Frjáls verslun - 01.02.2004, Blaðsíða 44
FRÉTTIR
Forsvarsmenn Sjónvarpsins benda á að þeir hafi náð góðum samningi
og leikið sjónvarpsefni sem þetta sé heldur ódýrt miðað við það sem
gengur og gerist.
SJÓNVARP
Spaugslofan fagnar
með stórsamningi
Ekki er hægt að fá uppgefið hvað samninguriim gefur
Spaugstofinnönnum í aðra hönd, eða hvað það kostar að
halda úti þessum langvinsælasta sjónvarpsþætti þjóðarinnar.
Eftir Hjálmar Blöndal Mynd: RÚV
Laugardagskvöld landsmanna virðast vera algjörlega frátekin fyrir
Spaugstofuna ef marka má niðurstöður nýrrar áhorfskönnunar
Gallups. Spaugstofan hefur yfirburði í áhorfi með um 68 prósent
uppsafnað áhorf en líkja má þvl við að um 152 þúsund landsmenn horfi
á þáttinn á hveiju laugardagskvöldi. Idol og Gísli Marteinn koma svo
næst á eftir. Það þykir nokkuð magnað að þáttur sem þessi haldi slíku
áhorfi en næsta starfsár Spaugstofunnar er hið tuttugasta.
Liðsmenn Spaugstofunnar skrifuðu á dögunum undir nýjan samning
við Rikissjónvarpið en margir hafa velt því fýrir sér hversu mikið það
kostar að fá vinsælasta dagskrárefni landsins í sínar raðir. Sjónvarpsefni
sem veitir Ríkissjónvarpinu færi á að selja auglýsingar á hvað hæsta verði.
Hjá Sjónvarpinu fást aðeins þær upplýsingar að samningurinn sé
trúnaðarmál og verðmæti hans fáist ekki upp gefið nema með gagn-
kvæmu samþykki beggja samningsaðila, en forsvarsmenn Sjónvarpsins
benda þó á að þeir hafi náð góðum samningi og leikið sjónvarpsefni sem
þetta sé heldur ódýrt miðað við það sem gengur og gerist. Samningur-
inn nær til alls 27 þátta, frá næsta hausti til vorsins 2005.
Enginn veit um hversu háar greiðslur liðsmennirnir fá en vitað er þó
að þeir vinna kraftaverk í viku hverri með því að skrifa, æfa, klippa, hljóð-
setja og standa í öllu því sem við kemur gerð þáttanna.
Hvort sem forsetinn er í umræðunni eða ekki, fer Spaugstofan á stjá
og endurnýjunarkrafturinn er alltaf til staðar. Leikið sjónvarpsefni er
dýrt en leikin Spaugstofa ódýr - enginn veit þó hversu ódýr hún er nema
þeir sem skrifuðu undir samninginn. BH
Sindri Sindrason, stjórnarmaður í Pharmaco og
fv. forstjóri fyrirtækisins.
SJÁVARÚTVEGUR
Sindri og
Eiríkur með
Abba og Larsen
Iitíð hefur farið fyrir Sindra Sindra-
syni, fv. forstjóra Pharmaco, upp á
síðkastið. Sindri er nú stjórnarfor-
maður danska fyrirtækisins Larsen
Group sem hann á með Eiríki
Sigurðssyni, iv. kaupmanni í 10-11.
Efdr Guðrúnu Helgu Sigurðardóttur
Sindri Sindrason og Eiríkur Sigurðsson, sem
kenndur hefur verið við 10-11, tjárfestu
saman í dönsku fyrirtæki, Larsen Group,
eignarhaldsfélagi Larsen Danish Seafood og
Fresco. Fyrirtækin eru bæði í ferskum og
unnum laxavörum, verksmiðjurnar eru fimm í
Þýskalandi og Danmörku og varan er seld til 15
landa, einkum til Þýskalands. Sindri og Eiríkur
fjárfestu í fyrirtækinu í haust og voru í upphafi
með Sighvati Bjarnasyni, fv. forstjóra úr Vest-
mannaeyjum, en þeir tveir hafa verið einu
eigendur fyrirtækisins síðustu mánuði.
44