Frjáls verslun - 01.05.2002, Qupperneq 77
Fjörkálfurinn
LÉTTAR ÆFINGAR I ERLI DAGSINS
Skrifstofuæfingar
Idagsins önn vill fara svo að vövarnir stífni og verði aumir
með tímanum. Hægt er að gera einfaldar æfingar yfir daginn
til að vinna á mótí þessu og hér að neðan eru teikningar sem
Gáski, Bolholtí 6, lét Frjálsri verslun góðfúslega í té. Þær
skýra sig sjálfar og ráðleggingar sjúkraliða Gáska eru að
standa upp frá skrifborðinu af og til, helst ekki sjaldnar en einu
sinni á klukkustund og teygja úr sér. Gera þessar léttu æfingar
og jafhvel fleiri ef tími gefst til og afleiðingin er behi líðan. 33
t'" -
k V " \ f \ r - ý '\V' f i IV vv í ,, „ >' i Vl’ *
Árj\ Vl/ \ \ / J\ * _/\ / I/
v_>
MEÐLÆTI
Ómissandi hvítíauksbrauð með silungi eða laxi... á grillið
Það er fátt betra en nýbakað brauð,
beint af grillinu, og hvort sem
hvítlauksolían hefur verið sett á
fyrir bakstur eða notuð sem
ídýfa, er árangurinn frábær.
Einfaldari uppskrift er
ekki tíl, allt sem til þarf er
hveiti, vatn, olía, smá
pressuger (mæli með lif-
andi geri) nokkur korn af
sykri og salt ásamt auðvit-
að hinum ómissandi hvit-
lauk.
Áður en lagt er af stað í veið-
ina er rétt að selja deigið saman en
það er fljótlegt Sé ætlunin að vera
lengi, meira en 3-4 tíma, er best að nota ekki
of heitt vatn.
2 glös af vatni (venjuleg vatnsglös) eru sett í skál og í hana
gerið ásamt smá sykri. Út í þetta er sett brauðhveití, tæpt kíló
(hálfur poki), 2 tsk. salt og slattí af olíu. Þetta hnoðað saman eða
hrært þannig að það tolli vel saman og látið bíða á meðan verið
er að veiða. Eins og með brauðuppskriftír yfirleitt er þetta ekki
mælt nákvæmlega heldur þarf að nota tilfinningu. Setja aðeins
meira vatn ef deigið er þurrt og aðeins meira hveiti ef það er
blautt
Þegar komið er inn ættí deigið að hafa lyft sér nokkuð vel og
þá er það sett á borð, hnoðað aðeins og úr
því klipin handfylli í einu. Eigi að
nota oliuna á brauðið er gott að
hafa saxað hvítlaukinn og sett í
olíu áður en farið var út, ann-
, ars má nota tilbúna olíu
lika. Um það bil 1 msk. af
oliu (og hvitlauk ef hann
er með) sett á deigið og
því lokað lauslega eða
klemmt saman. Þetta
verður óreglulegt og skrítíð
en skemmtilegt Deigið látið
lyfta sér aðeins aftur á meðan
fólkið er að koma sér fyrir og allt
gert klárt Þá eru deigbútarnir settir á
grillið, þar sem hitínn er minnstur (auðvitað
má vera með eitthvað undir eins og álpappír. Það er gott
að loka grillinu á meðan og svo er fínt að snúa brauðinu einu
sinni svo það brenni ekki. Þetta ættí að bakast á ca. 12-15 mín-
útum og smakkast guðdómlega... með fiskinum.
Nú, það má líka setja brauðið í ofninn... 200 gráðu hiti og í
miðjan ofn.
Sama uppskrift er líka góð ef bætt er út í hana slatta af
oregano og basil...og olían höfð um 2 dl. Búin tíl lítil brauð,
vindlalaga og raðað þétt saman. Allt penslað með oliu sem í er
oregano og bakað þegar það hefur lyft sér. H3