Faxi - 01.12.1982, Qupperneq 63
Knattspyman áSuðumesjum seinasta leiktímabil
Sigurvegarar Viðis i 3. deiidkaria, 1982, Viðir, Garði.
Aftari röð Irá vinstri: Haukur Hafsteinsson þjálfari, Ingimundur Guðnason tormaður, Jón
Ögmundsson, Grétar Einarsson, Vilhjálmur Einarsson, Sigurður Magnússon, Vilberg Þor-
valdsson, HalldórEinarsson, PálmiEinarsson, Magnús Magnússonog GunnarHasier. Fremri
röð frá vinstri: Klemenz Sæmundsson, Ingimundur Guðmundsson, Ólafur Róbensson, Gísli
Heiðarsson, Guðmundur Jenz Knútsson, Björgvin Björgvinsson og Guðjón Guðmundsson.
Sigurvegarar Viðis i 2. deild kvenna i knattspymu.
Aftari röð frá vinstri: Ingimundur Guðnason formaður, Þóra Björg Magnúsdóttir, Bryndis
Knútsdóttir, Helga Birna Ingimundardóttir, Svanhildur Einksdóttir, Vilborg Knútsdóttir, Bryn-
dis Rúnarsdóttir.Ásdís Hiöðvesdóttir, Katrín Eiriksdóttir, Agústa Asgeirsdóttir, Kristin Eyjólfs-
dóttir, Örn Eyjótfsson þjálfari. Fremri röð frá vinstri: Auður Finnbogadóttir, Guðrún Eyjólfsdóttir,
Kristbjörg Eyjólfsdóttir, Guðlaug Sigurðardóttir fyrirliði, Eyrún Finnbogadóttir, Helga Eiríks-
dóttir, Þuriður Jónasdóttir og GuðriðurS. Brynjarsdóttir.
Víðirsigraði í tveimur deildum
Arangur knattspyrnumanna
og kvenna á Suðumesjum var
miðlungi góður þegar á heildina
er litið á árinu sem er að líða.
Þátttaka var mikil en sigrar í
landsmótum fáir, aðeins tveir.
Víðir vann í lll-deildinni, undir
leiðsögn Hauks Hafsteinsson-
ar, sem ætlar að þola bæði súrt
og sætt með þeim í ll-deildinni
næsta ár. Kvennaflokkur Víðis
sigraði í ll-deild undir stjórn
Arnars Eyjólfssonar, en óvíst er
hvort hann á tök á því að berjast
með þeim í l-deildinni við félög-
in af höfuðborgarsvæðinu. Við-
isliðin innsigluðu sigra sína
bæði sama daginn eða 4. sept-
ember. Karlaflokkurinn norður
á Sauðárkróki, með því að vinna
Tindastól með 3:0 og kvenna-
flokkurinn spilaði á grasvellin-
um í Keflavík við KA frá Akur-
eyri og sigraði með 1:0. Var það
í aukaúrslitaleik, því hinum fyrri
sem háður var fyrir norðan lauk
með markalausu jafntefli. Faxi
óskar Víði til hamingju með
sigrana og vonar að þeim gangi
vel á hinum nýja vettvangi í
knattspyrnunni á komandi leik-
tímabili, en þar hafa þeir ekki
áður haslað sér völl.
Góður árangur ÍBK
í Bikarkeppninni
Meistaraflokkur karla ÍBK,
komst í úrslit í Bikarkeppninni en
beið lægri hlut fyrir ÍA, 1:2, en
hefði alveg eins getað farið með
sigur af hólmi, en þetta var ekki
þeirra happadagur. Liöið sýndi í
Bikarkeppninni að mikið býr í því
en það tókst þeim ekki að sýna í
l-deildinni, enda áttu þeir í vök að
verjast og rétt mörðu að halda
sæti sínu þar. Þjálfari var Karl Her-
mannsson. Allar líkur benda til
þess að Guðni Kjartansson muni
annast þjálfun ÍBK að ári og nú
verða þeir aö setja stefnuna á
efsta sætið, því að senn eru liðin
10 ár síðan íslandsmeistaratitillinn
hafnaði í Keflavík seinast. Miðað
við þann efnivið sem fyrir hendi er
ætti það að takast ef allir leggjast á
eitt, leikmenn þjálfari, knatt-
spyrnuráð, stjórn ÍBK og áhorf-
endur.
