Frjáls verslun - 01.02.2004, Blaðsíða 35
Flugflotinn
ae
Excel fliruuays:
7 vélar
ATLANTA
20 Boeing 747
7 Boeing 767
4 Boeing 757
EXCEL AIRWAYS
7 Boeing 737-800 og 767-200
ÍSLANDSFLUG
4 Airbus 300-600R
2 Airbus 310-300
12 Boeing 737-300 og 737-400
2 Dornier
Starfsmenn Atlanta eru 750 talsins í 10 löndum, þar af eru 160
á aðalskrifstofunni á íslandi. Starfsmenn Atlanta eru einkum flug-
menn, flugvélstjórar, flugvirkjar, flugþjónar og skrifstofufólk. Hjá
íslandsflugi eru starfsmenn yfir 250 talsins, þar af um 120
íslenskir.
hefur sinnt Pharmaco og útrás þess
í gegnum stjórnarformennsku sína í
fyrirtækinu, Björgólfur Guðmunds-
son hefur sinnt Landsbankanum
sem formaður bankaráðs og
Magnús sinnir áhugamáli sínu,
fluginu. Magnús vinnur á alþjóð-
legum markaði og hefur þar sér-
stakan áhuga á fjárfestingum, upp-
byggingu og útrás í flugrekstrar-
félögum, þ.e. á sama sviði og Air
Atlanta og Islandsflug eru á, en
Magnús á einmitt 57% í íslandsflugi
með Omari Benediktssyni fram-
kvæmdastjóra í gegnum félagið
Blue Sky Transport.
Magnús hefur ekki áhuga á
farmiðasölu, rekstri ferðaskrifstofa
eða ferðaþjónustu og það alls ekki
hér innanlands þar sem næg sam-
keppni er fyrir. Hann leggur áherslu
á útrás og vöxt í leiguflugi og skoðar
öll tækifæri á alþjóðavísu sem geta hentað viðskiptamódelinu.
Hann vill hagræðingu, samnýtingu og stærðarhagkvæmni út
úr kaupunum, það sýna líka flárfestingar hans sjálfs og Air
Atlanta að undanförnu. Markmiðið er að samnýta og kaupa
t.d. sameiginlega inn varahluti, viðhald, tryggingar og elds-
neyti svo að nokkuð sé nefnt.
„Það er ósköp eðlilegt að kaupa kjölfestuhlut í félagi eins
og Excel Airways og stefna að frekari sókn á erlendum
mörkuðum. Þó að Air Atlanta sé íslenskt félag þá vinnur það
að 99,9 prósentum erlendis og því hljóta kaupin á Excel bara
að vera liður í þeirri áætlun að styrkja félagið enn frekar og
stækka, bæði á breska markaðnum og annars staðar í
Evrópu. Starfsemi Excel felst í því sama og önnur félög í eigu
Magnús Þor-
steinsson, stjórnar-
formaður Atlanta.
Hann hefur mestan
áhuga á flugrekstrar-
félögum í anda Air
Atlanta og íslands-
flugs sem hann telur
að passi mjög vel
saman, félög í svip-
aðri starfsemi með
mismunandi stærðir
af flugvélum.
Mynd:
Myndrún ehf./RÞB
20 vélar 31 vél
Ómar Benediktsson, framkvæmdastjóri ísiandsflugs, og Hannes Hilmarsson, aðstoðarmaður hans.
Myndir: Geir Ólafsson
íslandsflug:
flir Atlanta:
35