Búfræðingurinn - 01.01.1936, Blaðsíða 91
87
Felap;sskapur.
í málfundafélaginu "JPram.*' hafa verið haldnir 18 fundir,á laug-
ardagskvöldum,og rædd þar 18 mál. Á fundum þess\im hafa alls tekið til
máls 38 nemendur. Af 13 nemendum,sem ekki hafa tekið þátt í umræðum,
eru 4 úr eldri-deild,en 9 úr yngri-deild. Auk þess tóku kennarar
skólans þátt í fundimum. Allmargir tóku aðeins einu sinni til máls,
en 15 töluðu aöftaaftar, J)ar af /11 úr eldri-deild, en 4 úr
yngri-deild. Kvásir hafa komið út á 14 fundum með um 35 greinar eft-
ir 26 höfunda. Á sunnudagsfundum yngri-deildar,er alls voru haldnir
19 sinnum,voru rædd 19 mál,22 nemendur tóku þátt í þeim umræðum,þar
af 12 á fleiri fundum en 5. Af 51 nemania hafa því 45 tekið þátt í
umræðum á fundum,en 6 ekki.
í vínbindindisfélaginu voru 32 nemendur og 2 kennarar. Felagið
sendi fulltrúa á ársþing Sambands bindindisfélagp í skólum,er stóð
yfir dagana 3o.nóv.- 2.des.l935. Fulltrúinn var Guðbrandur Magnússon
kennari. Sambandið sendi félaginu skuggamyndir um áhrif áfengis.Voru
þær sýndar 1?. mars og skýrðar af Ásgeiri ólafssyni dýralæknir,sem
kennir hér dýralækningar. Formaður félagsins var Benedikt Guðmundss.
í tóbaksbindindisfélaginu hafa verið 25 nemendur í vetur.
Formaður; Andrés Bjarnason. CCaflfélagið starfaði ekki í vetur.
Blaðafélagið starfar líkt og undanfarið. Fær það flest helstu
blöð og tímarit landsins. Eru þau lögð fram í kennslustofu yngri-
deildar hvern sunnudag,og eru mikið lesin. FormaðursGuðbr. Magnússon
kennari. Nokkur Wi tímarit hafa verið keypt.
Bókasafnið er all mikið notað. Á skólaárinu hafa verið lánuð út
um 7oo bindi,líkt og í fyrra,og skiftast þau þannig eftir efnis
Tímarit 3o,4 % , skáldsögur 37,1 % ,náttúrufr. og búfræði 9>7 %
þjóðfélagsmál o.fl. 8,4 % ,kvæðabækur 6,6 % , saga og ísl. 3,4 %
leikrit 2,4 % og fornbókmenntir 2,o %. Það er athyglisvert,hvað tíma-
ritin eru mikið lesin. BÓkavörður; Guðmundur jónsson kennari.
íþróttir og skemmtanir.
íbróttalif hefir verið dauft í vetur. Leikfimi var ekki iðkuð
um tíma,en þeim mun meiri áhersla lögð á knattspyrnu. Var búist við
kappleik iíiilReykhyltinga,en af því varð þó aldrei. Mundi ekki fara
best á því að strika knattspyrnuna út í heimboðum skólanna? Mér
skilst að kappið sé þar orðið svo mikið á báða bóga,að sliikt hafi
ekki þroskandi áhrif á íþróttalíf skólanna. Eg vil ekki með þessum
orðum lasta knattspyrnuna,en iðkun hennar getur einnig verið ur hófi
fram. Skíðafæri hefir aldrei komið á vetrinum á Hvanneyri,og skíðin
hafa því ekki verið notuð nema lítið eitt 3 - 4 daga. Skautafæri var
aftur á móti óvenju gott og mikið notað. Skauta- og skíðas.jóður á
nú í sjóði 63 kr. Átti að kaupa nokkur pör-af skautum fyrir fé úr
honum, en þeir f engus t hvergi. Formaður s «kennari.