reyr, frá í mars-blaði
FAXA1942:
„Tíðindamönnum blaöa og út-
varps var boðið 1. þ.m. að skoða
verslunarhús kaupfélagsins sem
Tvær bjarlar hlíðar
á hverjum miða
Annars vegar: — góð von þín um veglegan vinning því nær 2/3
hlutar veltunnar fara í vinninga, og meira en fjórðí hver miði
hlýturvinning.
Hin hliðin, jafnvél enn bjartari: Hver seldur miði á
þátt í því að vonir annarra rætast. Þeirra hundruða sem
þurfa á endufhæfingu og þjálfunarstarfi á Reykja-
lundi að halda.
Auk þeirra 70 öryrkja sem daglega stunda
vinnu sína í nýjum húsakynnum Múlalundar.
Það eru tvær góðar hliðar á þessu málL____
________Happdrætti SÍBS____________________
FAXI-192