Faxi - 01.12.1982, Side 43
SPARISJÓÐURINN í KEFLAVÍK 75 ÁRA
Útgefandi: Sparisjóðurinn í Keflavík
Ritnefnd: OlafurA. Porsteinsson, Jón Tómasson og Skafti Friðfinnsson
Þær hafa ekki verið fyrirferðamiklar bækurnar, sem skrifaðar hafa
verið um Keflavík eða Suðumes. Því hlýtur það að vera fagnaðar efni
að ein stærsta og merkasta stofnunin á svæðinu, Sparisjóðurinn í
Keflavík, skuli láta skrá sögu sína á 75 ára afmælinu og gefa nana út í
eins veglegu riti og raun ber vitni. Hér hafa margir verið að verki en
mér sýnist starf ritnefndar sérlega lofsvert. Ritið er 136 síður með
f jölda mynda ekki einungis úr sögu Sparisjóðsins heldur sögu byggð-
arlaganna í heild. Hér er því mikinn fróðleik að finna í máli og
myndum. Ástæða er til að vekja athygli á greinum Eiríks Guðnasonar
og Eyþórs Þórðarsonar í ritinu um peningamál og Sparisjóðurinn á
Rosmhvalanesi. Við, sem hérstörfum, eigum aðsjálfsögðu margt að
þakka Sþarisjóðnum. En á þessum tímamótum er mér efst í huga sú
vinsemd, sem núverandi stjórnendur Tómas Tómasson og Páll
Jónsson hafa sýnt margháttuðu félags- og menningarlífi á Suöur-
nesjum með beinum og óbeinum fjárframlögum frá sjóðnum. Aðeins
eitt fannst mér aðfinnsluvert. Á kápu er mynd af fallegu málverki eftir
BenediktGunnarsson listmálara. Ég sánafnmálaranshvergi í ritinu.
Hilmar Jónsson.
*
Eins og fram kemur í umsögn Hilmars Jónssonar bókavarðar um
afmælisrit Sparisjóðsins í Keflavík, féll niður af titilsíðu að geta þess
að forsíöa er hluti af málverki eftir Benedikt Gunnarsson listmálara,
sem hann málaði að ósk Sparisjóðsins. Hönnun forsíðu var að öðru
leyti gerð á auglýsingastofunni. Teiknað hjá Tómasi sem einnig
filmuvann línuritin og bjó til prentunar. Á þessu eru hlutaðeigendur
beðnir velvirðingar.
Sungið við gítarundirleik
SVIPMYNDIR UR
SVARTSENGISFERÐ
Svipmyndir úr Svartsengis-
ferð foreldra- og kennarafélags
Bamaskólans í Keflavík sem
efnt var til laugardaginn 25.
septembers.l.
Eins og kunnugt er var það í
fyrra, sem félagið efndi í fyrsta
sinn til Svartsengisferðar og
hafa báðar ferðirnar heppnast
sérlega vel, fólk verið samstillt i
því að gleðjast og kætast og
veðrið hefur í bæði skiptin verið
eins og haustveður getur fegurst
verið hér um slóðir.
Vilhjálmur skólastjóri gefur frá sér boltann.
v_______________________I_________________________________________________________)
Það besta er aldrei
of gottfyrirþig!
Mikið úrval af
hollenskum myndarömmum, hringlaga
og sporöskjulaga römmum.
Vönduð vara.
Vinsamlegast gleymið ekki að sækja myndir
á réttum tíma.
Þeir sem eiga eldri pantanir, vitji þeirra nú þegar,
því annars verða þær seldar fyrir kostnaði.
Mikið úrval af hinum sívinsælu BLÓMAMÁLVERKUM.
Rosenthal
og
Kosta Boda
Glæsilegar
gjafavörur
Mikið úrval af Aðeins það besta.
álrömmum.
Álramma getur fólk
sett saman sjálft.
Málverkaljós.
ALHLIÐA INNRÖMMUN
OPIÐ 1-6 VIRKA DAGA.
InnRömmun
nnesjfl
Vatnsnesvegi12
Keflavík - Sími 3598
FAXI - 223