Faxi - 01.12.1982, Síða 37
Hluti bílaflotans árið 1960.
Elsti vagninn árgerð 1965. Honum hefur verið ekið 1.260þús. km.
Stjórn S.B.K.
Sitjandi frá vinstri: Jón P. Guðmundsson, Guðjón Stefánsson form. sérieyfisnefndar, Ásgeir Einarsson. Standandi frá
vinstri: Ragnar Friðriksson fuiitrúi, Sveinn Guónason, fulltrúi starfsmanna i sérleyfisnefnd. Jón Stigsson, eftirlitsmaður og
Steinþór Júlíusson, bæjarstjóri.
Heildarvelta fyrirtækisins á ár-
inu 1981 var kr. 5.503.301.-
Rekstrarhagnaður var kr.
412.144,-
Eins og áður segir hefur rekstr-
arhagnaður fyrirtækisins verið
skaplegur undanfarin ár. Þess
vegna var hægt að kaupa nýja
vagna á árunum 1980 og 1981. Á
árinu 1983 þarf aö fá nýjan vagn
og er vonast til, að hagur fyrirtæk-
isins verði með þeim hætti, að það
takizt.
Á liðnum 40 árum hefur hagur
Sérleyfisbifreiða Keflavíkur verið
með ýmsu móti. Stundum gengið
vel og stundum illa. Miklar þjóðfé-
lagsbreytingar hafa átt sér stað á
þessum 4 áratugum. Hafa þær
haft margvísleg áhrif á rekstur fyr-
irtækisins. Stjórnvöld hafa oft á
tíðum haft mikil áhrif á afkomuna,
sér í lagi með verðlagshömlum,
sem hafa stórskaðað fyrirtækið.
En þrátt fyrir margskonar erfið-
leika, sem fyrirtækið hefur gengið í
gegn um, skal það sérstaklega
tekið fram og undirstrikað, að það
hefur aldrei fengið fjárstyrk frá
bæjarsjóði, hvorki í rekstur né til
fjárfestingar. Það er von stjórnar
fyrirtækisins, að ekki þurfi til þess
að koma í framtíðinni og að hagur
þess blómgist og dafni á komandi
árum, bæjarbúum og öðrum til
hagsældar.
(Frá stjóm Sérleyfisbifreiða Kefla-
víkur)
nýja bílakostinn svo sem þörf var
á.
Þá var gripið til þess ráðs að
selja bæjarsjóði fasteignir fyrir-
tækisins, afgreiðslu- og skrifstofu-
húsnæði, bílaverkstæði og
þvottahús bifreiða. Með því móti
var hægt að hefja endumýjun
vagnakostsins og hefur endurnýj-
un verið eðlileg síðan. Afgreiðslan
var flutt í nýtt húsnæði á lóðinni
Hafnarg. 10-12. Viðhald bifreið-
anna hefur verið keypt af bæjar-
sjóði eftir að hann eignaðist verk-
stæðið.
Samtímis því að fasteignir fyrir-
tækisins voru seldar var óhjá-
kvæmilegt annað en að draga
nokkuð saman reksturinn. Ferð-
um á áætlunarleiðum var fækkað
úr 18 í 12 og jafnframt var starfs-
mönnum fækkað. Síðan þetta var
hefur ferðum aftur verið fjölgað úr
12 í 14.
Um leið og starfsemin vardreg-
in saman og starfsmönnum fækk-
að, var bæjarstjóri gerður aðfram-
kvæmdastjóra fyrirtækisins.
Ragnar Friðriksson, sem áður
hafði gegnt því starfi, tók viö nýju
starfi á bæjarskrifstofunum og
heyra málefni sérleyfisbifreiðanna
undir hann í þvi starfi.
Auk sérleyfisins er ýmiss annar
akstur rekinn á vegum fyrirtækis-
ins. Fyrst skal nefna akstur á
starsfólki Varnarliðsins, en þann
akstur hefur fyrirtækið annast í 25
ár óslitið. Auk þess er nokkur akst-
ur á skólabörnum fyrir Varn arliðið.
Haustið 1978 var hafinn akstur
á skólabörnum í Keflavík. í dag er
um 250 börnum ekið milli heimilis
ogskóladaglega.
Hópferðir eru enn sem fyrr snar
þáttur í starfsemi fyrirtækisins.
Bifreiðir fyrirtækisins aka sem
Tveir nýjustu biiarnir.
næst 550 þús. km. á ári og er far-
þegafjöldi á ári um 180 þús. á sér-
leyfisleiðinni.
Bifreiðarnar eru nú 8 talsins og
geta flutt samtímis 414 farþega.
Starfsfólk er 15 að tölu, þar af eru
10 vagnstjórar.
FAXI-217