Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.2004, Blaðsíða 43

Frjáls verslun - 01.02.2004, Blaðsíða 43
Stóri salur Borgarleikhússins tekur um 530 manns í sæti, miðinn á sýninguna kostar 3.200 krónur. Hver sýning veltir því um 1.500 þúsund krónum en hafa verður í huga að Chicago er kostnaðarsamt verk í uppsetningu í saman- burði við venjulegar sýningar. leikhús Chicago slær í gegn Dansatriði skipa veigamikinn sess hverri sýningu. sýningunni en á fjórða tug leikara koma á sviðið í Uppselt á allar sýningar. Tíu þúsund miðar seldir fyrir frumsýninguna. Hver sýning veltir 1,5 milljónum. Mjög kostnaðarsöm sýning. Texti: Hjálmar Blöndal Mynd: Sigfus Már Pétursson Gífurlegar vinsældir söngleiksins Chicago hafa vakið athygli en söngleikurinn var frumsýndur í Borgarleik- húsinu 18. janúar sl. Síðan þá hefur verið uppselt á allar sýningar og rúmlega það, því áður en sjálf frumsýningin fór fram, höfðu verið seldir tíu þúsund miðar og uppselt er á allar sýningar tvo mánuði fram í tímann! Sýnt hefur verið að jafnaði 4 sinnum í viku en almennt er það talið gott ef eftirspurn er eftir tveimur sýningum. Líta þarf allt aftur til ársins 1992 til að finna sambærilegar aðsóknar- tölur en þá var leikritið Þrúgur reiðinnar sýnt 6 sinnum í viku. Chicago hefúr áður verið sett upp hér á landi. Það var í Þjóð- leikhúsinu, en ekki hlaut sú uppfærsla viðlíka viðtökur og nú. Hvað ræður skal ósagt látið en líklegt má telja að kvikmyndin Chicago, sem hlaut Oskarsverðlaun iyrir þremur árum, hafi haft einhver áhrif á vinsældirnar auk þess sem sýningin þykir vera ffábærlega vel heppnuð og hafa gagnrýnendur hlaðið á hana lofi. Chicago er mjög umfangsmikil sýning miðað við það sem gengur og gerist í leikhúsunum. Það eru ekki færri en fimm- tíu manns sem koma að sýningunni hvert sýningarkvöld. Sjö manna hljómsveit leikur undir á sýningum, níu dansarar og fimmtán leikarar dansa, syngja og leika, en auk þeirra starfa við sýninguna hljóðmenn, ljósamenn, sviðsmenn og margir fleiri úr starfsliði Borgarleikhússins. Stóri salur Borgarleikhússins tekur um 530 manns í sæti, miðinn á sýninguna kostar 3.200 krónur en 2.500 krónur kostar inn á almennar sýningar. Hver sýning veltir því um 1.500 þúsund krónum en hafa verður í huga að Chicago er kostnaðarsamt verk í uppsetningu í samanburði við venju- legar sýningar. Höfundagreiðslur eru háar, danshöfundur var fenginn frá útlöndum til að semja dansana, hluti leikmyndar- innar er kvikmynd sérstaklega tekin fýrir sýninguna auk þess sem á annað hundrað búninga eru í sýningunni. Mikil áhætta var því tekin með uppsetningunni vegna umfangs hennar, en allt virðist hafa gengið upp. Leikarar Chicago fara í sumarfrí eins og aðrir landsmenn og er síðasta sýningarhelgi leikritsins um miðjan júní. Ovíst er hvort haldið verði áfram í haust en það veltur m.a. á samn- ingum við rétthafa sýningarinnar. Hvað sem af því verður, er ljóst að Chicago hefur náð þeim árangri að verða vinsælasta sýning í íslensku leikhúsi í langan tíma og verður gaman að fylgjast með framhaldinu hjá Borgarleikhúsinu og hvort frekari gróska verði í uppsetningu á söngleikjum sem hitta beint í mark. 33 43
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.