Faxi - 01.12.1982, Qupperneq 59
gðheilla...áma£
GuðmundurA.
Finnbogason
70 ára
Þann 8. nóv. s.l. varð vinurokkar
Guðmundar A. Finnbogason 70
ára. Guðmundur er fæddur i
Tjarnarkoti i Innri-Njarðvík, sonur
heiðurshjónanna Finnboga Guð-
mundssonar og Þorkelínu Jóns-
dóttur.
Guðmundur er vel þekktur á
Suðurnesjum og víðar fyrir marg-
vísleg störf sín á sviði félagsmála
og einnig hefur hann um langt
árabil helgað sig rannsóknum á
ættum Suðurnesjamanna.
Árið 1978 kom út bók eftir Guð-
mund, hún ber heitið „Sagnir af
Suðurnesjum". íþeirribók ermik-
inn fróðleik af finna um ættir Suð-
umesjamanna, lífþeirra og starfs-
hætti. Arið 1980 kom út önnurbók
hans, nefndihöfundurhana„Blátt
áfram, vegferðavisur".
í heimabyggó sinni er Guð-
mundur kunnastur fyrir hin miklu
og notadrjúgu störf sín i þágu
kirkjunnar okkar. Á þeim starfs-
vettvangi lágu leiðir okkar saman.
Fundum við það fljótlega hve
mikils virði það var að hafa Guð-
mund með i ráðum, vegna atorku
hans og bjartsýni.
Reyndi á það, þegar hafist var
handa við að safna fé til kaupa á
vönduðu pipuorgeli íkirkjuna.
Hann vareinnig aðalhvatamaður
að byggingu Safnaðarheimilis
Innri-Njarðvíkurkirkju og formaður
byggingarnefndar þess. í þvi
starfi kom elja hans og útsjónar-
semi að góðum notum.
Á þessum merku tímamótum,
árnum við Guðmundi og hans
ágætu konu, Guðiaugu Berg-
þórsdóttur, heilla og blessunarog
þökkum honum af alhug áratuga
fórnfúst forystustarf í þágu Innri-
Njarðvíkursafnaðar.
Maria Þorsteinsdóttirog
Helga Óskarsdóttir,
Innri-Njarðvík.
erið velkomin íapótekið.
ROSfWAlER
lOTlON
----------------------------------
Málverkasýning Karvels Gránz
Karvel Gránz, 28 ára Njarðvíkingur, sonur hjónanna Guðlaugar
Karvelsdóttur og Áka Gránz, hélt sína fyrstu sjálfstæðu málverka-
sýningu í Iðnaðarmannafélagshúsi Suðumesja að Tjamargötu 3 í
Keflavík, dagana 19.-28. nóvembers.l.
Á sýningunnf gaf að líta 35 myndir, flestar olíumálverk sem unnin
eru með blandaðri tækni og aö auki mikla og þaulhugsaða mynda-
samstæðu alls 37 teikningar með útskýringum; en þar var um að
ræða aðgegilega vitneskju um eöli og lögmál fljúgandi disks.
Verk Karvels þurfa ekki langrarskoðunarvið, til þess að Ijóst verði
að á ferðinni er hæfileikamaður í listsköpun og þá ekki síður mikill og
margslunginn hugsuður.
Að koma því á framfæri sem innra fyrir býr þaö er aðall sýningarinn-
ar frá hendi listamannsins. Hann opnar fyrir áhorfendum ævintýra-
veröld dagdrauma sinna með geðþekkum og fallega gerðum mynd-
um sínum.
Venjulegt fólk og landslagsmyndir eru yfirhöfuð ekki viðfangs-
efnin, sem við blasa og aðspurður segist listamaðurinn lítinn áhuga
hafa á að mála þess konar myndir. Aðsóknin að sýningunni var góð
og flestar myndirnar seldust.
Með hliðsjón af því sem að framan getur má hiklaust telja mál-
verkasýningu Karvels gott framlag ungs manns, sem verðugt er að
þakkað sé um leið og honum eru færðar bestu framtíðaróskir.
K.A.J.
Karvel Granz við myndina Gamiárs-
kvöld.
FRA ALMANNATRYGGINGUM
í Keflavík, Njarðvík, Grindavík og
Gullbringusýslu
Vegria tölvuvinnslu skal bótaþegum bent á aó tilkynna umboðinu strax
um breytingu á heimilisfangi. Tilaó komasthjá erfióleikum í útsendingu
bótamiða.
Sími okkarer3290.
Bæjarfógetinn í Keflavík, Njarðvík og Grindavík
Sýslumaðurinn í Gullbringusýslu
Snyrtivörur og ilmvötn í úrvoli og
þá aðeins það besta.
o/lncils/ína'iS
(rarharvl)
ELLEN
BETRIX
}te$\INl^URENr
I
FAXI - 239