Frjáls verslun - 01.02.2004, Blaðsíða 83
BÍLAR
Kftir Vigdísi Stefánsdóttur
sem kemur út
FIB, Félag íslenskra bifreiðaeigenda, er hagsmunafélag og
neytendasamtök bifreiðaeigenda og hefur starfað frá
árinu 1932. Starfsemi félagsins er margvísleg en hags-
^unagæsla bifreiðaeigenda og persónuleg þjónusta við
félagsmenn eru tveir meginþættirnir.
,,Okkar hlutverk er að hafa áhrif á fyrirtæki, stofnanir og
stjórnvöld til þess að aðstoða bifreiðaeigendur og gæta hags-
muna þeirra," segir Runólfur Ólafsson, ffamkvæmdastjóri FÍB.
„Við höfum gert samninga um hagkvæmar tryggingar
fyrir félagsmenn okkar, rekum FÍB-aðstoð á höfuðborgar-
svæðinu, Akureyri og Borgarnesi og nærsveitum, erum með
lögfræðing sem veitir ráðgjöf og bifvélavirkjameistara sem fer
yfir reikninga vegna viðgerða ef þarf og veitir ráðleggingar
begar upp koma ágreiningsmál vegna bílakaupa. Við gerum
stöðugt gæðakannanir og verðkannanir og í blaðinu okkar,
flórum sinnum á
ári, er ijallað um
ýmis hagsmuna-
tengd mál ásamt
því sem er að
gerast í
bílheimum. FIB-
félagar og tjöl-
skyldur þeirra hafa aðgang að einum stærsta afsláttarklúbbbi
heims, „Show your Card!" FÍB-félagsskírteinið gefur afslætti
á um 70.000 stöðum."
Það er ótvíræður hagur af því að vera félagsmaður í FÍB.
FIB hefur með skeleggri framgöngu barist fyrir lækkun
skatta á bíla, eldsneytisverðs og trygginga samhliða því að
bæta persónulega þjónustu við félagsmenn. Félagsmenn eru
nú um 16.000 talsins. 33
Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri
FÍB. Mynd: Geir Ólafsson
Félag
bifreiðaeigenda
Heimasíður fyrir bílaáhugamenn
www.caranddriver.com
Samantekt: Vigdís Stefánsdóttir
Www.car.com er síða þar sem fá má upplýsingar um
bíla sem eru til sölu í Ameríku. Þegar gengi dollars
er jafn lágt og raun ber vitni er þetta hugsanlega væn-
legur kostur.
Lúxusbíllinn Jagúar er draumabíll margra. Heimasíðan er
auðvitað www.jaguar.com.
Annar lúxusbíll er Lotus og upplýsingar um hann er að
finna hér: www.lotuscars.com.
Volvo - fasteign á hjólum, var eitt sinn sagt. Volvo er með
nlþjóðlega heimasíðu - www.volvo.com, og hægt er að velja
um land og áhugamál innan Volvo.
Chrysler, bíllinn sem sameinar virðuleika og sport, á sér
heimili hér: www.chrysler.com.
Á Supercars geta bílaáhugamenn skipst á skoðunum, rætt
saman og fundið upplýsingar um allar gerðir bíla. Sjaldgæfa
bíla, dýra bíla, frumlega bíla og svo framvegis. Sannkallað
bílahimnaríki ef það er til en þeir sem hafa áhuga á bílnum
sem listmun eða hafa gert úr honum listmun ættu að skoða
þessa síðu: http://www.armory.com/mailman/listinfo.
cgi/bm-artcars.
Tímaritin eiga sér síðu líka. Hér er tímarit um sportbíla:
www.artcars.com, annað um bíla almennt www.carand
driver.com og síða þar sem m.a. má sjá ýmiss konar módel
af bílum auk hlekkja í bílasölur, bækur um bíla og fréttir. 33
83