Faxi - 01.12.1982, Side 60
LEIKFELAG KEFLAVIKUR:
HÖFUNDUR:
Sigurður Róbertsson
LEIKSTJÓRI:
Jónína Kristjánsdóttir
LEIKMYND OG BÚNINGAR:
Jónína Kristjánsdóttir
HVfSLARI:
Halla Sverrisdóttir
LÝSING:
Jón Þór Eyjólfsson
UÓSMYNDIR:
Haukur Ingi Hauksson
LEIKSKRÁ:
Ingibjörg Guðnadóttir
Hjördis Ámadóttir
SVIÐ:
Árni Ólafsson, Ólafur Erlingsson
Jón F. Sigurðsson.
Drottínn alsherjarog Gabriel horfa á Lúsiferog ára hans laumastað almættinu.
HÖFUÐBÓUÐ OG HJÁLEIGAN
Höfundur bregður sér á vett-
vangsgöngu til himnaríkis að
logagylltu hásæti Drottinsallsherj-
ar og lætur meginhluta leiksins
gerast þar. Á ferð sinni lítur hann
inn í aldingarðinn Eden og sér
fyrstu viðbrögð kvenréttinda. En
hann fer hjá garði á hjáleigunni —
bújörð Satans.
Fyrir mikinn leikritahöfund er
það ærið verkefni að túlka þessa
tvo viðkomustaði og hafa margir
spreytt sig á því með misjöfnum
árangri og af tvennu tilefni — ann-
ars vegar til að skýra og efla trú á
Guðlega-tilveru, hins vegar að
draga úrtrúarlegum mætti. Undir-
ritaður þekkir lítið til leikverka Sig-
urðar eða bókmenntaritunar hans
og er því lítt hæfur til að meta
stöðu hans sem leikritahöfundar.
í verki þessu skopast hann
háðulega að þeirri trú er Þjóðkirkj-
an boðar — gerir Drottin allsherjar
að svefnpurku sem snuprar erki-
engilinn Gabriel en lætur vel viö
félagsskap Lúsifers — erkióvinar-
ins. Ég hef séð þetta talið gaman-
leikrit og vissulega em nokkrar
spaugilegar senur (reblik) fyrir þá
sem sætta sig við aö spaugað sé
með trúmál.
Leikarar voru allir kornungir og
svo til alveg óreyndir á leiksviði og
með tilliti til þess og annarra að-
stæðna má telja að Jónínu hafi
tekist vel að koma þessum búskap
á fjalirnar á svo stuttum tíma sem
raun var á — vikuæfing til viðbótar
hefði þó ekki sakað. Drottin alls-
herjar — aðalhlutverk — lék Ámi
Margeirsson. Hann hefur alla
burði í þetta hlutverk, er stór og
stæðilegur, raddsterkurog álitleg-
ur. En hvort tveggja er að Árna
vantar leikræna þjálfun og svo
held ég að það liggi fjarri eðli hans
að skopast með Drottin allsherjar
eins og höfundurætlasttil, til þess
þarf langþjálfaða leikara.
Gabríel erkiengil lék Jóhannes
Kjartansson. Hann hélt sig trú-
verðugt við hásæti Drottins, var
ráðhollur og velviljaöur en réð lítt
við þau tök sem Lúsifer, leikinn af
Adam og Eva hugleiða afleiðingar syndafallsins.
FAXI - 240
Lúsifer klæðist skrautklæðum er hann fer í einkaerindum til Drottins alsherjar.