Búfræðingurinn - 01.01.1936, Blaðsíða 25
21
Það,sem eiiikum kom mér til þess að rita grein ]pessa,er aðferð
við innakstur 4 heyi,er ég sá hjá Páli hónda Þorsteinssyni á Stein-
dórsstoðum Reykholtsdal og hann hefir sjálfur fundið upp'. Finnst
mér hún m,jög athyglisverð og ekki vandameiri en svo,að hver sæmi-
lega lagtækur maður getur búið hana í hendurnar á sér. Vil ég her
gera tilraun til þess að lýsa aðferð þessari og þeim tækoum,sem við
hana eru notuð,í feirri von,að einhver,er þetta les,taki það til
athugunar og reynslu. Styðst ég þar einkum við eigin athugun a
tækjum Páls,lýsingu hans á aðferðinni og umsögn Þorsteins Þorsteins-
sonar Húsafelli,er notaði■aðferðina í sumar .
Aðferð Páls byggist aðallega á því,að hann ekur heyinu heim á
hjólsleða(dregur heyið á hann með hestum) og dregur svo heyið með
blokkum inn í hlöðu.
H.jólsleðinn er þannig gerður; Lengdin getur verið eftir vild
3,5 - 4,5 m ,breiddin 2,16 m ,hæðin 0,37 m .Undir hon\im eru 3 hjól
hvoru megin,sem eru 12 cm J)ykk,en 28 cm í jpvermál. Eru þaU s. n.
trollbobbingar. Hjól þessi eru milli tveggja meiða úr borðum ,sem
eru 7 x 5/4. Er skorið úr þeim að neðan-verðu.'■(s ja 3* mynd) , til
þess að sleðinn rekist síður á/þúfnakolla eða mishæðir,þar sem þær
eru. Meiðar þessir eru merktir með a. Milli þeirra er um 15 cm .
Hjólin eru merkt með b. Sleðinn er rimlaður að ofan með borðum 3/4
Jjuml. þykkum,er vita langs um,svo að mótstaðan verði sem minnst ,
þegar heyið er dregið upp á sleðann.
Aftan á sleðanum er grlnd, tjafn breið sleðanum,en rúmlega 2 m
á lengd. Er hún á hjörum. Hún er rimluð líkt og sleðinn. Grindina
má ýmist leggja upp á sleðann eða niður á jörð skáhalt. í aftari
enda hennar eru 2—4 jarngaddar,er ganga ofan í jörðina og stöðva
sleðann á meðan heyið er dregið upp a hann.
ca. 1 s 5o
trr.
a v
U
2, lo m
4 3-
.Éyerskuíi^m' _
I y 2. mynd.
ca. 1 ; 2o
i______