Faxi

Årgang

Faxi - 01.12.1982, Side 14

Faxi - 01.12.1982, Side 14
Iðnir Suðumesjaríthöfundar Bókaflóðið hefur boríð eftirtaldar bækur ríthöfunda afSuðumesjum á fjömr Faxa Séra Jón Thorarensen frá Kot- vogi sem þekktur er og virtur fyrir ritstörf sín — og þá ekki hvaö síst af Suöumesjamönnum sendir nú áttræður frá sér bókina LITLA SKINNIÐ — eöa blöndukútur- inn. í bókinni segir séra Jón einkum frá uppruna sínum og rekur líf og störf forfeöra sinna. Enn sem fyrr miölar höfundurinn þannig samtíö sinni og eftirkomendum söguleg- um fróöleik og þá ekki hvaö síst um sjómennsku í gömlum stíl og er þar bæöi um eigin frásagnir og annarra aö ræöa. Einnig hefur bókin aö geyma þjóðsögulegar frásagnir og sögur dulræns eðlis ásamt skrá um Hafnamiö. Stíll séra Jóns er sem fyrr þrótt- mikill og málfariö kjamyrt. Litla skinnið er falleg bók hvernig sem á hana er litiö. Hún er gefin út af Nesjaútgáf- unni. * Út er komið annað bindi endur- minninga Karvels Ögmunds- sonar SJÓMANNSÆVI. KEFLAVÍK Auglýsing um tímabundna um- ferðartakmörkun í Keflavík Frá laugardegi 4. desember til föstudags 31. desember 1982, að báðum dögum meðtöld- um, er vöruferming og afferming bönnuð á Hafnargötu á almennum afgreiðslutíma versl- ana. Á framangreindu tímabili verða settar hömlur á umferð um Hafnargötu og nærliggjandi götur, og annars staðar, sem þurfa þykir, svo sem tekinn upp einstefnuakstur eða umferð öku- tækja bönnuó með öllu. Veróa þá settar upp merkingar er gefa slíkt til kynna. Keflavík, 1. desember 1982. Lögreglustjórinn í Keflavík Fyrsta bindi Sjómannsævi end- urminninga Karvels kom út I fyrra og hefur vakið mikla athygli og fengið góöa dóma, enda er þar um einstæðar lýsingar á lífi og starfi fólks á bernskuárum hans aö ræða. í ööru bindi Sjómannsævisegir Karvel Ögmundsson m.a. frá fyrstu árum sjómennsku sinnar og samferðarfólki sínu. Frásagnar- hæfileikar Karvels eru fágætir og leiða þeir lesandann auðveldlega inn í iöu viöburöanna. Bókaútgáf- anÖrn ogÖrlygurgefurbókina út. * GEIRFUGLARNIR er nýútkomin skáldsaga eftir burtflutta Keflvík- inginn Árna Bergmann ritstjóra. Geirfuglarnir er skáldsaga í end- urminningarstíl og gerist í litlu plássi á Suöurnesjum, Selatöng- um. Sögumaður er drengur, sem þar fæöist og nemur smám saman veröldina í kringum sig. En yfir byggöinni vofir háski sem er kannski óumflýjanleguren hefðief til vill mátt afstýra. Geirfuglarnirer frumraun Árna í skáldsagnagerö og þykir mönnum vel af staö fariö. Mál og menning gefur bókina út. * Jón Dan hefur nýveriö sent frá sér skáldsöguna VIÐJAR sem bóka- klúbbur Arnar og Örlygs gefur út. Sagan fjallar einkum um unglings- dreng, sem ekkert hefur haft aö fööur sínum aö segja og baráttu hans viö umhverfið. En kona leitar lags við hann og leiðir hún hann í sannleikann um leyndardóma lífs- ins. Efnistök höfundar leiöa hug lesandans sterklega inn í viöhorf og vandamál allra unglinga. Jón Dan er fæddur á Vatns- leysuströnd, sem kunnugt er og sögusviöiö í mörgum bókum hans er heimaslóðir hér suður meö sjó. * Grindvíkingurinn Guðbergur Bergsson er höfundur nýútkom- innar skáldsögu sem nefnist Hjartað býr enn í helli sinum. Sagan gerist á núverandi heimaslóö höfundar, Reykjavík og þó mest á Hlemmi. Aðalpersónur sögunnar eru hjón, maöurinn sálfræöingur en konan félagsráögjafi. Þau skilja eftir aö tekiö er aö rofa til í lífsbar- áttu þeirra og þeim hafa fæöst tværdætur. Þáersvokomiöaöallt snýst um jafnréttið. En eftirskiln- aöinn tekur viö ,,hiö frjálsa líf“ og flækjur þess. Mál og menning gef- ur bókina út. FAXI- 194

x

Faxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.