Faxi - 01.12.1982, Síða 48
AÐDAUNARVERT FRAMTAK
Eins og lesendum Faxa ere.t.v.
kunnugt, hafa þeir er í hann rita,
reynt aö vera vakandi fyrir öllu því
er telja má til markverðra atburöa,
og þá sérstaklega um Suðurnes,
og þaö aö stofnaður haföi veriö
Tónlistarskóli í Vogum, í ekki fjöl-
mennara hreppsfélagi en þar er,
en Vatnsleysustrandahreppur tel-
ur nú um 600 íbúa, fannst okkur
næg ástæöa til að gera okkur ferð
í Voga og taka Ragnheiði Guö-
mundsdóttur skólastjóra Tónlist-
arskólans tali og forvitnast svolítið
um aðdraganda og tilurö skólans.
Já, þaö var haustið 1977 að ég
hóf kennslu í einsöng viö Tónlist-
arskóla Njarövíkur og meðal nem-
enda minna voru tvær konur úr
Vogum, þær Inga Hannesdóttirog
Hulda Kristinsdóttir. Þær lögöu oft
mikið á sig til að sækja skólann og
Guðrún Egilsdóttir og Ómar Jónsson
syngja dúett.
létu hvorki illa færö, tímaleysi eöa
annað aftra sér. Þær ræddu oft
þann möguleika aö stofna hér tón-
listarskóla og töldu nægan grund-
völl fyrir slíkri stofnun hvað varö-
aöi áhuga hreppsbúa.
Voriö 1979 fluttist ég í Voga og
þaö fór ekki fram hjá mér, aö svo
sannarlega var áhuginn og efni-
viðurinn nógur, gott dæmi um þaö
er t.d. aö foreldrar tveggja bræöra
hér óku meö þá alla leiö í Hafnar-
fjörö tvisvar í viku í heilan vetur og
sóttu hvern einasta kennslutíma,
ekki einn féll úr.
Hér er góður kirkjukór starfandi
sem Jón Guðnason organisti á
Landakoti stjórnar. Jón haföi lengi
sýnt þessu málefni mikinn áhuga
og hafði fært þetta í tal viö menn úr
hreppsnefnd, en ekki komst nú
verulegur skriður á málið fyrr en
Gítarleikararnir Guðmundur Asgeir
Ólafsson og Magnea Jónsdóttir.
Ragnheiður Guðmundsdóttir.
haldinn var hér í Kirkjugerði 9 eins
konar umræðufundur um málið.
Þetta var þann 30. des. 1980 og
voru hér mætt auk mín þau Inga
og maður hennar Helgi Davíös-
son og Hulda Kristinsdóttir. Ragn-
heiður sýnir okkur gestabók heim-
ilisins, þar sem þau hafa ritað nöfn
sín undirfyrisögnina, „Fundurum
væntanlega stofnun Tónlistar-
skóla í Vogum.“ Hvaö geröist svo
í framhaldi þessa fundar?
Næst var að kanna áþreifan-
lega vilja hreþpsbúa og þaö var
gert meö undirskriftalista og út-
koman var svo jákvæö aö okkur
sem að þessu stóöu óx enn ás-
megin og næsta skrefið var aö
leggja máliö fyrir ráðamenn
hreppsins. Nú vissum viö aö í
mörg og mjög aðkallandi horn var
aö líta hér í okkar vaxandi byggö-
arlagi og sem e.t.v. má segja aö
væru mun nauðsynlegri en stofn-
un tónlistarskóla, en viö riðum á
vaöið og þeir tóku málinu af mikl-
um skilningi og grunar mig aö
góöur talsmaður þessa máls í þá-
verandi hreppsnefnd hafi verið
Hreinn Ásgrímsson, skólastjóri
Stóru-Vogaskóla. Skólanefnd var
skipuö þannig: Sveinn Eiösson,
Guörún Egilsdóttir og ég. Viö aug-
lýstum eftir skólastjóra og lögöum
áherslu á að sá er til skólans réðist
flytti á staðinn, þar sem m.a. telja
má þaö ótvíræöan kost hvað aö-
hald, kostnað og allan rekstur
slíkrar stofnunar varöar, aö sá er
fyrir henni stendur sé öllum hnút-
um viðkomandi bæjar- eöa sveit-
arfélags kunnugur og taki þar af
leiðandi miö af getu þess til rekst-
ursins. Þetta tókst nú ekki, en aö
skólanum var ráöinn Jakob Hall-
grímsson úr Reykjavík og auk
hans kenndu viö skólann þennan
fyrst vetur Atli Ingólfsson og ég.
Skólinn fékk inni í Hábæ, gömlu
verslunarhúsi og einnig aöstööu til
hópkennslu og tónleikahalds í
hinum nýja og vistlega grunnskóla
staöarins, Stóru-Vogaskóla.
Lionsmenn úr Keili brugöu skjótt
viö er viö báöum um aðstoð viö aö
mála og snyrta húsnæöiö, einnig
nutum viö hjálpar Jóns Inga Bald-
vinssonar og Símonar Kristjáns-
sonar á Neöri-Brunnastööum viö
teppalagnir o.fl. Við Guðrún skipt-
um meö okkur gluggatjaldasaumi
og allt gekk þetta eins og í sögu.
- FJÖLBRAUTASKÓLI
MC SUÐURNESJA
Umsóknarfrestur
um skólavist á vorönn 1983 er til loka haust-
annar.
Eldri umsóknir þarf að staðfesta.
Nánari upplýsingar veitir skrifstofa skólans.
Skólameistari
Athugið
/ Brekkubúð er býsna margt
í matinn.
Sendum heim jólapöntun.
BREKKUBÚÐIN
Tjarnargötu 31 - Keflavík - Sími 2150
FAXI-228