Frjáls verslun - 01.04.2004, Side 57
VIBTAL MAGNÚS JÓNATANSSON
fyrir mannleg samskipti
Unik vinnum í, þá veitum við upplýsingar um hvernig vildar-
kerfið virkar í heild sinni, s.s. hvað tenging við Unik þýðir,
punkta- eða söfnunarstöðu og hvernig skal bera sig að þegar
vara er valin út á punkta. Við förum líka yfir málin með full-
trúum iýrirtækjanna sem við störfum með. I boltanum er það
maður á mann og það má segja að hjá okkur sé sama upp á
teningnum."
Áhugi á fyrirtæhinu eyhst Magnús segir að áhugi á fyrir-
tækinu sé alltaf að aukast: ,ý\llt frá upphafi höfum við verið
í öflugu samstarfi við Visa ísland. Hafa þeir staðið vel við
bakið á okkur og verið hjálplegir. Þar hefur farið fremstur í
flokki Leifur Steinn Elíasson, aðstoðarframkvæmdastjóri.
Rétt er að taka það fram að Visa er ekki eigandi að Unik. Eg
lýsi stöðunni hjá okkur í dag þannig að þegar ég var að alast
upp fyrir austan þá átti ég eins og svo margir aðrir
níðþungan norskan magasleða. Það var erfitt að draga hann
upp brekkuna og fáir til að hjálpa. Þegar komið var upp
brekkuna var fullt af liði sem vildi fá að vera með niður. Unik
er í þessari stöðu í dag.“
Hver skyldi svo vera kostur heimilisins og fyrirtækjanna
við að tengjast Unik: „Neyslu heimilanna má skipta í tvennt,
það sem nauðsynlegt er að kaupa og það sem er munaðar-
vara. Samstarfsfyrirtæki okkar uppfylla bæði þessi skilyrði.
Hagur heimilanna er að skrá sig í söfnun hjá Unik, eiga við-
skipti við samstarfsfyrirtæki Unik, þá telur upphæðin inn á
svokallaða söfnun og þeim mun meiri sem veltan verður
þeim mun verðmætari vöru eða vörur er hægt að velja af
Unik vörulistanum. Unik gefur út vörulista með vörum og
þjónustu frá samstarfsfyrirtækjum sínum og þar er kapp-
kostað að hafa vöruvalið sem breiðast. Segja má einnig að
heimilin séu í „business" í þessu kerfi, stjórna ferðinni og
ráða hversu mikið þau beina viðskiptum til tiltekinna fyrir-
tækja sem eru innan Unik. I öðru lagi höfum við fregnir af
því frá mörgum heimilum að eftir að hafa tengst Unik fylgist
þau mun betur með neyslu heimilisins en áður. Eins
heyrum við að fólk sé sáttara við neysluna þar sem það er að
fá eitthvað í staðinn.
Af framansögðu má sjá að hagur fyrirtækjanna sem
tengjast Unik er fyrst og fremst sá að viðskiptavinir sýna
meiri tryggð. I flestum geirum er samkeppnin orðin það mik-
il að brýn þörf er á að umbuna tryggum viðskiptavinum. Auð-
vitað kostar slík markaðsaðgerð sitt, en í okkar tilfelli er um
breytilegan kostnað að ræða þar sem aðeins er greitt fyrir
árangur. Þar með verður allt miklu mælanlegra. Almennt séð
eru íslensk fyrirtæki ekki komin langt í þessum efnum ef við
berum okkur saman við erlenda markaði. Ekkert er mikil-
vægara fyrir fyrirtæki en að geta reitt sig á viðskiptavininn.
Eitt vil ég svo taka fram sem augljósan kost við Unik, við-
skiptavinir þurfa ekki nýtt kort. Við rekum viðskiptin þannig
að öll VISA einstaklingskort gilda í okkar kerfi. Það var strax
takmark í upphafi að vera ekki með enn eitt viðskiptakortið
heldur búa til kerfi utan um kort sem var fyrir á markaðnum,
þannig að við erum fyrst og fremst að fara inn á það sem er
þekkt á markaðnum."
Eigum eftir að Stækka Magnús byrjaði einn með Unik. „Ég
fékk fljótlega góða menn til samstarfs og sem meðeigendur,
þá Hjalta Ástbjartsson, Eirík Hilmarsson og Ingvar Ragnars-
son. Auk þess hafa margir lagt okkur lið. I dag erum við með
samninga við um 500 fyrirtæki og erum komnir langt á leið
með að vera með um 20 þúsund heimili í viðskiptum. Síðast-
liðin tvö ár höfum við velt um það bil tveimur milljörðum
króna í gegnum Unik og höfum ásamt samstarfsfyrirtækjum
okkar verðlaunað viðskiptavinina fyrir um 30 milljónir."
Stækkun Unik hefur verið ör og Magnús er ekkert að
láta staðar numið í þeim efnum. „Við eigum eftir að stækka
meira. Það tekur þrjú til fjögur ár að byggja upp starfsemi
sem þessa. Það er kostnaðarsamt og við höfum vissulega
greitt fé úr eigin vasa í uppbygginguna, auk þess sem hlut-
hafar hafa komið að fyrirtækinu. Það hefur ekki alltaf verið
dans á rósum hjá okkur, en viðskiptaþolinmæði er nauðsyn-
leg í þessum bransa og nú er að koma upp sú staða að við
erum að sleppa fyrir hornið og sjáum fram á allt aðra tíma.
Samstarfsfyrirtækin hafa staðið þétt við bakið á okkur og
veitt okkur tiltrú og þolinmæði. Reksturinn er að verða
stöðugur og nú er megináhersla lögð á að bæta við fleiri
heimilum auk þess að hlúa að þeim sem eru hjá okkur og
vinna innra starfið.“S3
Unik kerfið
r
Irúm 3 ár hefúr Unik, ásamt u.þ.b. 500 verslunum víðs-
vegar um landið, veitt einstaklingum og fjölskyldum
vöruúttektir fyrir 30 milljónir króna í skiptum fyrir við-
skiptatryggð. í samstarfi við VISA ísland og Unik hefur
þessum hóp fyrirtækja tekist að koma á fót einu stærsta
og útbreiddasta vildarkerfi á Islandi. Án þess að þurfa að
breyta neysluvenjum býðst handhöfum VISA kredit-
korta að safna inneign með því að kaupa mat, bensín, lyf,
föt og aðra þjónustu. Engin þörf er á nýju korti og þátt-
taka er öllum að kostnaðarlausu. Unik vildarkerfið er
þægilegt. Skráningarferlið er í sinni einföldustu mynd.
Nóg er að tengja kortið hjá Unik. Frekari upplýsinga er
ekki þörf og ekki er fylgst með neyslumynstri korthafa.
VISA ísland sér alfarið um að halda utan um söfnunina.
Nákvæmar upplýsingar um veltu og inneign má sjá á
yfirliti sem VISA sendir korthöfum mánaðarlega. S3
57