Frjáls verslun - 01.05.2002, Page 34
Hilmar í fallegri náttúrunni í Sviss í mars 2002.
Mynd: úr einkasafhi
I heimsókn hjá Eclipse. Frá vinstri: Hilmar A. Hilmarsson, fram-
kvæmdastjóri Aviace AG, Heinz Peier, stjórnarmaður og einn af eig-
endum Aviace, og Vern Raburn, forstjóri Eclipse.
Fyrirtækið stefnir að því að vera með nokkrar einkaþotur með heimahöfn í hverju landi,
hugsanlega þó ekki nema eina á íslandi ef næg þátttaka fæst. Aviace AG á og leigir
klúbbunum þoturnar en klúbbarnir sjá síðan sjálfir um reksturinn og áhafnirnar.
þegar upp er staðið því að taka þurfi eitthvað tillit til verðbreyt-
inga á tímabilinu. Þess misskilnings hefur gætt hér á landi að
um viljayfirlýsingu sé að ræða en það er ekki rétt. Kaupin á
þessum 112 Eclipse einkaþotum eru bindandi og kosta Aviace
AG því a.m.k. ríflega níu milljarða íslenskra króna. Eigendurnir
sex koma inn með nokkurn veginn jafna stöðu og ljóst er að
sjósetning íyrirtækisins kostar háar ijárhæðir en Hilmar vill að
öðru leyti ekki gefa upplýsingar um flármálin. Þegar hann er
spurður að því hvernig ungur strákur frá Islandi geti pungað út
stórfé í svona fyrirtæki segist hann vera bundinn þagnarskyldu.
Ákvörðun hafi verið tekin um að gefa ekki upp stofnhlutafé,
skiptinguna milli hluthafa eða áætlanir íýrirtækisins. Eigend-
urnir telji sig vera með arðvænlegt fyrirtæki í höndunum og vilji
láta sem minnst uppi um þetta.
Markmið Aviace AG er að hafa milligöngu um að stofna
klúbba um alla Evrópu og leigja þeim þotur. Kjartan Jónsson,
sem rekur fyrirtækið Umbrot og hönnun - prentþjónusta, hefur
tekið að sér að byggja upp Aviace á Islandi. Hann mun á næst-
unni heimsækja stærstu fyrirtækin í landinu og kynna fyrir þeim
þennan kost. Kjartan segir að þetta sé hagkvæmt fyrir íslensk
fyrirtæki sem senda starfsmenn mikið til útlanda, sérstaklega
þegar fleiri ferðast saman. Sama gildir hér á landi og annars
staðar í Evrópu. Boðið verður upp á fimm klúbbgjöld eftir því til
hversu langs tíma fyrirtækin eru reiðubúin að skuldbinda sig og
lækkar verðið á flugtímanum eftir því sem skuldbindingin er
lengri. Ódýrasti kosturinn er þessi: Fyrirtæki sem skuldbindur
sig fyrir 75 þúsund dollara fær aðgang að 50 flugtímum á ári í
fimm ár fyrir 850 evrur á klukkustund. Ef fyrirtækið leigir sex
sæta einkaþotu undir tvo farþega þá jafngildir þetta í heildina séð
fargjaldi á Saga Class, en ef fyrirtækið fyllir vélina þá er verðið
sambærilegt við almennt flugfargjald. Hilmar segir að einka-
þotur hafi mikil þægindi i för með sér fyrir forystumenn fyrir-
tækja, séu tímasparandi og auki um leið afköstin. Þó að hryðju-
verkin í haust hafi verið framin í Bandaríkjunum segir Hilmar að
markhópurinn sé fyrst og síðast fyrirtæki og „sæmilega ríkir
einstaklingar'” - í Evrópu. „Við þekkjum til í Evrópu. Við höfum
allir verið í viðskiptum í þessari heimsálfu og því er þetta mark-
aður sem við þekkjum vel,“ segir Hilmar.
Spara tíma og auha þægindi Fyrirtækið stefnir að því að vera
með nokkrar einkaþotur með heimahöfn í hverju landi, hugsan-
lega þó ekki nema eina á Islandi ef næg þátttaka fæst. Aviace AG
á og leigir klúbbunum þoturnar en klúbbarnir sjá síðan sjálfir
um reksturinn og áhafnirnar.
- Er fyrirUekið stofiiað vegna þess ótta við flugið sem blossaði
upp við hryðjuverkin í Bandaríkjunum?
„Nei, fyrirtækið er ekki tilkomið vegna þess en það fer ekki á
Keppir við þrjú stór fyrirtæki
Nokkur fyrirtæki gera þegar út á einkaþotumarkaðinn í Evr-
ópu. Þrjú stærstu fyrirtækin eru Net Jets, Jet Aviation og
Flex Jet og vinna þau öll með mismunandi fyrirkomulagi, þar
sem fyrirtækin eiga ýmist þoturnar eða þær eru í eigu viðskipta-
vinanna sem kaupa hlut í þeim. Aviace er þarna mitt á milli, á
þoturnar og leigir út til klúbba sem síðan gera þoturnar út og
leigja meðlimum sínum. Skrifstofurnar eru á tveimur stöðum, á
Kloten í Ziirich og í Iiizern. Fastir starfsmenn Aviace eru í dag
bara tveir, Hilmar og forritari, sem er að undirbúa starfsemi
fyrirtækisins á Netinu. I framtíðinni er ætlunin að klúbbfélagar
geti bókað sig á Netinu og þar geti klúbbarnir fylgst með stöð-
unni og pantað þotu frá nágrannaklúbbi ef þörf krefur. 33