Reynir með tærnar í
l-deildinni
Reynismenn í Sandgerði voru
með tærnar á þröskuldi l-deildar.
Ekki vantaði nema herzlumuninn
— eða kannski bara viljann. Liðið
hafnaði í þriðja sæti, undir stjórn
Kjartans Mássonar þjálfara. Hætt
er við að róðurinn verði þyngri
næsta ár, með Frammara, KA og
FH-inga sem keppinauta. Hins
vegar hafa Reynismenn sýnt að
þeir geta unnið hina sterku og má
þar minna á FH-ingana sem þeir
unnu mjög sannfærandi í Sand-
gerði í sumar. Jón Hermannsson
hefur nú tekið við þjálfun þeirra, og
má góðs af honum vænta, enda
gengið vel með þau lið sem hann
hefur meðhöndlað. Reynismenn
hafa nú fengið grasvöll, sem er til
mikilla bóta.
--------—---\
Magnús Gtslason
skrífar um íþróttir
Njarðvíkingarnir byrjuðu vel
undir leiðsögn Mile og voru í efri
mörkum deildarinnar um tima, en
fengu svo skelli sem næstum
kostuðu þá ll-deildarsætið. Voru í
lokin í fallhættu. Liðið vann góða
sigra, m.a. FH með 5:1 og Þór Ak.
1:0, á Njarðvíkurvellinum, sem
sýndi að þeir voru til alls vísir þeg-
ar ságállinn varáþeim, — en liðið
var óstöðugt eins og íslenska
veðráttan, — aldrei að vita hvemig
blési næst. Ekki er enn vitað hver
muni þjálfa þá á komandi leiktíma-
bili, þó getur komið til mála að Mile
verði með þá þriðja árið í röð.
Grindvíkingar sátu eftir í III-
deildinni, rétt einu sinni enn. Margt
benti til þess í vor að þeir væru
með öflugt lið og góðan þjálfara,
Hörð Hilmarsson, sem jafnframt
spilaði með þeim. Reyndar höfðu
þeir misst góða leikmenn en að
sjá áttu þeir nóg sterkra pilta eftir.
Einhvern veginn tókst ekki að nýta
þá. Liðið varð aldrei sterk heild og
átti mjög misjafna leiki. Frekar en
fyrri daginn þá er enginn uppgjaf-
artónn í Gindvíkingum. Þeir ætla
sér stóran hlut í IIl-deildinni í sum-
ar. Kjartan Másson hefur feert sig
um set, frá Sandgerði til Grinda-
víkur og hyggst vinna UMFG upp í
ll-deild, hvað sem það kostar.
Kristinn Jóhannsson er aftur kom-
inn í þeirra herbúðir eftir ársdvöl
með ÍBK og fleiri góðir leikmenn
munu keppa um sæti í Grinda-
víkurliðinu.
Yngri flokkarnir voru hvergi
nærri sigrum í Landsmótunum,
þótt þeir kæmust í úrslit. Keflvík-
ingar komust í úrslit í 5. flokki og 4.
flokki. Grindvíkingar í 2. flokki og
Reynismenn í 3. flokki, en betur
máefduga skal.
Af öðrum mótum má nef na Litlu
bikarkeppnina, Stóru bikarkeppn-
ina, sem Víðir vann, Suðumesja-
mótið, þar sigraði Víðir í meistara-
flokki, en Grindvíkingar, í II. IV. og
V. flokki. Njarðvíkingar unnu III. og
VI. flokkinn. Reynismenn unnu í
meistaraflokki innanhúss, en
Njarðvík í III., IV og V. flokki, en
Grindavík í II., og VI. flokki.
Aðsókn að leikjum var sæmileg,
mætti þó vera meiri. Mest var hún
þó þegar Suðurnesjaliöin voru að
keppa sín á milli, bæði í II- og III-
deild, svoog í Bikarkeppninni.
FAXI - 243
i