Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.2004, Blaðsíða 54

Frjáls verslun - 01.02.2004, Blaðsíða 54
Hilmarsson, þjónustustjóri viðskiptasviðs hjá Unik. Guðný Rósa Þorvarðardóttir, forstöðumaður markaðs- Eiríkur deildar hjá Skeljungi. Þegar Vildarklúbburinn tók til starfa árið 1993 var mark- miðið að félagar hans söfiiuðu punktum fyrir flugferðir með Icelandair og viðskipti við dótturfyrirtæki þess. Eftir að sam- starf hófst við Visa Island síðla árs 1996 var starfsemin útvíkk- uð og fá nú félagar Vildarklúbbsins einnig afslátt í formi punkta hjá rúmlega 100 fyrirtækjum og verslunum auk veltupunkta. Þessi afsláttur er allt frá 0,65% upp í 10% en mjög algengur afsláttur er 5% af viðskiptaupphæðinni hveiju sinni. Með þessu móti eru punktar fljótir að safiiast inn á punktareikning. Hand- hafar Vildarkorts Visa og Icelandair eru núna yfir 60.000. Mikil hagræðing felst í þvi að geta sameinast fullmótuðu tryggðarkerfi eins og Vildarklúbbnum enda eru mörg stór fyrirtæki í samstarfi, eins og Landsbankinn og Flugfélag íslands en þau reka sín eigin tryggðarkerfi með punktasöfnun í Vildarklúbþnum. ,Auðvelt er fyrir Vildarklúbbsfélaga að nýta sér punktana til kaupa á ílugmiðum, hótelgistingu, greiðslu fyrir bílaleigubíl eða greiðslu hluta flugfars þar sem boðið er upp á að greiða bæði með punktum og peningum. Einnig er nokkuð um að fólk láti uppfæra flugmiða milli farrýma og greiði upp- færsluna með punktum. Eins má geta þess að með reglulegu millibili bjóðast félögum Vildarklúbbsins sértilboð eins og td. tvöfalda punkta við verslun eða helmingsafslátt á flugi,“ segir Helga Arnadóttir, forstöðumaður Vildarklúbbs Icelandair. Margt smátt gerir eitt stórt á sannarlega við um þetta vildarkerfi og eru meðlimir þess oft hissa á því hversu auðvelt er að safna upp í t.d. flugferð. Það er góð tilfinning að eiga fyrir utanlandsferð svo ekki sé talað um hótelgistingu og bílaleigu- bíl að auki. Gaman að geta þess að á liðnu ári voru 24.000 vildarferðir farnar á vegum Icelandair sem segir okkur að margir nýta sér þennan möguleika og njóta ávinningsins. Helga bendir á að hægt er að láta punkta renna í ferðasjóð Vildarbarna en stuðningur Icelandair og farþega félagsins við Vildarþörn hófst í fyrravor. Um er að ræða söfnun fyrir lang- veik börn og börn sem búa við erfiðar aðstæður. Unik er eitt útbreiddasta Unik er eitt stærsta og útbreiddasta vildarkerfi Islendinga. Það er tryggðarkerfi sem er tengt við Visa-kort, veitt einstaklingum og fjiilskyldum, og getur handhafi kortsins safnað inneign og tekið út vörur í skiptum fyrir viðskiptatryggð. Viðskipti við samstarfsfyrir- tæki Unik safnast saman með rafrænum hætti og umbuna um 400 verslanir og fyrirtæki fyrir viðskiptin. A hveiju ári sendir Unik korthöfum lista yfir 300 vörutegundir frá samstarfsfyrir- tækjum ásamt gjafabréfum auk þess sem listann má nálgast á heimasíðunni. Hægt er að velja vörur úr mismunandi leiðum, t.d. Grunnleið, Silfurleið eða Gullleið og er verðmæti vörunnar þá mismikið eftir því hvaða leið er valin. Visa Island heldur utan um söfnun viðkomandi og er ekki fylgst með neyslu viðkomandi. Þátttaka í Unik er ókeypis. „Við höfum verið starfandi í tæp ijögur ár og höfum séð ýmislegt gerast á markaðnum á þeim tíma, m.a. séð Fríkortið hverfa af markaðnum með yfirlýsingum um að vildarkerfið hafi gengið sér til húðar. Svo er þó ekki. Tryggðarkerfi er eitthvað sem fyrirtæki eru að eyða meiri peningum í en áður. Það er tæki til að halda í viðskiptavini og ná í nýja. Þetta er sam- starf þriggja aðila, okkar, fyrirtækjanna og neytandans og markmiðið er að allir hafi hag af viðskiptunum. Viðskipta- vinurinn er að fá hag af viðskiptunum sem hann hefur ekki fengið áður,“ segir Eiríkur Hilmarsson, þjónustustjóri við- skiptasviðs hjá Unik. World for 2 er eitt elsta kortið Worid for 2-kortið er afsláttarkort eða „heimsins stærsti lífsnautnaklúbbur", eins og fyrirtækið auglýsir sig sjálft. Þarna er um að ræða eitt elsta kortið á Islandi en þessi klúbbur hefur verið starf- ræktur hér í 14 ár. Viðskiptavinurinn kaupir World for 2-kortið á 3.900 krónur og endurnýjar það svo fyrir 3.100 krónur einu sinni á ári. World for 2 er alþjóðlegur markaðs- klúbbur og eru öll tilboðin svokölluð „tveir fyrir einn“ tilboð, eða 50% afsláttur. „Við erum með yfir 250 fyrirtæki í samstarfi og þetta er hugsað sem kynning fyrir þau. Viðskiptavinurinn getur nýtt sér kortið einu sinni á hveijum stað nema annað komi fram. Við fáum bara hefðbundnar grunnupplýsingar, nafn, kenni- 54
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.