Frjáls verslun - 01.02.2004, Blaðsíða 12
Gunnar Baldvinsson, höfundur bókarinnar, afhenti Geir H.
Haarde fjármálaráðherra fyrsta eintak hennar.
„Uerðmætasta
eignin“
FRÉTTIR
Frumsýndi sjampó
Valgerður brá sér í sturtu og prófaði nýja sjampóið.
Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra,
prufukeyrði sjampó og sturtusápu fyrir nýtt fyrirtæki á
Grenivík, Pharmarctica, sem heíiir markaðssett sjampó
og sturtusápu sem hefur verið sérhannað með vatnið á
höfuðborgarsvæðinu í huga og á að koma í veg fyrir þurrk og
kláða. Sýrustig vörunnar er mjög lágt, pH 5,0, svo að sýrustig
húðarinnar komist sem fyrst í jafnvægi eftir bað. ®
Islandsbanki hefur gefið út bókina Verðmætasta eignin eftir
Gunnar Baldvinsson, forstöðumann lífeyris- og fag-
fjárfestasviðs eignastýringar Islandsbanka. Með útgáfu
bókarinnar vill bankinn efla áhuga á lífeyrismálum og veita
upplýsingar um lífeyris- og eftirlaunamál í víðu samhengi, t.d.
hvaða réttindi séu fólgin í lífeyrissjóðum, hvernig best sé að
byggja upp eftirlaunasparnað o.s.frv. Þetta er önnur bókin
sem Islandsbanki gefur út á stuttum tíma, sú fyrri kom út í
haust og hét Hlutabréf og eignastýring. ®
Bjarni Ármannsson, forstjóri (slandsbanka, Kristján Ragnars-
son, fv. formaður og framkvæmdastjóri LÍÚ, Geir H. Haarde
fjármálaráðherra og Þorgeir Baldursson, forstjóri Odda.
íslandsbanki efndi til hófs í Gerðarsafni í gær fyrir höfundinn,
starfsmenn bankans og ýmsa góða gesti. Gestir gátu notað
tækifærið og kynnt sér bókina.
Microsoft á
íslandi hefur
flutt sig um
set og hefur nú skrif-
stofu að Engjateigi 7,
Reykjavík. Jafnframt
hefur vefurinn
www.microsoft.is
verið opnaður. Glatt
var á hjalla í hófi sem
haldið var í nýja hús-
næðinu. ®
Microsoft á (slandi er til húsa að
Engjateigi 7 í Reykjavík.
Friðrik Sigurðsson, stjórnarformaður Tölvumynda, Jón Krist-
jánsson, framkvæmdastjóri Maritech, Elvar Steinn Þorkels-
son, framkvæmdastjóri Microsoft á íslandi, og Klaus Holse
Andersen, framkvæmdastjóri hjá Microsoft.
Myndir: Geir Ólafsson
Microsoft komið
á Engjateiginn
12